Trú - 01.08.1905, Page 4
44
T R Ú.
T R U
kemur út einu sinni í mánuði. Hvert blað kostar 5 aura. Argangur-
inn 50 aura hér á landi. í Ameríku 3 cent hvert blað, en 25 cent ár-
gangurinn. Borgist fyrirfram. Borgun fyrir blaðið sendist í póstávís
unum til S. O. Johnson. Útgefandi og ábyrgðarmaður
Samuel O. Johnson, trúboði.
Reykjavík (P. O.)
ísland.
„Hann dó fyrir alla, til þess að þeir, sem lifa, ekki
framar lifi í sér, heldur þeim, sem fyrir þá er dáinn og upp-
risinn". (2. Kor. 5. kap., 15. v.).
Hvað þýðir endurfæðing1?
Það er sú spurning, sem hver og einn ætti alvarlega að
rannsaka, því það ríður svo mikið á því orði; eða máske við
munum ekki eftir orðum frelsarans, þar sem hann segir í
heilagri ritningu: „Maðurinn getur ekki séð Guðs ríki, nema
hann endurfæðist". Ef við viljum stöðva okkur eitt augna-
blik og hugsa um þetta eina orð: „Er eg endurfæddur eða
ekki", og svo ef að Jesús skildi koma til þín og mín í nótt,
°g eg °g þú skyldum þekkja þetta orð til fulls, hvað
er að vera endurfæddur, þá yrði það of seint, að fara þá að
hugsa um hvað slíkt orð þýðir. Það er vfst heldur hans
meining með þessum orðum, að hjartað eigi að vera nýtt og
sálin hrein fyrir hans heilaga blóð, sem rann á Golgata. Því
við vitum að hans heilaga blóð hreinsar frá allri synd, fyrir
þá sem trúa á hann. Því hvað meinti Davíð, þegar hann
sagði til síns Guðs: „Skapa í mér hreint hjarta, ó, Guð, og
endurnýja í mér stöðugan andaf" Mun ekki þessi bæn hafa
verið beðin til þess, að fá endurfætt hjarta hjá Guði vorum,
Jesú Kristi! Já, sannarlega hefur það verið hjartans meining,
og víst er það, að Davíð hefur skilið hvað þessi orð höfðu að
þýða, því annars hefði hann ekki kallað með þessari bæn;
en af þvf að hann hefur þekkt þau orð til fullnustu, og að
þau samsvara þeim orðum, sem postularnir hafa skrifað eftir