Verði ljós - 01.10.1901, Blaðsíða 5

Verði ljós - 01.10.1901, Blaðsíða 5
149 sáluhjálplega sannleika, tala knúðir af heilögum anda, og það engu að síður þótt þeim geti skjátlast i ýmsu því, er liggur fyrir utan kölluuar- svæði þeirra, — á sama hátt muu sá, er lieíir orðið var við sterkviðri guðs auda í orðum spámanuanna, eiunig víður í garnla testameutiuu finua það, sem hefir eilíft gildi og því hlýtur að vera opiuberað af guði, alt eins fyrir það, þótt hann hljóti að játa, að ekki sé þar alt jafngöfugt, jafnóskeikult og jafnfullkomið. Það er verk hinuar nýju biblíufræði, að hafa opuað augu vor fyrir mikilvægi spámannanna í Ísrael fyrir róttan skilniug á eðli hinnar guðdómlegu opinberunar í gamla testameutiuu. Fyrir það erum vér í mikilli þakkarskuld við liinar visindalegu biblíurannsóknir. Það er vist, að spámennirnir hafa lifað og starfað, — það er víst, að þeir liafa vituað fyrir samtíðarmöuuum sinum um „það, sem auga ekki sá og eyra ekki heyrði og ekki hefir upp komið í hjarta nokkurs manns“. og loks er það víst, að þeir hafi talað knúðir af auda, sem heimurinn þekkir ekki og vantrúin skilur ekki, en vór, sem trúum á Jesúm Krist, viður- kennum sem anda drottins. Látum því vísindiu rannsaka og prófa, látum þau kollvarpa ýmsuin af skoðunum vorum á gamla testamentiuu, látum þau taka Mósebæk- urnar frá Móse, sálmana frá Davið, orðskviðina frá Salómon, einu geta þau ekki kollvarpað: trú vorri á opinberun guðs í gamla testamentinu; hún stendur ásamt þcim, er hún veittist, og ritum þeim, er þeir hafa eftir-skilið oss, óhrakin af öllum vísindalegum rannsóknum, já meira en það, hún steudur nú á fastari fótum eu nokkru sinni áður. Eg fæ ekki betur sóð en að með þessu sé mikið unnið. Þvi að hiu guðdóndega opiuberun í gamla testameutinu er það sem alt er uudir komið og gildi gamla testamentisins stendur og fellur með. Þetta er þó ekki svo að skilja, að alt, sem lýtur að eðli þessarar opinberunar, só oss nú opið og augljóst; þvi að í vissu tiiliti hljóta spámeunirnir að vera oss óskiljaulegir. Alt líf er í insta eðli síuu leyndardómur; þannig er eiunig hið aiidlega líf i hjartadjúpi spámanusins oss hulinn leyndardómur; hvað þar fer fram, er audi guðs stígur niður í hjarta spámaunsins, vitum vér ekki; en það sem fram gengur af munni spá- mannsins segir oss, að eitthvað sé gengið á uudan í djúpi lijartans. Eins og hitinn segir mér, að eldurinn sé einhversstaðar nærri, þótt óg sjái hanu ekki, á sama hátt segir vitnisburður spámannsins, er liann grípur samvizku mfuá, dæmir lijarta mitt, opinberar hugsanir þess og hugrenningar, að guðs andi liafi áður vitnað fyrir anda spámannsins, hafi blásið honum í brjóst það, sem hann segir mér um veru guðs og leyudarráð, svo að orð liaus séu meira en manna orð, þ. e. birti mér guðlega opinberun. Og þó er orð spámannsins, þrátt fyrir hið margítrekaða „svo segir drottinn11, ekkú guðs orð eingöngu, heldur guðs orð í umbúðum

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.