Tákn tímanna - 15.08.1919, Síða 7

Tákn tímanna - 15.08.1919, Síða 7
TÁKN TÍMANNA 87 urn tíma gerði. Kofiun var lítill og lág- ur og stóð hátt uppi í fjallshlíðinni. í gluggunum voru fáar rúður eftir, og í götin höfðu þeir látið tuskur í staðinn fyrir gler. Það leit út eins og moldar- þakið og allur kofmn mundi hrynja þá og þegar. Eg vissi að eigandinn hafði verið drykkjumaður mikill og að hann hafði átt stóra bújörð í bygðinni og þar að auki verið skipstjóri; en hin síðustu árin hafði hann vegna drykkjuskapar- ins sokkið ofan í fátækt. Konan hans hafði séð til min og kom þess vegna út til að taka á móti mér. Hún sagði mér að koma mín myndi að eins vekja gremju bjá manninum, þrátt fyrir við- vörunina fór eg inn í kofann. í stofunni bar alt vott um liina mestu fátækt. Eg gekk að rúminu og heilsaði honum. »Jæja, svo þarna höfum við prestinn«, sagði hann, »og ætlar hann nú að búa mig undir dauðann, eða gera eitthvað því um líkt get eg ímyndað mér?« »Já, það er einmitt þess vegna að eg kom«. öÞað er nokkuð langt að ganga upp liingað, ekki salt? Pungur gangur«. Hvers vegna eruð þér ekki í hempunni og hvíta kraganum? í henni hefðuð þér átt að vera«. »Hvers vegua ert þú svo önugur við mig?« spurði eg. »Önugur! er eg önugur? Nei, það mundi vera synd að vera önugur við prestinn, sem prédikar svo fallegt. Já, eg hefi heyrt til yðar. Eg man eftir að þér einu sinni prédikuðuð um að hjálpa aumingjunum, er það ekki þannig að það stendur skrifað? og þér hafið sjálf- sagt gert það? Vilaskuld! Og þá sér- staklega gagnvart mér. Kain sagði: »Á eg að gæta bróður míns?« — stendur ekki þannig? En auðvitað má ekki heimfæra þau orð upp á yður?« »Hættu nú þessu og láttu okkur koma til baka til þín«. »Til mín? — Já eg veit að eg verð að deyja, og eg veit að eg verð að deyja sem drykkjumaður og verða glat- aður að eilífu. Þér skiljið að eg veit það er ákveðið, og nú ætla eg að spyrja yður um eitt. Trúið þér bibliunni?« »Já, eg trúi biblíunni«. »En hvers vegna breyttuð þér ekki eftir henni, bæði þér og hinir, sem segj- ast trúa á biblíuna?« »Breytum vér ekki eftir henni ?« »Þér prédikið um kærleika og misk- unsemi og alt þetta. Og svo prédikið þér um drykkjuskap og eilífa glötun. Hefðuð þér trúað á þetta, munduð þér vafalaust hafa gert eitthvað til að hjálpa öðrum eins aumingjum og mér — 'ekki satt?« »Enginn getur sagt annað en að eg hafi prédikað Guðs orð hreint og skýrt«. »Sunnudags formiðdaginn já, - i stólnum. Eg man eftir að þér lögðuð út af hinni sjöttu bæn, — um freislingu og því um líkt. Ef að þér á annað borð trúið því, sem þér sjálfir prédikið, hvers vegna nemið þér ekki freistingarnar í burtu? En bæði þér og hinir svoköll- uðu kristnu vitið svo vel hvað það er sem hefir freistað mín. En hvað hafið þér gert til að frelsa mig frá þessari freistingu?« »En þú verður að muna eftir að maðurinn hefir frjálsan vilja og að þú þurftir alls ekki að verða drykkju- maður«. »Hvaða bull, prestur! Ef þessi frjálsi vilji, sem þér nefnið, hefði verið nægi- legur, hvers vegna þurfið þér að vara

x

Tákn tímanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.