Tákn tímanna - 01.04.1920, Blaðsíða 8
56
TÁIÍN TÍMANNA
veðreiðasviðin og spilahúsin með mesta
æsingi. Alt þetta framkvæmist meðan
náðarinnar stund er að enda komin og
sérhvers verk verða útkljáð að eilífu.
Satan veit að hann hefur stuttan tima,
liann hefir setl alla sína þekkingu í
framkvæmd til að eyðileggja og tæla
mennina, með töfrum sínum þar til
reynslutíminn er á enda og náðardyr-
um að eilífu lokað.
Drottins aðvörunarorð frá olíufjallinu
hljóma með alvöru gegnum límanna
raðir til vor. En gætið yðar að hjörtu
yðar ofþyngist ekki við óhóf í mat eða
drykk eður búksorg, svo að ekki komi
þessi dagur yfir yður óvart.
Verið því ávalt vakandi og biðjandi,
svo að þér verðið álitnir þess verðugir
að umflýja þetta, sem fram mun koma
og mæta frammi fyrir Mannsins Syni.
Lúk. 21, 34. 32. E. G. W.
Samfundur Guðs barna.
Víða glaums og gleðimót
gjálíf heimsins börn sjer halda,
skildu’ ei börn Guðs fús og fljót
flykkjast hjer og þakkir gjalda,
honum, sem vill fyrstur fara
fund vorn á með engla skara.
Oss umlýkur alla hjer
æðstur dýrðarljóminn skæri.
Lífið hyggja andans er,
alheims-ljósið Jesú kæri.
Vel á Guð og gleði saman,
glapsýni er heimsins gaman.
Góði, ljúfi lausnari
líf vort bæn og söngvum skreyttu
gef oss andans algjörfi.
ungum, gömlum fögnuð veittu.
Að þvi dag hvern oss lát hyggja,
að þill hús er golt að byggja.
P. S. Injddi.
Vill þú hafa virðingu annara?
f frönsku blaði standa eftirfylgjandi
boðorð, sem verl er að veita eftirtekt,
ef maður vill komast til virðingar.
1. Verlu varkár að tala á móti fólki,
jafnvel þótt þú sért viss um að hafa
rétta málstöðu þín megin.
2. Verlu eigi forvitinn, þótt bezli vinur
eigi í hlut.
3. Virtu ekki hlutinn minna, þótt þú
eigir hann ekki sjálfur.
4. Trúðu ekki öllu illu, sem þér er
sagt um aðra.
5. Endurtak ekki baktal, jafnvel þó
liægt væri að skemta öðrum með því.
6. Láttu ekki ógert að vera þokka-
lega í klæðaburði.
7. Vertu ekki óviðfeldinn og óbilgjarn
móti nokkrum manni.
8. Gerðu ekki gys að trúarskoðunum
annara.
!). Lærðu að brosa. Hlálur er betri
en lyf.
10. Lærðu að vera afskiftasamur en
aðeins því víðvikjandi, sem þér
sjálfum tilheyrir.
11. Vertu nærgælinn í allri hegðun
þinni, og lállu lífsreglu þína vera:
Alt, sem þér því viljið, að aðrir
menn geri yður, það skuluð þér og
þeim gera.
Prentsmiðjan Gutenberg.