Verði ljós - 01.10.1903, Page 5
VERÐl LJÓS!
149
allviða orðuar fátækar að þeirri fegurð, sem listiu ein fær skapað —
og þá ekki sizt hin kirkjulega guðsþjónusta! 4>etta þarf að breytast.
Og afstaða mannanna til listariunar þarf líka að breytast. Hvað eigum
vér kristnir meun þá að gera? Hið fyrsta er þetta: að láta ekki þær
listir, sem bafa yfirgefið braut bins sanna og góða, og þá um leið bius
fagra, fá vald yfir oss, svo að þær hafi áhrif á oss. Því næst ber oss
að vinna að þvi af alefli, að slíkar listir nái ekki að hafa áhrif á aðra.
Og loks ber oss að efla og glæða bjá sjálfum oss lifandi ást á öllu
því, sem er sannarlega fagurt, bvaða tegundar sem er.
Þá er skip Odyssevs forðum bar að ey Sírenanna, binna raddfögru
söngineyja, er seiða menn til bana með söng sinum, þá drap hann vaxi
í eyru allra förunauta sinna, en sjálfur lét haun þá reyra sig við siglu-
tréð með opin eyrun, svo hann mætti blýða á sönginn. —
Það mætti ef til vill drepa í eyru æskulýðsins til þess að varna
þvi, að hann blýði á söng Sírenanna, en þó væri betra að þeir væru
bundnir líkt og Odyssevs, þeim böndum, að þeir gætu staðið fastir
fyrir án þess að seiðast af söngnum. En bezt væri þó, ef örvar Apollós
gætu, iíkt og forðum, orðið Síreuum vorra tíma að bana. Satt er það,
að vér getum ekki sjálfir knúð fram sönn andans mikilmenni. Þau
koma sem só ávalt eins og hann, sem öllum mönnum er meiri, í fyll-
ingu tímans, — en vér getum unnið að því að slík fylling tímans
renni upp.
Baráttan milli heilagrar listar og vanheilagrar mun, eins og bún
hefir staðið liingað til, halda áfram hér á jörðu alt til efsta dags. Þá
mun hin heilaga list bera sigur úr býtum. Guð gefi að vér vildum
allir taka þátt í þeirri baráttu, og mættum þá um leið ávalt stauda
róttu megin.
[Grein sú, er hér for á undan, or að mestu leyti dagblaðsútdráttur úr fyrir-
lestri, er danskur kjörsafnaðarprestur Karl Povlsen i Ryslinge, oinn af ágæt-
ustu mönnum af flokki Grundtvigssinna, flutti 4 norræna stúdentafundinum i
Sórey i sumar. Stóð þossi dagblaðsútdráttur i „Kristoligt Dagblad11].
M krisiilcga siúdGniafundinum íiórcg.
Eftir Bjarna Jónsson stúd. tlieol. í Khöfn.
[Niðurl.J Mánudaginn 20. júlí, að aflokinni morgunbænagjörð og
biblíulestrum, flutti Karl Povlsen, kjörsafnaðarprestur i Ryslinge
fyrirlestur um „afstöðu kristins manns við hið fagra“, liinn ágætasta 1
sinni röð, og Natauael Söderblom, prófessor, annar um „nútíðar-
mentun og kristilegan iunileika“.