Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Blaðsíða 22
94
NÝJAR KVÖLDVÖKUR.
' þrlgg'ja vikna ofviðri, og misti fjögur af skip-
um sínum; þar fórst Díaz, er fyrstur fann höfð-
ann. Loksins komst hann alla leið austur til
Kalikút, en þá voru ekki orðin nema 6 eftir
af skipum hans. Hitti hann keisara að máli,
og færði honum bréf f;á konungi sínum, ritað
á arabísku,. og fór vel á með þeim. Kabral átti
að kaupa þar vörur fyrir gull og silfur, en til
þess þurfti hann geymslustaði, og leyfði keisari
honum að reisa kaupang (Faktori), og var hitin
altilegasti. En kaupmennirnir arabisku spiltu öll-
um málunum með rógi sínum áður en kaup-
angurinn var reistur að fullu, ait fór í þverúð
með Portúgalsmöunum og landsbúum; Arab-
arnir æstu þá upp, bönnuðu þeim að selja þeim
kryddvörur, og loksins gerði skríllinn aðsúgað
þeim, drap nokkra menn af þeim, tók hús
þeirra, og Kabral varð að hrökkva undan út
á skip sín. Petta var um miðjan desember.
Kabral hefndi þessa tiltækis grimmilega, brendi
nokkur indversk skip og skaut að síðustu á
borgina í tvo daga. Hélt þá Kabral til ann-
ara borga þar á ströndinni, er voru og miklir
verzlunarbæir, bæði Kotsjin og Kanaróe. Kon-
ungar þar voru skattskyldir undir keisara, en
lék öfund á ríki hans, og tóku því Kabral
með mestu dáleikum, og létu hann fá vörur
sem hann vildi. Síðan hélt hann heiin, misti
eitt skip á leiðinni, en komst slindrulaust að
öðru leyti. En nú var fullséð, að verzlunin við
Indlöndin gat því að eins þrifizt, að nægileg-
ur herafli væri við hendina, enda lenti skjótt
í alvarlegum skærum við landsmenn.
Arið 1501 voru sendir þrír flotar í einu,
22 skip alls, til Indlands, og var Vascó da
Gama fyrir einuin þeirra. Keisari fékk pata af
ferð þeirra áður en þeir komu, og var ekki
rótt. Óðara en sást til þeirra, sendi keisari
skrautskip út á móti þeim með friðarfána, en
Gama vildi hvorki heyra þá né sjá, því hanu
réði í það sem var, að þetta væri að eins prett-
ur einn, til þess að draga tímann á meðan
þeir væru að vígbúast á landi. Síðan heimtaði
hann skýlaust svar um það, hvort verzlunar-
samningur yrði leyfður og kaupangur mætti
reistur verða að nýju, en því var engu gegnt.
Pá lét da Gama taka 50 landsbúa hernuma þar
við strendurnar og hengja þá í reiðanum á
skipum sínum, höggva siðan af þeim hendur
og fætur, safna þeim í körfur, og senda síðan
alla hrúguna í land til keisara; lét hann þau
boð fylgja með, að hann ætlaði honum sjálfum
sömu skil fyrir svik hans og undirferli. Pegar
morguninn eftir lét hann skothríðina dynja á
bænum; hrundi þá fjöldi húsa, og keisarahöll-
in varð eitt rústarbæli. Eftir þessi afreksverk
létti hann akkerum og sigldi til Kotsjín, og
tók konungur honum hið bezta, gerði við
hann verzlunarsamning og gaf honum dýrindis
gjafir. Síðan sneri hann til Kalikút aftur, en
mætti þá herflota keisara á leiðinni; hafði hann
verið gerður út til þess að lækka rostann í da
Gama, Gama réðst þegar á flotann, skaut sum
skipin í kaf og tók hin hernuma. Pau voru
flest arabisk, og var á þeim slíkt ógrynni af
gulli, perlum og ginisteinum, að j.>að marg-
borgaði ferðina. Paðan sigldi Gama til Kana-
róe, og gerði þar líkan samning og í Kot-
sjín, lét þar eftir herforingja einn með nokkru
liði, en fór sjálfur heim með skipin, og náði
heimrétt fyrir jólin 1503; tók konungur hon-
um hið bezta og hóf hann til greifatignar.
Aður en Gama kom heim, hafði Fransiskó
Albúquerque lagt af stað til Indlands með 7
skip; hann kom mátulega, því að keisari hafði
þá svo krept að konunginum í Kotsjín, aðhann
varð að flýja út í kastala á ey einni skamt frá
landi. Portúgalsmenn settu hann þegar í sæti
sitt aftur, og leyfði hann þeim að reisa kastala
á ströndinni í þakkarskyni. Kastalann nefndu þeir
Fori Santjagó, og varð það hin fyrsta nýlenda
þeirra. Síðan sneru þeir heimleiðis aftur, en
létu þar eftir mann, Pereira að nafni, með 3
skipum og lóO manns. Pereira var hin mesta
hetja, enda hefði fáuni verið hent að vera þar
í hans sporum. Rétt þegar Albúquerque var
nýfarinn, kom keisarinn í Kalikút með allan
her sinn bæði á sjó og landi; voru það 70
þúsundir manna með 400 liðsmannabyssur og
380 fallbyssur. En konungurinn í Kotsjín hafði