Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Side 42

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Side 42
122 PITCAIRN-EYJAN N.Kv. að ég hálft í hverju kaus að láta það sama ganga yfir okkur alla. Samt sem áður lang- aði mig til að ræða málið við herra Young. Mér hafði dottið í hug, að við Young töluð- um við frú Christian og gengjum í lið með konunum, en létum Mc Coy og Quintal eiga sig. En þegar ég hafði hugsað málið betur féll ég frá þessari hugmynd, því að ég sá að óhjákvæmilega hlaut að koma til á- rekstra og ef til vill blóðsúthellinga milli okkar hvítu mannanna, og það vildi ég um- fram allt forðast. Svo var það ennþá eitt, sem ég skammast mín fyrir að segja. Ég gat ekki verið án brennivíns. Utkoman varð því sú, að ég gerði ekki neitt, en beið átekta. Þennan dag drukku Mc Coy og Quintal sig fulla, eins og venjulega, og ultu síðan sofandi útaf. Ég drakk nokkuð með þeim, en vaknaði þó á venjulegum tíma morgun- inn eftir. Ég man hversu þungt mér var í skapi, þegar ég tók til í húsinu, og hversu mér fannst líf okkar óeðlilegt og öðruvísi en það átti að vera. Ég saknaði barnanna og langaði ákaft til að sjá þau. En svo djúpt var ég sokkinn, að ég tók vínið fram yfir þau. Síðan liðu þrír dagar, án þess að við yrðum nokkuð varir við konurnar. Er við höfðum borðað miðdegismatinn, lögðumst við til svefns eins og venjulega. Þegar ég vaknaði skinu sólargeislarnir gegnum rifur á gluggahlerunum. Eg reis á fætur og ætl- aði að opna þá. Um leið og ég opnaði fyrsta gluggann, heyrði ég byssuskot, sem virtist koma úr kjarrinu í skógarjarðrinum, og fann þyt kúlunnar rétt hjá höfði mér. Eg kastaði mér niður á gólfið og lokaði hleranum. Mc Coy, sem svaf á gólfinu, vaknaði. — Hvað er þetta, spurði hann, en fékk eklci ráðrúm til að segja meira, því að önnur byssukúla fór í gegnum hlerann, sem ég hafið verið að loka. Quintal vakn- aði, settist upp og horfði undrandi í kring- um sig. Ég skipaði þeim að liggja hreyfing- arlausum, skreið út að veggnum og leit út um rifu milli plankanna. Fyrst í stað sá ég ekkert til árásarmann- anna, en innan stundar kom ég auga á byssuhlaup, sem miðað var á dyrnar, og annað rétt þar hjá. Síðan sá ég Hutia hregða fyrir hak við tré. Við vorum greini- lega lokaðir inni í gildru, en vorum ennþá svo syfjaðir og utan við okkur, að það tók stundarfjórðung, áður en við gátum áttað okkur og skilið hvað um var að vera. Með- an ég horfði í áttina til dalsins opnaði Quintal hurðina. Urn leið dundu mörg skot á húsinu. Eitt þeirra hitti hann í mjöðmina og reif skinnið af. Nú skildum við að húsið var umkringt, og konurnar ætluðu að drepa okkur, ef þær gætu. Mc Coy kallaði til frú Christian, en fékk ekki annað svar en skot í gegnum vegginn. Þrátt fyrir allar aðvaranir þeirra, höfð- um við ekki trúað, að þær mundu fram- kvæma hótanir sínar á þennan hátt. Það var ofseint að iðrast nú, og það eina, sem við gátum gert, var að fela okkur. Kúlurnar þutu stöðugt gegnum gluggana og dyniar, svo að við urðum að liggja endilangir á gólfinu. Þær höfðu alls fjórtán stórar byss- ur og tíu skannnbyssur, og þær konur, sem ekki kunnu að skjóta, voru látnar hlaða byssurnar. Quintal og ég álitum að við ætt- um að reyna að komast út, en Mc Coy var á móti því. Verið þið ekki svo heimskir, sagði hann. — Það er einmitt það, sem þær vonast eftir að við gerum, og það eru mjög litlar líkur til þess, að við komumst héðan lifandi, meðan bjart er af degi. Við vorum þess vegna kyrrir og hlóðum varnarvirki við dyrnar, úr bekkjum, borðum og nokkr-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.