Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Síða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Síða 28
104 EYRNALOKKURINN N. Kv. á þessari hæð. Henni hafði sennilega verið aukið við, er húsinu var breytt í leiguhús. Engin hreyfing, ekkert hljóð. Það var ein- mitt það, sem eg hafði búizt við. Sá, sem lifir glæfralífi, getur haft fyllstu ástæðu til að hrökkva í kút, sé barið óvörum að dyr- um á myrkri nóttu. Eg sá greinilega í hug- anum, hvar hann stóð eins og festur upp á þráð og þorði tæplega að draga andann. Eg barði aftur. Eg laut höfði fast að dyra- karminum og sagði lágt: „Opnaðu, það er eg — aftur.“ Eg gat ekki fengið mig til að nefna nafn hans. Að mínum dómi verðskuldaði hann ekki að hafa nokkurt heiti, aðeins númer. Mitt eigið nafn forðaðist eg að nefna. Engin hreyfing. Eg var alveg að missa þolinmæðina. Eg greip í handfangið og hristi það, og hurðin opnaðist eins og af sjálfri sér. Eg áræddi að ganga inn, þótt eg byggist við, að hann stæði bak við hurðina og beindi að mér skammbyssuhlaupi. Það er aðferðin, sem þeir nota, er ekki svo? Hann var ekki í stofunni, svo að hann hlaut að vera í lokrekkjunni inn af henni. Hann gat hafa lagt sig útaf alklæddur og sofnað út frá ljósinu. Eg fór ekki inn fyrir. Það gat verið mögu- leiki, — örlítill möguleiki — að hann hefði ekki ennþá fundið eyrnalokkinn, og að liann lægi einhvers staðar á gólfinu. Gæti eg fundið hann, yrði eg að reyna að komast út, án þess að mín yrði vart. Eg efaðist þó. Það var alltof góð lausn málanna, til að geta verið sú rétta. En eg byrjaði samt sem áður að leita. Fyrst leitaði eg í legubekknum, þar sem eg hafði setið og blaðað í bréfunum. Svo lagðist eg á fjórar fætur, prúðbúin sem eg var, og leitaði á gólfinu undir og umhverfis legubekkinn. Birta var næg frá ljósi í miðju lofti, en hátt bak legubekkjarins kastaði dimmum skugga á gólfið bak við hann. Eg strauk með hendinni gólfið meðfram bekknum og áfram fyrir hornið, en þar snerti hún aðra hönd, sem virtist hafa beðið mín þar, til að bjóða mig velkomna. Eg* kippti að mér hendinni og þaut á fætur í ofboðslegri hræðslu. í sama mund heyrðist mér eg heyra snögga innöndun einhvers staðar nærri. Eg þokaði mér aftur fyrir legubekkinn, og þarna lá hann. Bekkurinn hafði skýlt lionum til þessa. Gat eg þess ekki, að hann verðskuldaði ekki unnað en númer? Ágætt, nú hafði hann öðlast sitt hinzta númer í happdrætti lífsins. Önnur hönd hans lá á gólfinu, — það var höndin, sem hafði heilsað mér. Hann lá á bakinu, með jakkann hnepptan frá sér. Eg gat séð hvar kúlan hafði horfið. Hún hlaut að hafa lent í hjartanu. Gatið á hvítri skyrt- unni og blóðbletturinn voru einmitt þar. Hann hafði ekki fengið ráðrúm til að nota sína eigin skammbyssu, hún lá á gólfinu, dálítið frá. Fyrsta hugsun mín var auðvitað sú að flýja sem skjótast. En eg neyddi mig til að vera kyrr. Fyrst verðurðu að finna eyrna- lokkinn þinn, sagði eg við sjálfa mig. Þú verður að finna hann. Nú var það ekki leng- ur aðalatriðið, að Jimmy komist ekki að því, að eg hefi verið hér. Nú valt á öllu, að lögreglan komist ekki að neinu. Hvað var gjaldþvingun saman borin við það, að vera flækt inn í morðmál með öllum þeim ókjör- um lyga og blaðaskrifa, sem því fylgdu? Og nú tók eg mér fyrir hendur verk, sem eg hafði aldrei látið mig dreyma um, að eg hefði kjark til að gera: Eg beygði mig yfir hinn dauða og hóf leit í vösum hans. Hann hafði hann ekki á sér. Hann hafði ekki heldur á sér tíu þúsundirnar, sem eg hafði látið hann hafa. En það skipti mig minna máli. Enginn gat vitað, að hann hefði feng- ið þær hjá mér. Allt í einu stirnaði eg upp af skelfingu. Eg hafði snert liönd hans óvart, meðan eg leitaði í vösum hans. Hún var andstyggi-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.