Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Side 40

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Side 40
120 PITCAIRN-EYJAN N.Kv. Nanai var hálf-þrítug þegar þetta var. Hún hafði verið kona Tetahiti, eins og þér kann- ske munið. Það var enginn hræddari við Quintal en hún. Þegar hún kom upp á brekkubrúnina, lagði hún byrðina frá sér, til þess að hvíla sig, tæplega þremur fetum þaðan, sem mennirnir höfðu falið sig. Quintal stökk nú fram og greip hana. Hún varð svo hrædd, að hún reyndi ekki einu sinni að verja sig, og á augabragði höfðu þeir bundið hend- ur hennar og fætur. Þeir tróðu trjáblöðum í munn hennar og bundu ræmu af trjáberki yfir hann, til þess að vera vissir um að hún gæti ekki hrópað á hjálp. Jenny var skammt frá, svo að þeir náðu henni áður en hún hafði áttað sig. Hún var lítil vexti, en liðug eins og köttur og varð- ist með því að bíta og klóra. Það var á tak- mörkunum að Quintal gæti haldið henni, meðan Mc Coy batt fyrir munn hennar, og um leið og hann gerði það, beit hún hann mikið sár í hendina. Þegar hún var komin í bönd, lagði Mc Coy hana á bak sér. Quin- tal kom með Nanai á eftir. Ég hafði komið heim meðan á þessu slóð, og þegar ég sá að enginn var heima, þóttist ég vita hvað Quintal og Mc Coy væru að gera, en mér datt ekki í hug, að þeir mundu ná í neina af konunum, og næðu þeir þeim, vildi ég ekki vera neitt við það mál riðinn. Eg fór því heim til herra Young, en minntist ekkert á hina. Þeir höfðu konurnar með sér heim. Bönd Nanai voru leyst, en Jenny höfðu þeir bundna til að byrja með. Mc Coy tók nú að gerast nærgöngull við Jenny, en hún var skapbráð kona og lét hann kenna á því eftir því sem hún gat. — Ef þú snertir mig, skal ég ekki hætta fyrr en ég hef drepið þig, æpti hún. Hvar er Alex og Young? Young kemur þetta ekkert við, hann er ekki með okkur. Hann hefur verið veikur undanfarið, og okkar á milli sagt, varst það þú, sem ginntir Taurua frá honum. Síðan sagði hann henni, að ég væri að reyna að ná í einhverja konu og mundi bráðlega koma heim. Nanai hafði hniprað sig saman úti í horni og Quintal sat á bekk fyrir íraman hana. Allt í einu þaut hún á dyr, en Quintal náði í hárið á henni og dró liana til baka. Þér kærið yður víst ekki um að heyra hvað svo gerðist. Fyrst reyndu þeir að fá kon- urnar til að drekka með sér, og síðast mis- þyrmdu þeir þeim á hinn svívirðilegasta hátt. Um nóttina, þegar Mc Coy og Quintal voru sofnaðir, komust þær út. Þegar ég kom frá herra Young um morguninn, sá ég greinilega, að það hafði verið barizt í hús- inu. Mc Coy þvoði höndina, sem hann hafði verið bitinn í og batt um hana. Þeir minntust ekki einu orði á það, sem gerzt hafði. Þeir voru ófrýnilegir og til alls vísir. Nítjándi kafli. Næsta dag kom Young í heimsókn til okkar. Hann hafði fengið slæmt asthma- kast, svo að hann gat tæplega talað. Þegar hann hafði setzt á stól, sem við ýttum til hans, fékk hann hóstakviðu, svo að við lá, að hann kafnaði. Þegar það var liðið hjá, sagði hann okkur hvað erindið væri. — Ég hef verið beðinn að flytja ykkur skilaboð frá konunum, sagði hann. Maimiti segir að þær séu allar sammála um það, að þið þrír verðið að yfirgefa eyna þegar í stað. Þið getið tekið stærsta bátinn og það, sem þið hafið þörf fyrir af matvælum. Síð- an verðið þið að fara. — Farðu! endurtók ég. — Hvert?

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.