Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Blaðsíða 15
NÝJAR KVÖLDVÓKUR. 93 annað. Lögreglan kom til sögunnar og fylgdi þar á eftir hinn mesti gauragangur, málarekstur og fangelsi. En þegar föðurbróðirinn fjekk fulla vissu fyrir því, að hinn rjetti bróðursonur væri dáinn, varð hann svo glaður við, að hann ljet allan frekari málarekstnr niður falla, svo að ekkert varð úr öllu saman; þvert á móti gerði hann alt, er í hans valdi stóð til þess, að þagga niður alt um þetta. Slapp svo hinn ungi svik- ari án frekari óþæginda. »Jeg hafði tvo hringi á fingrunum og eitt gullúr í vasanum, sem jeg átti sjálfur með öll- um rjetti,« sagði herra Chucks loks, »þegar jeg var aftur sendur til Plymonth í skiprúm á ljettisnekkju einni, og þessa gripi geymdi jeg eins og sjáaldur auga míns. Ennfremur átti jeg þrjú eða fjögur sterlingspund í buddunni. Pessu næst rjeðist jeg á freigátu eina. Par kom jeg munutn mínum í peninga og fyrir þá keypti jeg mjer klæðnað, því jeg gat nú ekki Iengur unað því, að ganga eins og ræfill til fata. Jeg var settur til starfa við aftursigluna og enginn var þar, sem hafði minstu vitneskju um, að jeg hefði verið lávarður.* »Mikinn mismun hafið þjer hlotið að finna á högum yðar, þar sern áður vorum þjer lá- varður, en nú óbreyttur háseti.« »Já, að vfsu, herra Simple, en þó var jeg mikið ánægðari í hásetastöðunni. Reyndar átti jeg bágt með að gleyma aðalsmeyjunum, dýr- legu miðdagsveislunum, tónleikunum og yfir höfuð allri Lundúnadýrðinni, að jeg ekki nefni lotningu þá, er menn báru fyrir titli mínum, og oft henti það mig, að andvarpa, er jeg hugsaði um þessa horfnu sæludaga. En svo flaug mjer í hug lögreglustappið, Bowstreet (þ. e. rammgert fangels) og fleira, er laut að lokaþættinum í lávarðartign minni, og þá hrylti mig við öllu saman. En þrátt fyrir alt, hafði þetta þó góð áhrif á mig. Jeg einsetti mjer að gera alt er í mínu valdi stæði til þess að verða íoringi í sjóhern- um. Jeg lærði furðu fijótt að inna öll mín skyldustörf sómasamlega af hendi, og braust svona áfram, uns jeg var gerður að varabátstjóra og nú er j -g orðinn bábtjór', og jeg er þeirri stöðu vaxinn, heira Simple! Mjer hefir hefnst fyrir mína heimsku. Jeg hefi oft verið að brjóta heilann um stöðu mína og köllun í lífinu, en aldrei getað að því gert, að niðurstaðan hefir jafnan orðið sú, að upphefð og tignarstaða er það, sem jeg þrái mest, og sem höfðingi vildi jeg helst altaf geta lifað. En það skyldi eng- inu jará, sem ekki er hægt að fá!< XIV. Strandhögg. Sjávarháski. Nokkrum dögum eftir samtal mitt við bát- stjórann, var freigátunni haldið inn að Frakk- landsströndum. Er við vorum 4 mílur frá ströndinni, sáum við tvö skip uppundir landi. Við settum upp öll segl til að reyna að ná þeim; er þau ætluðu að beita fyrir sandrif eitt, komumst við í veg fyrir þau. En er þau sáu, að þau voru í hers höndum, hleyptu þau á land í vík einni í nánd við dálítið strandvirki með tveim fallbyssum. Hófu virkismenn þegar skothríð á oss. Jeg varð smeikur við, er fyrsta kúlan þaut hvínandi milli siglanna. En þar eð bæði foringjar og hásetar hlógu að þessu, leist mjer ráðlegast að gera hið sama, þótt mjer, satt að segja, væri ekki hlátur í hug. Kapt- einninn ljet kalla stjórnborðsvökuna upp t'l starfa og bauð henni að útbúa bátana. Lögð- umst við svo fyrir akkeri um mílu vegar frá virkinu og hófum á það skothríð. Voru nú mannaðir 4 bátar og búnir til áhlaups á virkið. Jeg brann í skinninu að fá að vera með, og O’Brian, sem var foringi á 1. bátnum, leyfði mjer að fara með sjer, með þeim skilmála þó, að jeg skriði undir framþófturnar og feldi mig meðan bátarnir væru að leggja frá, svo að kapteinninn sæi mig ekki. Petta hepnaðist og var ekki eftir mjer tekið. Bátunuin var haldið sem þjettast saman og krppróið til lands. Vor- um við ekki fúllar 10 minútur á leiðinni upp- undir virkið, þar sem við lentum og stukkum í land. Meðan við vorum að lenda, hleyptu

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.