Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Blaðsíða 3
Flink merkisberi. Saga úr Prjátíu-ára-stríðinu. Eftir Loðbrók. Jeg ljet tilleiðast og sagði þeim nú söguna. f*eir hlustuðu með eftirtekt og ljetu í Ijósi við- bjóð á óþokkanum. t*á er sögunni var lokið sátum við hljóðir um stund, þar til einn þeirra rauf þögnina: »Við sitjum þögulir eins og egiftskir prestar. Við verðum að stofn« til einhverrar glaðværð- ar- — Tryggur, syng þú eitthvert kvæði núna.« Allir tóku í sama streng, því að Tryggur var orðlagður um allan herinn fyrir söng sinn. Og oft, þegar hann var í mjög góðu skapi, kotn það fyrir, að hann orkti vísurnar jafnóð- um og hann söng. Tryggur lofaði að syngja eitt lag fyrir okk- Ur- Með mikilli hljómslyrkri rödd hóf hann söng sinn um heimkynnið okkar fjarlæga. Ást- k®ru stöðvarnar, sem aldrei gleymdust, hinu megin við bylgjurnar bláu: Þú Svíagarpa gamla land, hin göfgna, aldna storðin. Er bylgjan leikur blítt við sand, þjer beri’ hún kveðjuorðin. Þar skógar klæða háls og hól, frá hnjúkum elfur streyma, á bláum sundum blikar sól, — sem barn þar átti’ jeg heima. Þú Svíagarpa frægafold með fornum hreystisögum. Jeg hló og grjet við móðurmold * á mínum bernskudögum. Er okkur nokkurt orð svo kært sem orðið fagra: — heima. Pað hefir okkur unað fært, sem aldrei megum gleyma. Þótt fæddumst ei við auð og völd, var unaðsælt að dreyma. Peir eiga bágt um kuldakvöld, sem hverki eiga heima. Það eitt jeg vona alla stund, að eignast kofa’ jeg fái í sælu’ og friði’ á Svíagrund — og svannan, er jeg þrái. Nokkrir af hinum þýsku íbúum borgarinnar höfðu numið staðar fyrir utan meðan Tryggur söng. Þeir hafa að vísu ekki skilið orðin, en söngsnild Tryggs hafði haft djúp áhrif á þá. Jeg kvaddi þar næst fjelaga mína og lét þá opna fyrir mig borgarhliðin, því að mig lang- aði til að ganga dálífinn spöl út fyrir borg- ina í tunglsljósinu. »Veist þú, hvað inngangsorðið er,« spurði sá, sem opnaði hliðið. »Nei, jeg hafði nær gleymt að spyrja þéss.« »Inngangsorðið í nótt er: ,Vopn Svíaríkis'.* »Þökk, jeg gleymi því ekki.« Tunglsljósið varpaði annarlegum blæ yfir um- hverfið og geislarnir loguðu í lygnum fleti fljótsins. Er jeg stóð á fljótsbakkanum sá jeg múra Gústafs-kastala gnæfa við himinn dimman og hrikalegan. Byggingin kastaði dimmum geislum langt frá

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.