Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Blaðsíða 22
102 MAÐUR FYRIR BORÐ N.Kv. um? Orðin voru eins og beittur hnífur, sem skerst dýpra og dýpra í svíðandi sár. — Þér settuð út bát? Og þér .... — Hr. Cardin, mér þykir það leitt. Joe var einn hinn bezti í sinni sveit. Eg kom hingað til að segja yður það. Ég vissi, að yður mundi þykja einhverju skipta að vita það. En meira vil ég helzt ekki segja. Jósep Cardin sat teinréttur og ósveigjan- legur í stólnum sínum. Orðin komu sem högg af vörum hans. — Segið mér .... hvort þér .... leit- uðuð hans. Aftur varð þögn. Davíð Gorman fannst sem hann sæti aft- ur einsamall í klefa sínum, þjakaður af hugsuninni um dauðann og hatrinu á dauð- anum. Hann minntist banvænna stórsjóanna þetta kvöld, þegar skipalestin hélt áfram ferð sinni og skipin hurfu eitt af öðru út í myrkrið. Hann minntist hugsana sinna þá, og sem snöggvast lokaði hann augunum. — Nei, sagði hann ákveðið. — Ég lét ekki stanza til að leita hans. Það var alls ókleift að gera þáð. — Þér létuð hann þá hreint og beint .... drukkna. Orðin voru líkust hvísli, bitru, hásu hvísli. Andlit Cardins var orðið sem grá, hörð gríma, og Davíð Gorman sá hatrið vaxa hægt og hægt í ísköldum augunum. Samt sem áður neyddi hann sig til að bæta við: — Hr. Cardin, þér hafið sjálfur siglt. Þér hafið sjálfur verið skipstjóri. Það var rok, og það var mjög vont í sjóinn. Það var hættulegt að breyta stefnunni. Ég bar á- byrgð á öryggi hinna sködduðu skipa. Og ég hafði næstum þrjú hundruð manna áhöfn á mínu eigin skipi.. Róleg rödd hans. hikaði, og þögnin var sem þaninn strengur. — Nei, bætti hann við með rödd, sem hafði endurheimt styrkleika sinn -— það var algerlega ókleift. Ég lét ekki stanza til að leita hans. — Hann var einkasonur minn. Og þér .... þér létuð hann drukkna. Rödd Cardins var þung og hljómmikil. Svo reis hann á fætur og stóð kyrr og starði fram fyrir sig. — Éarið! Éarið! sagði hann — þér slepptuð stöðu yðar hjá Cardin-útgerðinni til að fara í sjóherinn. Lögin krefjast, að staða yðar skuli standa yður opin, þegar þér komið til baka. En eitt vil ég ráðleggja yð- ur: notið yður ekki þann rétt. Hvert einasta orð var sveipað hatri. — Verið kyrr í sjóhernum, verið kyrr í sjóhernum, þar sem þér getið starfað til- finningalaust og skýlt yður með lagabók- staf. Þar eigið þér heima. Ef þér komið til baka, verðið þér fyrsti stýrimaður eða ann- ar stýrimaður, það sem eftir er ævinnar. Ég skal halda yður niðri, Gorman. Þér skuluð aldrei fá yfirstjórn á nokkru skipi. Aldrei. Ekki einu einasta skipi í öllum verzlunar- flota Bandaríkjanna! Hann stóð hreyfingarlaus, augun ísköld, andlitið öskugrátt. Gorman reis hægt á fætur. Hann leit ekki á Láru. Hann tók til máls rólegri röddu. — Hr. Cardin, þér krefjizt sjálfur, að skipsbækur skuli vera nákvæmar. Ég hef hlotið þjálfun mína í yðar þjónustu. Ég gat ekki logið. Ekki að manni, sem sjálfur hefur verið skipstjóri. Yður bar að vita .... — Farið! -—- Eftir auguablik, já. Við Lára liöfum ákveðið, að ég skuli vera áfram í flotanum og ganga framabraut mína á enda þar. En ég hef þegar ákveðið, hvað gera skuli. Ef ég lifi, þegar stríðinu er lokið, hr. Cardin,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.