Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Qupperneq 12
84 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. hún skildi sjálfa sig og líf sitt — í aðalatriðun- um að minsta kosti. En það var kannske ekki nóg------og það gat engu spilt í rauninni, þó að hún hugsaði um þau atriði, sem voru henni ekki vel ljós, og reyndi að komast inn í þau — inn að sannleikskjarna þeirra. Og þessvegna gat hún reyndar látið þetta eftir sér með góðri samvizku, úr því að heimilisstörfin voru farin að verða henni léttari og barnastríðið minna. Yngsta barnið var nú á fjórða ári, og það var eitthvað annað enn á meðan hún hafði þau á höndunum, aumingjana litlu. — Rorgerður brá hárfléttunum fram fyrir höfuðið og skoðaði aðra þeirra vandlega um stund: «Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimml', Hún taldi gráu hárin og brosti dauflega.« — »Eg held eg sé bráðum orðin kerling.» — Hún horfði nú aftur út í vorlífið um stund — hún hafði ekki gefið því verulega gaum, meðan minningarnar streymdu fram og drógu hana til sín. Ó, hvað kvöldið var fallégt núna, og fjörðurinn hennar, fjöllin og sveitin bros, andi björt —alveg eins og í fyrri daga! En var hún sjálf eins og í, fyrri daga? — Nei, auðvitað ekki. Ró hafði hún enga ástæðu til að kvarta. Til hvers hafði hún þá kornið hingað í dag? Var það bara til þess að sjá vorið heima, eða var hún að leita að einhverju öðru? Hún hafði talið sér trú um, að hún hefði farið að finna sjálfa sig á æskustöðvunum, eða eitthvað : þá áttina. Var það ekki annars hlægilegt? Og til hvers hafði hún þá gert það, og hversvegna hafði hún leiðstút í það þarna á hjallanum sín- um gamla, að rifja upp fyrir sér æfi sína eftir það, er hún fór að heiman? Og' aftur hvarflaði hugurinn að sömu liugs- uninni sem áður: að hún hefði öll þessi ár verið að leita að einhverju, sem hún vissi ekki, hvað var —ef til vill að sjálfri sér. Og enn þá var hún víst að leita að þessu. Og hún fann það aftur og sannfærðist aft- ur uin það í bráðina, að þetta hefði verið henni þörf —þörf, sem smámsaman hefði verið að skapast. Og enn þá brá því fyrir í huga hennar, að altaf hefði leitin orðið ákafari, eftir því sem árin liðu. Akafari! — nei, áköf hafði hún aldrei verið. En gat það annars verið hugsanlegt, að hún væri að leita að sjálfri sér, — var hún þá týnd kannske fyrir Iöngu? Nei, þetta var alt einhver óskiljanleg heimska. Ef til vildi mátti nú færa þetta til sanns vegar. Hún hafði eiginlega verið að leita að ráðgátum í lífi sjálfrar sín. En var hún þó að nokkru nær —hafði hún koinizt að nokkurri niðurstöðu? Eða var öll þessi hugsanaþvæla hennar bara til þess að gera þessar ráðgátur enn þá ramflóknari? Henni lá við að sannfærast alveg um, að svo væri. Og hana langaði til að heita sjálfri sér því að hætta alveg að hugsa um þetta. En hún vissi, að það var ekki til neins, — þær voru nú orðnar svo áleitnar, þessar hugsanir, og komii alt af aftur. Helzt leit út fyrir, að þetta ætti að verða regluleg barátta. Hún fann það enn þá einu sinni, að margt var það í lífi hen iar, sem luin skildi ekki— jú, aðalatriðiu kannske — en liitt þurfti líka að skiljast. Henui varð það Ijóst, að hún mundi ekki verða í rónni íyr en hiín fengi svör. Ur því svona var komið, þurfti hún að fá ákveðna niðurstöðu. Reyndar hafði Inín enga ástæðu til að kvarta. Einhver óljós grunur —einhver dulin spurn- ing læddist alt af inn í hug hennar, fálmaði um sál hennar og leitaði upp snögga blettinn, og þó skaut hún ósjálfrátt þessum skildi fyrir til hlífðar, þessum orðum, sem hún hafði haft yfir hvað eftir annað í hálfum hljóðum. — Rorgerður hafði setið þarna lengi. Sólin var komin lágt á loft, en veðrið var blítt eins og áður. A fjallstindana í suðri sló bleikum roða, yndisfögrum að sjá, gegnum móðublám- ann. En hrikafegurð vesturfjallanna dökknaði meir og meir. Og helgiblær hvíldarinnar með kvöldinu færðist yfir vorið, sem lagði sig út- af rólegt og óttalaust, meðan júnísclin stóð á verði. —

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.