Verði ljós - 01.09.1899, Page 1
MANAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGAN FRÓÐLEIK.
1899-
8EPTEMBER—OKT ÓBER.
9.-10. Bl.AB.
„Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrirtrúna, og það er ekki yður
að þakka, heldur er það guðs gjöf" (Efes. 2, 8).
iletrarkvcld.
Eftir J. E. Z e r 1 a n g.
----#—
ÆE björtu stjönmr blika
á bláum himingeim;
sem ótal augu lcvika
og oss þær benda lieim.
Þær skæru stjörnur skina
a5 skýjabaki þar.
Mér Ijóssins leið þær sýna
á landið sælunnar.
Pær ljósu stjörnur loga
með litabrigða-glans
á hvelfdum liiminboga
og halda geisladans.
Minn hugur hvarflar viða
og hvilist loksins þar
við hjartað hans hið bliða,
sem heimsins syndir bar.
Ó Jesú, blóm guðs barna,
þú bezta unun min,
vor lifs mins leiðarstjarna
og lýs mór heim til þin.
s». St.
------------------------
Jkipun og fgrirhcit konungsins JJJrists.
Héraðsfundarprédikun eftir séra Friörik Hallgrímsson á Útskálum.
Texti: Matt. 28, 16—20.
að eru konuugsorð, sem ég hefi lesið fyrir yður, kristnu vinir.
Það er konungleg skipun og konunglegt fyrirheit.