Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Blaðsíða 7
NÝAR KVLDÖVOKUR. 85 fyrirlítið mig, þrátt fyrir ailan okkar kunning- skap, og jeg get hugsað, að þjer gerið það- Rjer ertið fágæt persóna og óvenjulega fjöl- hæfur og vel gefinn, en þjer getið ekki búist við að allir menn sjeu jafn ósnertanlegir, jafn kærulausir um líðanir náungans eins og þjer,« Hann hvesti á mig augun. »Búist við?« sagði hann. >Jeg býst alls ekki við neinu — af þessum manneskjum, kæri vin. Þvert á móti eru það manneskjurnar — að minsta kosti þær, sem jeg þekki — sem búast við einhverju af mjer — og þær fá það líka, oftastnær. Og hvað það snertir, að jeg fyrirlíti yður — nú, hefi jeg ekki margsinnis sagt, að jeg dáist að yður? Og það geri jeg sannar- lega! Mjer finst það undravert, hve íljótt þjer náið hátindi frægðarinnar, upphefð og met- orðum.« »Frægð!« svaraði jeg gremjulega. »En hvern- ig hefi jeg öðlast hana og hvers virði er hún?« »Það er alt annað mál,« svaraði hann. »Ó- sköp tná það vera leiðinlegt fyrir yður, Geof- frey, að hafa svona viðkvæma samvisku. — Pað er auðvitað, að engin frægð er sjerlega mikils virði nú á dögum. — Nú er engin fornaldar- frægð, heldur hjeraðasamur heiður. En frægð yðar á fullan rjett á sjer, sjeð frá almennu við- skiftasjónarmiði og frá því einu líta allir á alt. Pjer verðið að minnast þess, að enginn gerir neitt af ósjerplægni nú á dögum — það mál- efni er ekki til, sem ekki á dýpstu rætur sínar í eigingirninni, hversu gott og göfugt sem það kann að sýnast. Hafið þetta hugfast og þá mun yður skiljast, að þjer hafið öðlast frægð yðar á fullkomlega heiðarlegan hált. Pjer hafið ekki »mútað« hinum ómútanlegu ensku blöð- um — það gátuð þjer ekki. Pað væri líka ómögulegt, því að þau eru hrein og óflekkuð °g byggjast á stórheiðarlegum grundvallarregl- um. Pað blað er ekki til á Englandi, sem tæki við þóknum fyrir meðmælagrein — ekki eitt einasta!« — Hann glolti háðslega. »Nei, það eru bara útlendu blöðin, sem eru svo spilt — eða svo segja ensku blöðin. John Bull horfir með ógn og skelfingu á þá blaðamenn, sem vegna fátæktar s:nna teyna að kría sjer út e'n- hverja aukagetu með því að lofa eða lasta ein- hvern eða eitthvað. Hann hefir ekkert af slík- um blaðamönnum að segja — hamingjunni sje lof. Blaðamenn hans eru »dygðum prýddir« og vilja heldur sætta sig við eitt pund á viku en þiggja tíu fyrir »að gera einhverjum greiða.« Vitið þjer, Geoffiey, hverjir verða hinir fyrstu rjettlátu, sem svífa til himins með söng og básúnuhljómi á degi dómsins?« Jeg liristi höfuðið, hálfgramur og háifánægður. »Jú, það verða allir ensku blaðamennirnir — ekki þeir útiendu,« sagði Lúcíó hátíðlega, »og vegna hvers? — Vegna þess, að þeir eru svo góðir, svo rjettlátir og svo hleypidóma- lausir! Hinir útlendu stjettarbræður þeirra fara allir til Helvítis — en Bretarnir ganga fagn- andi um gullin stræti og syngja Hallelúja! Jeg segi yður satt, að jeg skoða yfirleitt enska blaðamenn sem ráðvendni og rjettvísi — þeir ganga næst klerkdóminum sem verðir dygð- anna og haldendur hinna þriggja múnkaheita: að lifa í fátækt, skírlífi og auðsveipni.* Augu hans tindruðu af naprasta háði og hjelt hann svo áfram: »Pjer megið vera ánægður, Geof- frey,« sagði hann. »Pjer hafið unnið yður til frægðar á heiðarlegan hátt og það er aðeins fyrir mínar aðgerðir, að þjer hafið komist inn- undir bjá ritdómara, sem skrifar í eitthvað tuttugu tímarit og hefir vald yfir öðrum ritdómurum, sem skrifa í önnur tuttugu. Nú-nú! Pessi rit- dómari er heiðarlegur* og ráðvandur maður — eins og allir ritdómarar, og hefir yndi af því að rjetta bágstöddum rithöfundum hjálparhönd, og þjer verðið að játa, að það er gott og göf- ugt starf. Jeg skrifaði mig — af einskærri mann- úð — fyrir fimm hundruð pundum til þessarar »líknarstarfsemi«. Herra Mc. Whing varð tnjög hrifinn af þessu göíuglyndi mínu og ætlar nú að »gera mjer jajenustu« í staðinn. Ritstjór- ar blaðanna, sem hann skrifar í, álíta hann hygginn mann og skynsaman, og þeir vita ekkert um þessa »líknarstarfsemi« og ekki held- ur um ávísunina, og þess gerist heldur engin þörf, að þeir viti neitt um það. Pessu er öllu

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.