Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 11

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 11
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Ö9 Pjeíur Simple. Eftir kaptein Marryat. (Framh). Rað er því ekki að orðlengja það, að jeg sendi heim hvern einasta tuskilding, að undanskildum málanum mínum, sem var rúm 30 pund. Og aldrei á æfi minni hefir mjer verið Ijettara í skapi, en þegar jeg var búinn að koma pen- ingunum í póst og var laus við þá. Jeg skrif- aði föður mínum nokkrar línur með pening- unum og voru þær á þessa leið: Háttvirti faðir! Síðan fundum okkar bar saman, sællar minningar, þegar þú kastaðir stólnum í höf- uð mjer, en mistir titlingsins, en hittir krák- una, hefi jeg verið dauður og grafinn, en líður nú vel — lof sje guði. Hefi jeg nú enga þörf fyiir syndakvittun föður M’Grath’s. — Fjandinn hirði hann! En það sem mest er um vert: Jeg hefi nú, alveg nýverið, fengið dálít 1 skiptökulaun — þau fyrstu, er mjer hefir hlotnast síðan jeg kom í þjónus'u Hans Hát gnar. Sendi jeg þjer þau nú hjer með — hvern einasta eyri — til þess að þú getir nú aftur náð í kýrnar þínar, grís- inn og fleira, sem þú hefir orðið, mín vegna, að láta af hendi, Jeg vona nú fastlega, að þú segir mjer nú ekki lengur »að skammast mín,« en »skammist« þín þeim mun meira sjálfur fyrir það, að úthúða, eins og þú gerðir, hinum hlýðna syni þínurn, er þín vegna og eftir þinni skipan gekk í herþjón- ustu og hefir þar af leiðandi ekki bragðað almennilega kartöflu sðían. Seg þú móður minni, að jeg sje, enn sem fyrri, hinn sami O’Brian, sem aldrei hafi komið til hugar að gerast mótmælandi. Rvert á móti muni jeg halda sem fastast við mína feðratrú, En þrátt fyrir það megi fjandinn sjálfur hirða M’Grath með húð og hári og alt hans vígsluvatn. Jeg ætla mjer ekki að heimsækja ykkur aftur, þar eð vera kynni, að þú hefðir annan stól á reiðum höndum til þess að reka í höfuð mjer. Gæti vel svo farið, að þá yrðir þú hæfnari. Að svo mæltu verður þetta að vera nóg í þetta sinn frá þínum elskandi syni T. O’Brian. Hjer um bil viku síðar meðtók jeg brjef frá föður mínum, þar sem hann kvað mig vera sannan O’Brian, og dirfðist nokkur að mótmæla því, skyldi hann brjóta í honum hvert bein. Kvaðst hann hafa fengið peningana með góðuin skilum, og þakkaði mjer hjartanlega fyrir. Iiefði jeg hegðað mjer eins og sannur sæmdarmaður, og næst, er jeg kæmi, skyldi besti stóllinn vera mjer reiðubúinn, ekki fyrir hausinn, heldur undir dansinn. Sagði hann sjera M’Grath senda mjer blessun sína og gefa mjer hjer með lausn, ekki einungis fyrir drýgðar syndir, heldur einnig fyrir allar þær syndir, er jeg kynni að drýgja næstu 10 árin. Kvaðst hann hafa grátið af gleði yfir minni sonarlegu ræktarsemi, og öll systkyni mín — að undan- skyldum Tim, er dáið hefði daginn eftir að jeg heimsótti þau — óskuðu mjer allra heilla og ógiynni skiptökulauna ti! að senda þeim. Retta var nú alt saman blessað og gott. Var mjer nú einkis vant nema að koma mjer í skiprúm. Og hvað það sneiti, sneri jeg mjer til hafnaraðmírálsins og tjáði honum vandræði mín. Hann viðurkendi það fúslega næga ástæðu til afskráningar, að vera bæði dauður og graf- inn, en þar eð jeg mætti nú aftur teljast til lifenda, kvaðst hann skyldu úlvega tnjer skip- rúm. í bráðina var mjer ráðin vist á hæhsskipi og dvaldi jeg þar í 10 daga. En að þeim lokuum, fjekk jeg stöðu þá, er jeg nú hefi á þessari freigátu, og er þá sögu minni hjer með 12

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.