Verði ljós - 01.05.1896, Blaðsíða 14

Verði ljós - 01.05.1896, Blaðsíða 14
78 umhyggju fyrir líkamlegri og andlegri næringu, reglu og þrifnaði í híbýlum hinna fátæku sjúklinga; en Amalía var oddvitinn og stýrði öllu þessu. Aðrar konur buðust til að gcfa fátæklingunum mat tiltckna daga; margir scndu als konar klæðafatnað, aðrir mat- væli, enn aðrir peninga, til þess sem bezt að styrkja hið loíiega fyrirtæki hennar. En með þessum góðu undirtektum jókst svo starfsmagn fjelagsins, að það innan skams sá sjer það fært, að koma upp „barnaspítala“ með 30 rúmum og að iáta byggja nokkur í- búðarhús handa fátækum fjölskyldum. En — í dæminu fclst drag- andi kraptur! Áður en varði sá Amalía fleiri hundruð smærri fje- lög kringum sitt fjelag, er beiddust að mega skoða sig sem dætur hennar fjelags, sem aukafjelög eða sem groinar út úr fjclagi hennar. Og hvar sem slík fjelög voru stofnuð um alt Þýzkaland var leitað ráða hjá Amalíu Sieveking. Annríki hennar var ákaf- lega mikið um þessar mundir og gegnir það mestu furðu, að einn kvenmaður skyldi geta int alt það af hendi, sem hún gjörði. Hún varð líka að leggja mikið á sig, til þess að geta rækt hinar mörgu og margvíslegu skyldur, sem hún hafði tekizt á hendur. Yanalega byrjaði hún daginn kl. 4J/2 á morgnana og var sístarfandi alt til kvölds. Störfum sínum raðaði hún dag livern niður mjög vand- lega og ákvað hvcrju starfi vissan tíma, en með þessu móti fjekk hún ávalt lokið því, sem hún hafði sett sjer fyrir hvern dag, svo að aldrei safnaðist fyrir; en hvíldarstundir aðrar en nóttina gat hún sjaldan unt sjer. Þegar árið 1836 veittist Amalíu sú gleði, að sjá það ná fram- kvæmd, sem hún upphafiega hafði haft í huga, sem sje stofriun reglulegs hjúkrunarkvenna-fjelags. Þetta varð þegar djáhnhvenna- stofnunin í Kaiserwertli var stofnuð. Sá, er lcom þessari stofnun á fót, var prestur einn að nafni Fliednet: (f. 1800, f 1864); hann er sá, sem á vorum timum liefir vakið til lífs aptur hið gamla djáknkvenna (diakonissu)-embætti, og stofnun hans, sem var hin fyrsta í sinni tegund, er orðin fyrirmynd fjölda líkra stofnana víðs- vegar um Norðurálfuna. Þegar fjelag Amalíu hafði staðið í 25 ár og hjelt hátíð i minn- ingu þéss (í maí 1857), voru kraptar hennar teknir að þverra, en þó vitnaði hún enn mcð hinum einföldu en áhrifamiklu orðum, sem henni voru töm, um þá trú og von, som kærleiksstarf hennar var bygt á. Hinum kyrlátu störfum sínum lijelt lnin áfram þangað til veturinn 1858, en þá var liún líka orðiu svo uppgefin og mátt- vana, að hún gat varla dregizt áfram, þegar hún var að vitja

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.