Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Side 8

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Side 8
38 NÝJAK KVÖLDVÖKUR. opnsði vagnhurðina og bauð munknutn að stíga inn. • Hennar hátign, drotningin, er inni í vagn- inum,* sagði hún. Án þess að láta bjóða sjer tvisvar, steig munkurinn inn í vagninn og settist við vinstri hlið mjer. Karin lokaði vagnhurðinni, steig upp í ökusaetið og svo hjelt vagninn af stað aftur. Strax og vagninn byrjaði að hreyfast, hóf munkurinn máls við mig: »Göfuga drotning!* sagði hann með væmn- um, ísmeygilegum málróm. »D:ottinn launi yður góðvild yðar og hjálpfýsi, sem þjer sýnið í því, að verða við bænum aumingjanna. Jeg get fullvissað yður um, göfuga drotning, að heimilið, sem jeg hefi þann heiður að vísa yð- ur veg til, er fremur öllum öðrum þurfandi miskunnar yðar. Meiri eymd og volæði mun tæpast vera lil í allri borginni, en þó um leið hvergi meiri guðsótti og góð trú, og hefi jeg aldrei fyrirhitt jafn guðelskandi fólk og hefi jeg þó farið víða og margt sjeð. Jeg get . . . En nú man jeg eftir því, að jeg gleymdi að segja ökumanninum, hvert ferðinni væri heitið.« Um leið og hann mælti þelta, ætlaði hann að teygja sig út um vagngluggann til þess að gefa skipun um, hvert halda skyldi. Þá lagði jeg hendina á öxl honum og mælti: »Þess gerist ekki þörf, Úlrik Apfelbaum. Ökumaðurinn veit, hvert halda skal.« »Hva-a!c í þessari upphrópun þorparans Iá alt það, sem hann fann til þetta augnablik, þegar hann vissí, að hann hafði verið gabbaður og lent í snörunni. Reiði, ótti og örvinglun skein út úr þessu eina orði. En svo spratt hann upp og rjeðist á mig eins og örvita maður. En jeg var viðbúinn þessu áhlaupi og tók á móti. Enda hafði jeg alt að því tvöfalda burði á við hann. Það var ekki nema augnabliksverk fyrir mig, að hrisla rýtinginn úr hendi hans og setja hann niður á vagnsætið. Þar hjelt jeg honum föstum, og hversu sem hann reyndi að losast, hepnaðist honum það ekki. »Þú ert að kæfa mig!« stundi hann ráðþrota. »Gerir ekkert til. Þá get jeg sparað mjer það, að láta hengja þig.« »Hvert ferðu með mig og hvað ætlarðu fyrir þjer með mig?« >Sje þjer utnhugað um að vita það nú, skal jeg segja þjer, að úti fyrir borgarhliðinu vex stórt trje. Þangað ætla jeg með þig og þar ætla jeg mjer að hengja þig. Einu sinni bauðst þú mjer bál og brennu. Jeg hefi ekki ráð á, að búa þjer svo veglegan dauðdaga. Jeg vona aðeins, að þú verðir mjer þakklátur fyrir það, setn jeg get þó látið þjer í tje. Og það segi jeg í fullri alvöru.« Vagninum var nú ekið út um borgarhliðið. Eitt augnablik fjell birta frá upplýstum herskál- arium inn um vagngluggann, svo að jeg sá í andlit Úlriks Apfelbaums, sem var ummyndað af örvæntingu. Við hjeldum enn nokkurn spöl áfram áður en vagninn nam staðar. En þá vorum við komin á áfangastaðinn. Það leið nokkur stund áður en allur við- búnaður ti! aftökunnar var fullkomnaður. En þegar alt var tilbúið, fjell snaran um háls bóf- ans og hann var dreginn upp í sterka grein á trjenu. Við biðum ekki þess, að vera viðstödd dauðastríð þessa glæpamanns, en hröðuðum okkur af stað í þeirri fullu vissu, að svo vel væri nú saumað að Úlrik Apfelbaum, að hann ætti aldrei framar.kost á að leggja steina í götu satnferðamanna sinna. Við höfðum þó ekki farið nerna spottakorn áleiðis, þegar Hans nam staðar með vagninn. »Hvað er að?« kallaði jeg til hans. »Mjer heyrðist vera hlegið hæðnislega við tijeð, sem við hengdum Úlrik Apfelbaum upp í.« »Hvaða vitleysa.« »Mjer heyrðist þetta líka,« mælti Karin. Og í sömu svifum heyrði jeg hófadyn, sem fjar- lægðist. Jeg fjekk grun um, að ekki væri alt með feldu og kallaði til Hans: »Við verðum að stiúa aftur.«

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.