Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Qupperneq 6

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Qupperneq 6
84 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Sumir menn eru svo gerðir,« sigði liann, »að ef þeir hefðu verið í örkinni hans Nóa, sem sagt er frá, þá hefðu þeir skotið dúfuna með olíuviðarlaufið í nefi sjer, þegar þeir sáu hana svífa yfir vötnunum. Þjer eruð einn þeirra manna, Geoffrey!* »Jeg finn ekki merginn í þessari eflirlíkingu,« sagði jeg. »Finnið þjer hann ekki? Hvað hefir þessi Mavis Clare gert yður? Pað stendur alt öðru- vísi á fyrir yður. Þjer eruð miljónari, en hún vinnur baki brotnu og er algerlega bundin við ritstörf sín, til þess að geta haft i sig og á, en þjer, sem ekki vitið aura yðar tal, gerið samt alt sem þjer getið til þess að hnekkja atvinnu hennar. Er yður nokkur sómi að því? — og jafnvel þótt yður falli bók hennar ekki í geð, þá þurfið þjer samt ekki að viðhafa móðgandi orð um hana sjálfa, eins og þjer gerið í þessari grein. Pjer þekkið hana alls ekki — hafið aldrei sjeð hana — —« »Jeg hata þessar blásokkur, sem eru að fást við ritstörf,« svaraði jeg. »Vegna hvers? Vegna þess, að þær geta sjálfar haft ofan af fyrir sjer? Viljið þjer, að þær sjeu allar þrælbundnar við fýsnir karlmanns- ins og ástríður? Pað er óskynsamlegt, kæri Geoffrey. Ef þjer viljið játa að þjer sjeuð öf- undsjúkur gagnvart þessari konu og getið ekki unt henni frægðarinnar, þá skil jeg yður, því að öfundin er reiðubúin að heimta líf manns, bæði með rýtingnum og pennanum. Jeg svaraði engu. »Er bókin svona auðvirðileg, eins og þjer lýsið henni?« spurði hann eftir stundarkorn. »Jeg býst við að sumir dáist að henni,« svaraði jeg ólundarlega, »en jeg geri það ekki.« Petta var nú ekki satt og það vissi hann auðvitað. Jeg fann til megnustu öfundar út af þessu riti Mavis Clare og það eitt út af fyrir sig, að Sibyl Elton hafði lesið bók hennar áður en henni datt í hug að líta á mína bók, dró auðvitað ekki úr þeirri öfundsýki. »Nú-jæja,« sagði Rímar.ez brosandi, þegar hann var bú'nn að lesn g'e’n mína á enda. »Jeg segi ekki annað en það, að þetta gerir Mavis Clare ekki minstu vitund. Pjer hafið ekki hitt markið, kæri vin! Lesendurnir segja bara: En sú forsmán! og sækjast eftir bók hennar nreira en nokkru sinni áður. Og hvað har.a sjálfa snertir, þá er hún glaðlynd að eðl- isfari og hlær bara að þessu. Pjer verðið endi- lega að kynnast henni við tækifæri.« »Jeg hefi enga löngun til þess,« svaraði jeg. »Má vel vera, en þjer komist varla hjá því, þegar þjer seíjist að á Willowsmere Court.« »Pað ber engum skylda til þess að kynnast öllurn nágrönnum sínum,« sagði jeg. »Yður lætur sannarlega vel að vera auðug- ur,« svaraði hann. »Pjer fylgist vissulega með tímanum, þegar þess er gætt, að ekki er ýkja langt síðan að þjer voruð umkomulaus rithöf- undsgarmur, sern ekki áttuð eyris virði! Ef einn maður öðrum fremur vekur undrun mína og aðdáun, þá er það sá maður, sem lætur aðra kenna rækilega á auðvaldi sínu, og hreyk'v sjer eins hátt og hann gæti mútað sjálfum dauðanum og keypt sjer góðvild skaparans. Slík og þvílík dæmalaus frekja og hroki! — Pótt jeg sjálfur sje auðugur og meira en það, þá er jeg einhvern veginn svoleiðis gerður, að jeg get ekki borið auðinn utan á mjer — jeg heimta gáfur ekki síður en gull — og hugsið þjer yður það, að á ferðum mínum víðsvegar um heiminn hefir mjer hlotnast sá sómi, að vera álitinn fátækur. Slíkt getur aldrei hent yður — þjer eruð auðugur og berið það líka með yður!« »En þjer!« sagði jeg með talsverðum ákafa. »Vitið þjer, hvað skín út úr yður? Pjer segið að jeg beri ríkidæmið utan á mjer, en vitið þjer, hvað skín úr augnaráði yðar, úr sjerhverri hreyfingu yðar?« »Nei, það hefi jeg enga hugmynd um,« svar- aði hann brosandi. »Fyrirlitning á okkur öllum!« svaraði jeg. »Takmarkalaus fyrirlitning — jafnvel á mjer, sem þjer kallið vin yðar. Jeg segi yður það í einlægni, Lúcíó, að stundum finst mjer að þjer

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.