Verði ljós - 01.09.1899, Side 31

Verði ljós - 01.09.1899, Side 31
159 kærleiksríku og varaulegu á akri þjóðar siimar, — vonandi og biðjandi um tímanlega og andlega blessun hennar. Hlnn milcH nílttúrufræðingrur Charles Danvir. kemst svo að orði um lcristniboðið meðal heiðingja á Suðurhafseyjum: „Poir, sem loyfa sér að fara niðrandi orðum um starf heiðingjakristniboðsins, liafa gleymt oða látast ekki muna oftir þvi, að það hofir orðið til þoss að afnoma hér með öllu hryllilog mannblót, barnamorð og viðbjóðslegri lostasomi, en nokkurstaðar liefir gert vart við sig i heiminum annarstaðar, og að sviksemi. ógengd og óskamfoilni liefir minkað hér um alian helming siðan kristindómurinn fluttist hingað. Pað bor vott um hið smánarlegasta vanþakklæti, þogar ferðasöguhöfundarnir gleyma að minnast þossa. Henti það þessa rithöfunda að liða skipbrot við ókunnar strendur, mundu þeir vorða fegnir að grátbæna himininn um, að konning Jtristniboðanna væri þangað komin á undan þoim og búin að ummynda skap- ferli innbyggendanna". (For Kirke og Kultur 1898, V). Maríudýrkunin í rómversk-kutólsku kirkjuuni. Á siðastliðnu föstu- timabili sendi rómv. katólskur biskup á Saxlandi frá sór liirðisbréf um Mariu- hátíðir. I hirðisbréfi þessu or i fullri alvöru haldið fram sem sögulegum sann- leika hinni alþektu æfintýrasögu um hús Mariu meyjar, sem 10. mai 1201 átti að hafa borist í loftinu frá Gyðingalandi til Fiume við Adriahaf og þaðan að hafa verið flutt af englum yfir Adriahaf til Ítalíu (on i minningu þess er há- tið fyrirskipuð i katólsku kirkjunni 10. desember ár hvort). I hirðisbréfi þessu er svo að orði komist: „Hugsaðu til Mariu, ákallaðu Mariu i öllum hættum, í angist og efasemdum. Fylgir þú henni, ferð þú ekki villur vegar, beinir þú bænum þinum til hennar, getur þú ekki örvænt; hugsir þú til hennar, villist þú ekki; haldi hún i þig, fellur þú ekki; gæti hún þin, þarftu ekkort að ótt ast; leiði hún þig, verður þú ekki þreyttur“. Burt frá Bóm. í Austurriki hefir i seinni tið borið býsna mikið á frá- hvarfi frá liinni katólsku kirkju. í sjálfri Vinarborg er sagt, að alt að þvi 700 manns liafi horfið frá katólsku til mótmælondatrúar, og á einum og sama degi (14. mai i vor) voru i einni af kirkjum Vinarborgar 200 manns i einu teknir inn í hina evang. lút. kirkju. í Graz i Austurríki liafa síðan á nýári aHs 20G manns, 147 karlmenn og 59 konur, tekið mótmælendatrú. (Luthersk Kirketidende). Prestnfundur var haldinn á Blönduós næstliðinn 21. ágúst og komu þar saman 6 af prestum prófastsdæmisins (sóra Hjörleifur próf. Einarsson, séra Hálfdán Guðjónsson, séra Bjarni Jónsson, sóra Stefán M. Jónsson, séra Jón Pálsson og séra BjörniL. Blöndal). Prófastur setti fundinn moð ræðu út af Lúk. 12, 42.—43. Þar var rætt: 1. um sálgæzlu (séra Hálfdán innleiddi), 2. um altarisgöngur, 3. um uppfræðslu barna og fermingu, 4. um lestur lieilagrar ritningar, 5. um kröfur prestanna til nútimans (launakjörin) og 6. frikirkjumálið. Potta siðastnefnda mál taldi fundur þessi ótimabært og áloit að kirkjulegum málum væri bezt borgið á þjóðkirkj- unnar grundvolli.

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.