Verði ljós - 01.09.1896, Side 13

Verði ljós - 01.09.1896, Side 13
141 þannig húsbónda sinn og velgjörðamann mikillega í starii hans að útbrciðslu guðs dýrðlega ríkis meðal sóknarmannanna. Sem geta má nærri, hlaut annar oins maður og Óberlín að mæta mótþróa á lífsleið sinni og andstreymi. Maður, sem cins og hann hafði sett sjer fyrir mark og mið, að umskapa sveit þá, þar sem drottinn hafði takmarkað honum verksvið, hlaut opt og einatt að koma við kaun manna Hann fjekk fyllilega að reyna það, að það er sjaldan þakklátt verk, að brjóta niður gamlar og rótgrónar venjur eða átelja gamla ósiði, sem eru eins og orðnir samvaxuir mönnunum. Lengi framan af höfðu ýmsir meðal Steindæla verið honum býsna óþjálir, haft hótanir í frammi viðhann, ogeinu sinni höfðu jafnvcl nokkrir þeirra ákveðið að gjöra honum fyrirsát, til þess að lemja á honum. Auðvitað voru það einkum ýmsir brota- limir meðal Steindæla, sem höfðu horn í síðu hans. En með kristi- legum viturleik og lipurð tókst honum á nokkrum árum að bæla niður allan mótþróa og afla sjer vináttu og virðingar allra Stein- dæla svo að segja. undantekningarlaust. En þá komu stormar að utan, sem hefðu getað ónýtt allar framkvæmdir hans í Steindaln- um, ef Óberlín hefði ekki verið sá maður sem hann var. Það var frakkneska stj ó rnarbyltingin. Framan af var Óborlín hlyntur þessari hreyfingu, því hann var af eðlisfari mjög frjálslyndur maður. sem áleit, að þjóðirnar sjálfar ættu jafnan að ráða sem mestu um sinn eigiu hag; en þeg- ar byltingarandinn fór út yflr takmörk liins rjetta, gat Óbérlín ekki annað en orðið hreyflngunni móthverfur í hjarta sínu. Þó vildi Óberlín reynast „valdstjórninni hlýðinn“, og jafnvel þá er lýðstjórnin árið 1794 bauð að loka öllum kirkjum og bannaði alt kristilegt guðsþjónustuhald í ríldnu, hlýðnaðist Óberlín þeirri skipun, sem auðvitað snart hann í fyrstu seni reiðarslag, en haun þóttist sjá það fyrir, að hann með mótþróa gjörði aðeins ilt verra. Aðeins í einu atriði gat hann ekki hlýtt skipunum lýðstjórnarinnar. Hann framdi skírn ungbarna í leyni, þótt hún væri harðbönnuð; en hjer áleit Óberlín, að „fremur bæri að hlýða guði en mönnum“. En þótt hann þannig að ýmsu leyti hlýðnaðist skipun lýðstjórnarinnar, höfðu mcnn á honum illan gruu, og þar kom að lokum, að hann var tekinn fastur í júlí 1794 og farin með hanu til Sijettustaða (Schlettstadt) í böndum. Bæjarstjórinn þar yfirheyrði liann í krók og kring, en þegar hanu heimtaði af honum, að hann afneitaði hinni kristnu trú, ncitaði Óberlín, eins og annar Polýkarpus, að hlýðuast slíkri skipun og mótmælti henni með svo mikilli einurð

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.