Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Qupperneq 14

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Qupperneq 14
92 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. en hann væri kominn undir græna lorfu, fjekk jeg að heyra söguna. Var saga þessi eigi síður einkennileg en sú, er O’Brian hafði sagt mjer um sína æfi, og það hafði hún fram yfir, að jeg hafði það á meðvitundinni, að hvert atvik og atburður væri þar sannleikanum samkvæmt. Fjekk jeg af sögunni greiniiega útskýringu þess, hvernig stóð á þessum höfðingjabrag, er jafn- an var á blessuðum bátstjóranum okkar. Ætla jeg nú að skýra frá helstu atburðunum, eftir því er hann sagði mjer. Munu menn svo siðar sjá, hver áhrif þetta æskuæfintýri hans hafði á líf hans síðar meir. Hann var sagður bátstjórasonur; en þar Ijek þó talsverður efi á. Kváðu sumir hann tigins manns son vera, og hefir hann þá þaðan erft höfðingjablóðið, er eftir öllu að dæma virt- ist renna í æðum hans. Korri það snemma í Ijós, að fyrirmenskubraguiinn væri honum með- fæddur. Fjórtán ára gamall var hann drifinn í sjó- herinn, á freigátu eina. Og ári síðar vildi svo til, að ungum lávarði, mjög heilsutæpum og veikluðum, var ráðið far sem foringjaefni með sama skipinu. Var sú ráðstöfun gerð að ráði föðurbróður hins unga lávarðar, og var hvísl- ast á um það, að föðurbróðirinn vildi feginn losna við piltinn, því þá voru sem sje allar eignir hans, og lávarðartignin með, honum vís. Höfðu menn það fyrir satt, að föðurbróðurn- um þætti það ekki ólíklegt, að sjóvolkið og breytilegt loftslag mundi hafa þau áhrif á heilsu hins unga lávarðar, að eigi væri ólíklegt, að hann kæmi ekki lifandi heim aftur. Var Chucks nú fenginn sá starfi, að þjóna lávarðinum á skipinu; gerði hann það með alúð, svo lávarðinum þótti brátt afarvænt um hann. Regar til Möltu kom, veiktist lávarðurinn hættulega, svo ákveðið var, að senda hann til Civita Vechia með márisku flutningsskipi. Dó lávarðurinn á leiðinni þangað, og var líki hans varpað í öldur Miðjarðarhafsins, þrátt fyrir öfl- ug mótmæli frá þjóninum, sem fylgst hafði með húsbónda sinum. Frá þessum t'ma var svo að sjá, að forlög- in hefðu veslings Ctiucks að leiksoppi. Lávarc- urinn hafði arfleitt þjón sinn að öllum fatuaði, gripum og peningum öllum, er hann hafði með sjer, og þá einnig, í strangasta skilningi, einkenn sklæðunum líka; og það voru eirimitt þau, er síðarmeir ollu láni hans og ógæfu. Til þess að Ijelta sjer erfiðleikana, er á því voru að komast til Gibraltar, klæddist hann einkennisfötum lávarðarins og Ijest vera hann, til þess að skipstjóri skips þess, er til Gibralt- ar fór, yrði fúsari á að flytja hann. Ætlaði hann sjer svo að afsaka þetta neyðarúrræði fyrir ensku stjórninni, er til Gibraltar kæmi. En er þangað kom, hafði skipstjórinn tilkynt hafn- aroddvitanum, að lávarðurinn væri með skip- inu áður en Chucks kæmist í land. En hafnar- oddvitinn hafði óðar kunngert landsstjóranum komu Hans Hátignar, unga lávarðarins A. Hafði landstjórinn svo hátíðlega boðið honum dvöl í húsi sínu meðan hann dveldi í Gibraltar. Rarna var hann því kominn í laglega klípu! Börðust nú tvö mólstæð öfl um yfirráðin í sál hans. Annarsvegar hans meðfædda höfðings- lund, er freistaði hans, en á hinn bóginn ótt- inn við það, er biði hans, er svikin kæmust upp. Vann höfðinsglundin sigurinn, svo hann hjelt áfram að látast vera A. lávarður, bæði í Gibraltar og eins heima í Plymouth — já, jafnve! í Lundúnum, er þangað kom. Hann leit hraustlega út, — mikið hraustlegar en ungi lávarðurinn hafði gert. Hann hafði lært af hinum unga lávarði háttu og siðu aðalsins, og fór nú daglega fram í þeirri ment af stöðugri umgengni við stórhöfðingja borg- arinnar. Petta glæsilega líf töfraði hann svo, að honum var hin mesta hugraun að því að hugsa til þess, er fyr eða síðar hlaut að ske, að hann hlyti að sjá á bak öllum dásemd- um, er lávarðartigninni fylgdu. Loksins sprakk blaðran í Lundúnum. Föður- bróðirinn, sem best hafði gengið fram í því, að drífa lávarðinn í sjóherinn, heimsótti hann eitt sinn að óvörum, og þekti þá, sem að lík- indum ræður, hvorugur annan. Og nú rak hvað

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.