Tákn tímanna - 01.04.1920, Blaðsíða 1
II. ár.
Reykjavík apríl 1920.
7. tbl.
Hér reynir á þolgæði hinna lieilögu — þeir er varðveita boð Guðs og^trúna á Jesúm.
Heimilið á himnum.
Guð hefir tilreitt d}rrðlegt heimili fyrir
börn sín. Miklu d\'rðlegra en nokkur
getur hugsað sér. Auga hefir ekki séð,
ekki eyra heyrt og í einkis huga komið,
það, sem Guð hefir þeim fyrirhugað,
sem hann elska. 1. Kor. 2, 9.
Þó lætur Guð okkur ekki vera alveg
ókunnugt um þetta inndæla efni. Ilann
segir: »Sjá, eg gjöri alt nytt«. Op. 21, 5.
Edens fegurð gefur okkur hugmynd
um fullkomið heimili. Öll jörðin skal
vera eins og Eden var. Hún skal blómg-
asl eins og rósir. Es. 35, 7. Hún verður
frjósamur aldingarður og straumur lífs-
vatnsins, skær sem kristall, rennur frá
hásæti Guðs og lambsins. Op. 22, 1.
t*eir endurleyslu skulu planta, byggja
hús og njóta í friði handaverka sinna.
Es. 65, 21. 22.
Þeir skulu búa í híbýlum friðarins.
Es. 32, 15.—18. Enginn skal segja: eg
er sjúkur, því allir hafa fengið synda-
fyrirgefningu. Es. 33, 24. Þeir eru hin
blessaða kynslóð Droltins. Friður og
hamingja mun ráða hvervetna i öllu
ríki Drottins. Es. 65, 23. — 25. »í*á skal
tunglskinið verða sem sólarljós, og sól-
arljósið sjöfalt stærra, eins og sjö daga
sólskin, þann dag er drottinn græðir
meinsemdir sins fólks og læknar þess
mörðu sár«. Es. 30, 26.
»Borgin þarf ekki heldur sólar eða
tungls, til að lýsa, því dýrð Guðs upp-
ljómar hana og lambið er hennar ljós.
Fjóðirnar munu ganga í hennar ljósi,
og konungar jarðarinnar færa henni sína
dýrð og vegsemd«. Op. 21, 23. 24.