Tákn tímanna - 15.08.1919, Blaðsíða 5

Tákn tímanna - 15.08.1919, Blaðsíða 5
TÁKN TÍMANNA 85 haldið út lengur og yrði að fá hjálp. Eg hygg, að eg mundi hafa mist vitið, ef hjálpin hefði ekki verið í nánd. Eg gat reyndár hlýtt á prédikanir, en eg óskaði, að einhver vildi koma til mín, og veita mér fræðslu í sjálfri biblíunni, kenna mér að lesa og rannsaka hana. En eina nólt dreymdi mig að eg sá skólahús nokkurt, og frambjá því rann fagurt íljót, með hreinu og tæru vatni. Eg var leidd upp að húsinu, og gekk inn. Maður einn sat þar inni, og liann sagði við mig: »Það mun enn þá koma skóli líkur þessum til bæjarins, þar sem þú býr. í þeim skóla munu veslings svertingjarnir verða uppfræddir í Guðs orði. Biblian mun verða kenslubók, og þið munuð geta lesið í henni. Sú tíð mun koma, en þér ber að vera þolin- móð«. Tíminn leið, og eg vonaði. Svo var mér sagt, að nokkrir menn væru komn- ir til bæjarins, og að þeir liéldu helgan sjöunda daginn og tryðu, að Drottinn mundi koma innan skamms. Mér var sagt, að þessir menn hefðu kvöldskóla uppi á hólnum. Og þá var mér það ljóst að þetta var skólinn, sem mig haíði dreymt um, og eg varð að fara þangað til að vera viðstödd. Eg fór þangað og salt að segja var þetta hann. Þar heyrði eg þann dýrmæta sannleika, og það var sú trú, sem sálu mina hafði svo lengi hungrað eftir«. Þessi frásögn er sönn. Fólk var upp- frætt í biblíunni í þessum skóla. »Evan- gelisk Læsebog« var notuð sem einföld og auðvöld biblíukenslubók til að gera uppfræðsluna sem skilmerkilegasta fyrir þelta fólk. P. T. M. Bók bókanna. Guðdómlegt samræmi. Bíblian kunngerir endalokin frá önd- verðu. Hún er ekki einungis landa- bréfið, scm vísar hinum ferðlúna pila- grimi til hinnar eilífu hvíldar, heldur er hún skýrsla um áform og tilgang hins eilífa Guðs viðvikjandi þessum heimi, sem hann hcfir skapað. Biblían lýsir liinu eilífa áformi Guðs, eins og það kemur í ljós í lífi og breytni Krists. Og ef einhver vill gera svo vel og lcsa hina þrjá fyrstu kapítula i byrj- un ritningarinnar og hina þrjá sein- ustu i Opinberunarbókinni, mun hann verða snortinn af því samræmi, sem hann þar verður var við. í byrjun bibliunnar finnum vér nýjan heim: „í upphafi skajiaði Guð himin og jörð.‘; Hún endar með því að lýsa hinum end- urskapaða hinmi: „Eg sá nýjan him- in og nýja jörð, þvi að hinn fyrri him- inn og hin fyrri jörð var horfin.“ í byrjuninni sjáum vér Satan koma inn í þennan heim til að eyðileggja og af- vegaleiða, en þcgar vér komum að endalokum ritningarinnar, sjáum vér, að Satann verður útrekinn, „svo að hann leiði ekki framar þjóðirnar af- vega.“ í upphafi kemur synd, kvöl, sorg, vein og dauði inn í heiminn, að lokum mun hvorki liarmur, vein, kvöl né dauði vera framar til. í öndverðu var jörðin, vcgna óhlýðni mannsins, bölvuð með þyrnum og þistlum; en að lokum „mun engin bölvun framar vera til, og hásæti Guðs og lambsins mun í henni vera.“ í upphafi sjáum vér lifs- ins tré í Paradís, en lil þess að maður- inn tæki ekki af ávöxtum þess, og lifði að cilífu í sínu synduga ástandi, var

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.