Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Blaðsíða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Blaðsíða 12
92 FRÁ GRÍMI THOMSEN N..KV. bókmenntum okkar, og kafla úr þeim þýddi hann á dönsku. Urðu þeir þættir honum margir að yrkisefni síðar. Grímtir þekkti og mat mikils Bjarna Thorarensen, frum- herja rómantísku stefnunnar á Islandi, og kunnugur var hann Adam Oehlenschlager, höfuðskáldi þeirrar stefnu í Danmörku. Mætur hafði hann og á H. C. Andersen og Runeberg, svo að nokkrir séu nefndir auk Byrons. Gat því varla hjá því farið, að Grímur yrði rómantískt skáld, en hann var þannig gerður, að aldrei varð hann að rómantískum gandreiðarmanni, og yfirleitt kemur rómantík Gríms frekast fram í því, að hann sækir til fjarlægra tíma um val yrkisefna. Várð hann æ hugfangnari af ís- lenzkum og grískum fornbókmenntum, er á leið ævina. í ágætasta söguljóði sínu, Rím- um af Búa Andríðarsyni og Fríði Dofradótt- ur, gerir Grímur grein fyrir hinu rórnan- tíska viðhorfi sínu. Hann staðhæfir, að heimur hugarburðar hafi ekki síðuf sátt að geyma en reynslu ríkið. Hann viðurkennir gildi sögunnar, sem allt tínir til, gott og illt, smátt og stórt óg geymir eilíflega, en skáld- sagaii, ævintýrið, svalar sálum írianna bezt. GrímUf deilir einnig í kvæðum sínum á efri- ishyggju 'og raurisæisstefriu, og mjög sakri- aði hann þess, er hin gamla þjóðtfú tók að dofna. Menn hættá áð sjá hið kýnlega, æv- iritýralega, og ménn trúa ekki einu sinni því litla, sem þeir sjá. Tilyeran verður lítilmót- leg og flatneskjuleg. Engin tröll dagar leng- ur uppi við sólarupprás, enginn dvergur smíðar kjörgripi í gráum steini, en nærsýnn almúginn iðkar ómerkilegan fiskidrátt í vötnum, þar seiri undraskeprian nykurinn lifði áður hópurn saman. Eins og að líkum lætur, var Grímur Thomsen mikið söguljóðaskáld, og sögu- Ijóðunum á hann ekki sízt að þakka hylli og frægð, Sumir hafa deilt á'hann fyrir það, að harin rími aðeins gamlar sögur, en slíkt er éklci nema að nokkru leyti sannmæli. Oft, og einkum í beztu kvæðunum, lagar hann efnið í hendi sér, breytir og bætir, og skap- ar nýtt efni af sjálfum sér. En mörg sögu- ljóðanna virðist hann hafa ort, eins og Þor- steinn Erlingsson hefur bent á, til að sýna mönnum fyrirmyndirnar fornu, menn, sem gæddir voru áræði Hrólfs sterka, tryggð Bergþóru, dug Þorbjarnar kólku og dreng- skap Skúla fógeta. En eftirlæti Gríms eru þó menn eins og Dofri í Búarímum og Hall- dór Snorrason. Slíkir menn flíka ógjarna tilfinningum sínum, fljóta ekki í gælum né fyrirbænum, eru dulir, stundum jafnvel gráglettnir, og oft hrjúfir á ytra borði, en þeir eru, eins og Grímur komst að orði um sjálfan sig, menn með hjarta, sem ekki ljúga að samvizku sinni, hvað sem þeír kunna að segja. dauðlegum manneskjum. Um þá má segja eins og Sallust sagði um Cato gamla: Hann vildi heldur vera góður en sýnast það. Samvistin við slíka menn hefði verið Grími „Abrahams skaut“. Gr'írnur dáði líka unga fullhuga elns og Búa í Búarímum, sem hann hefur fundið til skyldleika við. Báðir fóru þeir Búi og Grímur urigir utari, báðir lentu í mannraun- um og rötuðu í ástarævintýri, og báðir komu þeir heim aftur og gerðust bændur á Suð-Vesturlandi. Múnurinn vaf hins vegar sá, að Búi kom með ástmey sína með sér, en Grímur ekki. Það er ósjaldan, að skáldin láta eftirlætispersónur sínar njóta þess yndis, sem þeim sjálfum er meinað í heimi veruleikans. í upphafi gat ég um árásir þær, er Grím- ur varð fyrir vegna kvæða sinna. Einkum varð mönnum þó form kvæða hans til ásteitingar, og satt er það, að allvíða, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.