Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Side 12

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Side 12
90 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. lokið og vökinni með, því nú er hringt til vökuskifta. Hlauptu nú ofan, Pjetur minn, og rífðu Robinson upp og segðu honum frá mjer, að jeg leyfi mjer hjer með að ónáða hann. Biddu hann einnig að sofna ekki aftur, svo jeg þurfi ekki, eins og við síðustu vökuskifti, að Iabba hér um þilfarið og slíta ikósólum mínum fyrir hann, þvert ofan í allar herreglur. XIII. Enn um Iækningar næstráðanda. Saga bátstjórans. Nú hölðum við ve ið á varðbergi í sex viktr, og fanst mjer sjólífið mikið þægilegra en jeg hafði búist við í fyrstu. Vilji minn var tekinn í verkastað, og þó jeg gerði stundum glappa- skot, var svo að sjá, að bæði kapfeinninn og næstráðandi vissu, að jeg leysti skyldustörfin af hendi eftir bestu getu; htógu þeir oft dátt að klaufaskap mínum. Jeg varð þess líka var, að hjer voru gáfur mínar og hæfileikar haldnir í betra lagi, þó sifjalið rnitt vildi e:gi við þá kannast. Sakir þessa óx sjálfstraust mitt með hverjum deginum, er leið, og jeg vonaði, að mjer tækist að bæta mjer það upp með ástund- un og þolinmæði, er náttúran hafði neitað mjer um. Efalaust hvetur sjómannalífið til sjálfstæðrar hugsunar, því nú reyndi jeg til að hugsa og álykta sjálfur, en meðan jeg var heima, Ijet jeg aðra hugsa fyrir mig og gerði alt eftir annara geðþótta. Jeg kom mjer vel við möíunauta mína, og vissi tæjilega hvernig líminn leið. Ætla jeg það hafi stafað af því, að jeg vissi uppá hár hvað mjer bar að gera, og hver dagurinn var öðr- um líkur hvað störfin snerti. Næstráðandi var einn af þeim skemtilegustu mönnum, sem jeg hefi þtkt, en þiátt fyrir það, var agi hatis þó altaf jafnstrangur. En aldiei fór hann yfir leyfileg takmöilc, hvorki við yfirmenn sína nje þá, er honum voru undirgefnir. Gáski hans og glaðlyndi kom einna best í ljós við það, hvemig hann hegndi fyrir ýmsar yfirsjónir. Og hversu sem hegning sú kunni að sýnast ströng þeim, er fyrir utðu, var hún ætíð nægilegt hlátursefni fyrir hina skipverjana. Falkon næ.-tráðandi var mjög nákvæmur um það, að þiifarið væri altaf hreint og fágað, og ekkert var honum ver við, en ef það var vísvitandi óhreinkað. Var það sjerstaklega fyrir þá sök, að honum var svo meinilla við munn- tóbaksnautn. Víða var hrákadöllum komið fyrir bæði á þiljum uppi og undir þiljum, svo að skipverjar skyldu eigi saurga þilfarið nje íbúðir skipsins með tóbakshrákum, Pað kom þó fyrir, að sumir gleymdu hrákadöllunum, er mikið var um að vera, eða þeir voru annars hugar. En fyrir þá sök, að svo var fyrir mælt, að enginn fengi rommskamt í þeim klefa, er tó- bakshrákar fundust, nema þeir segðu til um syndarann, þá höfðu menn allnánar gætur á þvi, hver bryti þelta boðorð, því fáir vildu verða af romminu. Og er uppvíst varð um sökudólginn, var honum refsað á þessa leið: Hendur hans voru bundnar á bak aftur og var því næst heljarstór h ákadallur hengdur á brjóst honum með því að bregða kaoallykkju aftur fyrir hálsinn. Voru því næst allir hrákadallar teknir buitu af neðri þiljum, en maðutinn lát- inn þramma fram og aflur, reiðubúinn að koma til hvers og eins, er bendingu gaf um, að hann þyrfti að hrækja. Og svo voru fjelagar hans ósanngjarnir, að þeir gerðu sjer far um að skyrpa sem tíðast, er þess kiossberi var á feiðnni. Peim þótti ekki bráðónýtt að láta hann vera á hvíldarlausum þönum á milli sín, er þeir þóltust með þurfa. Bátsjórinn, herra Chucks, hafði skýrt þessa syndaseli og kallað þá »farand hiákadalla næstráðanda.c Mjer var skemt á einni dagvökunni, er við vorum að koma hengirúmunum fyrir í rekkju- hólfunum á skutþiljunum. Kom þá einn sk'ps- drengutinn upp með rúm sitt á herðunum. Gekk hann fram hjá næstráðanda, sem tók þa eftir þvi, að strákur hafði tóbak í gúlnum. »Petta er Ijótt að sjá!« sagði næstráðandi.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.