Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Blaðsíða 3
Flink merkisberi. Saga úr F*rjátíu-ára-stríðinu. Eftir Loðbrók. (Framhald). XIII. Krókur á móti bragði. Gústaf Aðólf tafði ekki lengi hjá Ingolstadt. Kjörfurstanum tókst- að strjúka úr víginu, og þegar konungur fjekk vitneskju um þetta, þótti honum ekki svara koslnaði, að dveljast þar lengur með herinn, og ekkert upp úr því að baía annað en tímaeyðslu og mannatap. Enda var augljóst, að vígið mundi geta síaðist enn ^nargra mánaða umsátur, ef þá nokkur von var Þess, að hægt væri að yfirvinna það. Aður en langt um leið, var konungur kom- lnn til Múnchen. Pað var um miðjan maí- niánuð. Þegar konungur hjelt innreið sína í borgina, fy'gdu honum ýms stórmenni. Þar voru greif- ar og hertogar og aðrir höfðingjar, auk margra frægra hcrshöfðingja. Þótt konungur væri mjög fábrotinn í klæðaburði og í allri umgengni Iáí- laus og jafnvel alþýðlegur, unni hann því þó rojög. að hafa í fylgd sinni ligna menn og gera athöfn, eins og þe;sa, sem glæsilegasta. Jeg held, að einmitt fábreytni hans f klæða- burði og óvenjulegt látleysi í fiamgöngu, af konungi að vera, mitt í glæsilegri fylgd tiginna nianna og í konunglegu umhverfi, hafi valdið niestu um, að alþýðan í bæjunum, sem gáfust a vald konungi, Ieit upp til hans eins og lausn ara síns og tignuðu hann miklu fremur sem guðdóm sinn en mannlegan konung. Jeg hefi þó grun um, að önnur ástæða hafi jafnframt legið á bak við þessar glæsilegu inn- reiðir konungs í borgirnar, þótt hann Ijeti hana ekki uppi við neinn. Inst í hjarta sínu hefir hann horít á keisarakórónuna, sem ef til vill fjelli í skaut honum að ófriðnum loknuin og að fullum sigri. Hann mun llafa ætlað sjer að venja Þjóðverja við það, að skoða sig sem voidugan stjórnara, til þess að þeir yrðu minna undrandi og óánægðir, þegar hann tæki við keisarakórónunni ai fráfarandi keisara þeirra. Pó efast jeg ekki um, að fyrst og fremst barð- ist Gústaf Aðóif fyrir hinu góða málefni sjálfs þess vegna, en ekki af eigin hagsmunum. Daginn sem konungur hjelt innreið sína í Múnchen, var hann óvenjulega kátur og glað- legur. Margt kýmnisorðið flaug af vörum hans og var þeim lengi haldið á lofti af þeim, sem heyrðu þau. Konungurinn var búinn að fara um alla kjör- furstahöllina og vísaði honum veg aldraður hallarvörður. Úti fyrir stóðu liðsforingjar kon- ungs, og var jeg svo heppinn, að ná stöðu skamt frá hallardyrunum. regar kontmgur kom út úr höllinni, heyrði jeg hatm scgja við hall- arvörðinn: »Segið mjer eitt. Vitið þjer hvað hann hjet 5

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.