Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Page 18
98 BJARNI SVEINSSON N.Kv: kvæntist Bjarni Ágústu Högnadóttur á Bakkagerði, og í búsinu Melstað ú Bakka- gerði hafa þau hjón jafnan búið síðan. Hef- ur Bjarni stundað sjómennsku, smábúskap, alls konar eyrarvinnu og verzlunarstörf frá 1917 að Kaupfélag Borgfirðinga var stofn- að. Hann var lengi sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Nú er hann bæði kjötmatsmaður, ullarmatsmaður og fiski- matsmaður á Borgarfirði og hefur verið það lengi. Hann hefur lengi setið í hrepps- nefnd Borgarfjarðar og verið þar fóður- gæzlumaður urn áratugi. Þau Bjarni og kona hans eiga þrjú upp- komin börn: Sigríði, sem gift er Garðari Jónssyni', útgerðarmanni á Reyðarfirði, Guðrúnu yfirhjúkrunarkonu í Reykjavík, sem gift er Haraldi Guðmundssyni, útvarps- virkja og Svein, kvæntan Onnu Björgu Jóns- dóttur, og búa þau á Hvannstóði í Borgar- firði. Systkini Bjarna voru: Páll, síðast bóndi í Geitavík, dáinn fyrir nokkrum ár- um, Jón, fyrrverandi bæjarstjóri og skatt- dómari á Akureyri, Þórhildur, gift Steini Armannssyni, verkstjóra á Bakkagerði og Arnbjörg, gift Guðmundi Jónssyni frá Foss- völlum, dáin 1929. Bjarni Sveinsson er einn af þeím mönn- um, sem mér verður ógleymanlegur meðan minni mitt lokast ekki. Jacland Marmur: Hsiður fyrir bori) Spennandi og áhrifamikil saga um ást og hatur og baráttu manna við æðisgengið liafið. Hatrið hvíldi eins og mara á manninum, sem kom út úr skuggaröndinni inn undir timburstaflanum og gekk í glampandi sól- skininu fram á Lopanga-bryggjuna. Hatrið gerði hreyfingar hans stirðar og óþjálar. Það hafði slökkt ljósið í augum hans og klætt andlit hans ískaldri grímu. Davíð Gorman stóð á bryggjuhausnum og horfði niður á vélbátinn, sem beið við landgöngubrúna, beint fyrir neðan hann. Hann heyrði regluleg skrefin á steinlagn- ingunni bak við sig, en hann sneri sér ekki við. Hann vissi, að það var Jósep Cardin, sem var að koma — eigandi Cardin-skipanna — og hann vissi, hvernig hann leit út: hár og magur, harður og kuldalegur ásýndum. Og hann þekkti hatur hans. Þess vegna stóð Davíð Gorrnan og snéri sér ekki við. Hann horfði án afláts á e. s. Cardinan, sem lá ferðbúið úti á höfninni með uppskipunarbómurnar gnæfandi við himin eins og risavaxna fálmara. Fyrir tveim dögurn hafði Hómer Bledson, skipstjóri á Cardinan, verið fluttur veikur í land, og sama kvöldið dó hann. Skipstjóri var nú enginn á skipinu, og Davíð Gorman var fyrsti stýrimaður. Fótatakið að baki honum færðist nær. Nú hljóðnaði það. — Þér vitið, hvað Bledson skrifaði í

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.