Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 83 stóð löng grein, þar sem mjer var líkt við Aeschyllas og Shakespeare í sameiningu, bókin talin vænleg og merkileg og stóð fangamark Davíðs Mc. Whing undir greininni. Mig lang- aði til að lúberja þeanan lærða Skota, sem auðvitað hafði þegið mútur. Og sama kvað við úr öllum áttum. Jeg var kallaður >snilling- ur nútímans« — >vonarstjarna komandi kyn- slóða« — besti, fyndnasti og fjölhæfasti rit- 'nöfundurinn, sem nokkurn tíma hefði dýft penna í blekbyltu — og auðvitað hafði Mc. Whing »uppgötvað« mig! Ressi fimm hundr- uð pund, sem gengu til »velgerðastofnunar« hans, höfðu skerpt svo mjög hans andlegu sjón, að hann sá mig skína skært á bókmenta- himninum löngu áður en nokkur annar kom auga á mig. Blaðamennirnir fetuðu auðsjáan- Iega í »fótspor« hans, því að enda þótt þeir — að minsta kosti ensku blaðamennirnir — þiggi engar mútugjafir, þá sjá þó blöðin sjer altaf hag í álnarlöngum auglýsingum. Auk þess tóku aðrir bókmentaskörungar að senda mjer þessar greinar, þegar Mc. Whing fór að geta um »uppgötvun« sína á þann dul- arfulla hátt, sem honum var eiginlegur. Jeg skildi hálfkveðna vísu — skrifaði þeim um hæl, þakkaði þeim fyrir og bauð þeim til mið- dagsverðar — einn þeirra orti Iofdrápu um mig seinna — og þegar við stóðum upp frá borðum, sendum við tvo af þessum speking- um, sem voru orðnir þjettkendir, heim til sín, Ijetum Amíel fylgja þeim og hjálpa þeim út úr vagninum við götudyr þeirra. Fiægð mín fór dagvaxandi og London fór að »tala« um mig, eins og jeg hafði sagt, að hún mundi gera. Þessi gríðarmikla höfuðborg skrafaði um mig og bókina mina á sinn ein- kennilega og hispurslausa hátt. »The upper ten« gengu í lestrarfjelögin, en þau fengu ekki nema tvö eða þrjú hundruð eintök til að full- nægja eftirspurninni. Þetta urðu þau samt að •áta sjer nægja, og ljetu fjelagsmenn bíða í fimm eða se\ vikur þangað til að þeir þreylt- ust að spyrja eftir bókinni og gleymdu henni svo alveg. Annars kærðu lesendur sig lítið um mig, að Iestr2rfje'ögunum undanskildum. Eftir öllum auglýsingunum að dæma, skyldu menn hafa ætlað, að allir, sem vildu »teljast með mönnum,« væru sólgnir í þessa »framúrskar- andi ritsmíð,« en svo var þó eklci. Menn mint- ust á mig sem hinn »mikla miljónara,« en þeir skiftu sjer ekkert af tilraunum þeim, sem jeg gerði til þess að afla mjer álits í bókmenta- heiminum. Vana kveðjan, hvar sem jeg kom, var þessi: »Pjer hafið samið skáldsögu, er það ekki? Pað er merkilegt uppátæki af yðurU og svo hlógu þeir. »Jeg er annars ekki farinn að lesa hana enn — get varla gefið mjer tima til þess — jeg verð að fá hana í Iestrarfjelaginu.« Auðvitað voru þeir margir, sem aldrei spurðu eftir henni, með því að þeir hjeldu, að hún væri ekki þess virði að eyða tíma sfnum til þess að lesa hana. Jeg hafði fengið hin bestu meðmæli í blöðunum, bæði fyrir tilstyrk pen- inga minna og áhrif Rímanez, en samt komst jeg að því, að almenningur les aldrei með- mæli eða ritdóma. Nafnlausa greinin mín um bókina eftir Mavis Clare gerði henni því ekkert mein, þó að henni væri haldið á lofti í tíma- ritinu. Það varð árangurslaus árás, því að allir litu upp til þessarar konu eins og einhverrar æðri veru, allir gleyptu bók hennar í sig, dáð- ust að henni og hún seldist þúsundum saman, enda þótt hún hefði engin meðmæli eða skrum- auglýsingar við að sfyðjast. Engan grunaði, að jeg hefði skrifað þessa grein, sem jeg nú skal játa að var ekkert annað en skammarlegur út- úrsnúningur og hártoganir — engan nema Rímanez. Tímaritið, sem greinin stóð í, var eitt með stærri tímaritunum og mátti sjá það í öllum klúbbum og lestrarfjelögum. Einu sinni tók Rímanez tímarit þetta og fann greinina undir eins. • Retta hafið þjer skrifað,« sagði hann og leit á mig. »Það hlýtur að hafa verið yður sannarlegur Ijettir.* Jeg svaraði honnm engu. Hann hjelt áfram að lesa greinitia og mælti ekki orð frá munni. Því næst lagði hann tíma- ritið frá sjer og horfði forvitnislega á mig. n.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.