Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Page 18
96 NÝJAR KVÖLDVÓKUR. frá nesoddanum og vorttm við farnir að verða vongóðir um að s'eppa framhjá honum. En þá lóku segiin a!t í einu að slást með feikna skellum, því þau voru eins og gefur að skilja rennblaut, og okkur hrakti enn tvö stryk. Foringjar og skipverjar allir stóðu nú agn- dofa af ske'.fingu, þvi nú horfði bugspjótið beint inn í brimgarðinn við ströndina. (Framh ). K v æ ð i. Sólrúnir. Frá vöggu til grafar er lífsfarans leið Ieikur við bjarma og skugga. En oft er þó sólrún í sárustu neyð og sólskin á kotungsins glugga. Til hádegis vakir vöggunnar þrá, svo viðkvæm og heit eins og brosin, sem leika sjer kærleikans kossvörum á. — Undir kvöld er hún stirðnuð og frosin. Ganga mun jeg grýttann stig með gömul sár í barmi, þar til vefur moldin mig mjúkum vinararmi. Oft hefir verið þungt að þjást og þráfalt kalt í vetur. Með hjartað fult af æsku og ást, sem ekkert svalað getur. Ef enga iengur ætti jeg þrá og ekkert ljóð að segja, gjarnan vildi jeg gleymdur þá í Grímsey fá að deyja. Þó jeg oft með ljetta Iund á leikjum hafi mætur, mjer hefir verið meinað um blund margar dimmar nætur. Þá er það að þessi Ijóð þunglyndisins fæðast. Um dimma nótt í dapran óð dánar vonir klæðast. En þýða má kaldasta klaka og hver sem vill líta til baka sjer sólrún í sjerhverjum skugga. Leiftur frá liðnum árum eru lækning við dýpstu sárum. Hvert einasta hjarta má hugga. Andvöku-stökur. Nakinn stend á neyðarhól í napri lífsgolunni. Ilt er hvergi að eiga skjól í allri veröldinni. En það mig ávalt uppi ber eftir næturþjaikið. Jeg næsta morgun oftast er aftur til í slarkið. Staka. Yfir hæð og daladrög dimmir hræðilega. Raula jeg kvæða raunalög rökkrið færir trega. S. S.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.