Verði ljós - 01.05.1897, Blaðsíða 1
MÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGAN FRÓÐLEIK.
1897.
MAÍ.
BLAÐ.
„I uppliaíi var orðið.“
(Sbr. J6h. 1, 1-14).
Eptir BÍera Valdimar Briem.
(|| upphafi var orðið fyrst,
það orð var guði hjá;
það játum vjer um Jesúm Krist,
er jörðu fæddist á.
Hið sanna lífsins Ijós var hann,
[tað ljósið skein svo bjart;
ei myrkrið ljóma þoldi þann
og það var dimt og svart.
Hann kom til sinna, kom með frið,
hann kom með líkn og náð;
en þeir ei kannast vildu við
síns vinar líknarráð.
En hver, sem tekur honum við
og hýsir drottin sinn,
fær níð og sigur, sæmd og frið
og síðast himininn.
Hann var það lífsins ljósið bjart,
er lýsir upp hvern mann;
en svo var manna myrkrið svart
að meðtók það ei hann.
Já, guðs son kom í hciminn hjer
og hann varð mönnum jafn,
að guðs börn aptur verðum vjcr
og vegsömum hans nafn.
Skín, heimsins ljós, um bygð og ból,
hell blessun yfir láð.
Ver öllum mönnum síblíð sól
og sannleikur og náð.
Hver var Jesús Kristur?
Eptir Thv. Iílaveness, söknarprest í Kristjaníu.
«III- [Nifturlag].
ð sania skapi sem hugsjón hins siðferðilega skýrist í sálu
mannsins, og hann sjer betur og betur, í hverju hin siðferðilega