Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Blaðsíða 27
N. Kv. EYRNALOKKURINN 103 burt þegar lýsti aí degi, en það var varla hugsanlegt, að hann teldi ástæðu til þess um hánótt. Ef eg liefði liaft í hyggju að senda á hann lögregluna, þá hefði eg vissu- lega gert það áður en viðskipti okkar fóru fram, ekki á eftir. Hann svaf sennilega, og það virtist þurfa rneira en lítið kröftuga hringingu til að vekja hann. Eg sló á kvíslina og reyndi aftur. Jafn árangurslaust. Númerið var áreiðanlega rétt. Það var sama númerið, sem eg hafði liringt í, þegar eg tilkynnti honum, að eg hefði látið undan. Eg hristi heyrnartækið, og gældi við það, eg grátbað það, en allt kom fyrir ekki. Og að síðustu varð eg að gefast upp. Eg gat ekki setið hér við tækið alla nóttina. Eg var að verða brjáluð. Eg varð að ná í eyrnalokkinn, þótt eg yrði að vinna það til að sækja hann heim til hans aðeins örskamma stund eftir, að eg hafði sloppið frá honum. Og vissulega var enginn sá staður undir sólinni, sem eg vildi ekki fremur heimsækja en þennan, — jafn- vel ljónagryfjur, kyrkislönguhella og heim- kynni holdsveikra. Eg tók skammbyssuna með mér, einnig í þessa ferð. Raunar bjóst eg ekki við, að slíkt barnaleikfang mundi skelfa Carpenter. En mér fannst eg ekki vera eins varnarlaus. Eg opnaði dyrnar og læddist í gegnum skál- ann. Ef mér tækist aðeins að komast burt úr liúsinu án þess að rekast á Jimmy, þá gat hann ekkert grunað, þegar eg kæmi heim aftur. Hann gat auðveldlega haldið, að eg hefði verið í næturklúbbnum með Perry allan tímann. Ljósið undan þröskuldinum var horfið. Hann gat verið búinn með skattaframtalið °g hafði ef til vill gengið tit til að viðra sig eftir seturnar. Það væri ágætt, ef eg hlypi þá ekki í fangið á honurn utan við dyrnar. Hjólkurflaskan með rniðann í stútnum var kyrr á sama stað. Það var eins og hún stæði á verði. Það tókst. Mig sárlangaði til að spyrja lyftusveininn, hvort maðurinn minn hefði gengið út nýlega, en eg þvingaði mig til að þegja. Það hefði verið alltof áberandi. Eg sagði bifreiðastjóranum húsnúmerið og hné síðan aftur á bak í sætið. Mér hafði létt í bili. Það var sannarlega ekki lítið leggjandi í sölurnar, til að varðveita tiltrú annars manns. Þegar bifreiðin nam staðar fyrir framan skuggalegt húsið — því hálfu skuggalegra var það nú, en klukkustund áður — bað eg bifriðastjórann að bíða eftir mér. Eg gaut augunum flóttalega upp eftir húshliðinni og sá að Ijós var í aðeins einum glugga — hans. Hann var þá heima og hlaut að vera vakandi. Hann gat liafa verið úti, þegar eg hringdi. Eg sagði við ökumanninn: „Hafið þér klukku á yður?“ Jú, ])að liafði hann að sjálfsögðu. „Viljið þér gera mér greiða? Hringið hérna á dyrnar, ef eg verð ekki komin aftur eftir tíu mínútur. Það er bjallan lijá skyld- inum, sem Carpenter stendur á.“ Eg brosti mínu blíðasta brosi. „Það er bara til að minna mig á. Eg má ekki stanza lengi, en því miður hættir mér við að gleyma tíman- um, þegar eg fer að rabba við kunningj- ana.“ „Allt , lagi, frú. Tíu mínútur." Eg gekk inn. Útidyrnar hefðu að réttu ■lagi átt að vera læstar með smekklás, en ein- hver hlaut að hafa gleymt að læsa þeim, svo að eg þurfti ekkert að bíða. Húsið var fimm hæða leiguhús, lyftulaust. Eg liélt af stað upp liina mörgu stiga, sem eg hafði gengið einu sinni áður. Eg varð að gefa honum sem minnstan fyrirvara. Mér var ljóst, að eini möguleikinn til að ná af honum eyrna- lokknum, var að koma honum að óvörum, — áður en hann hefði tíma til að átta sig á hinum nýju aðstæðum. ETm síðir komst eg alla leið. Eg drap var- lega að dyrum. Það var ekki önnur íbúð

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.