Vörður - 01.10.1917, Blaðsíða 8

Vörður - 01.10.1917, Blaðsíða 8
4 V Ö R Ð U R og stæra sig af. Þess vegna hvaö helst þykjast þeir eiga rétt á aö sigla undir sínum eigin fána um öll heimsins höf. Viö höfum veritS að gaspra um aS alþýðumentun væri betri hjá okkur en annarstaðar. En í fræðslumál- unum erum við nú orðin mannsaldri á eftir bræðraþjóð- um okkar á NorSurlöndum. ViS játum það í öðru orðinu, að kensla og uppeldismál séu rnikils varðandi. En viS byrjum á aS loka Kennara- skólanum. Og kennarnir okkar eru yfirleitt eins konar landshornamenn, menn, sem iifa á hrakingum viS kenslu í nokkur ár, og gefast upp siSan. Þess vegna verSur kennarastéttinni, svo kallaSri, ekki láS þaS, þó aS ,,KennarablaSiS“ sé löngu dautt, og „Skóla- blaSiS“ komiS í sömu gröfina. Henni verSur ekki sjálfri gefiS þaS aS sök, þó aS alt verSi málefni hennar til ó- þurftar. Hún er niSursetningurinn á þjóSfjelagsbúinu, uppkreistingur hrakin úr einum staS í annan, og miSlungi vel virt. í allri viSleitni hennar verSur kyrkingurinn sam- ur og í henni sjálfri. ÞaS er görnul venja og góS, aS eggja fjelaga sina lög- eggjan, þegar mikiS liggur viS. Hallgrinuir gerir þaS ósleitilega í verkinu, meS því aS hrinda af staS þessu blaSi. En i fræSslumálunum liggur miklu meira viS fyrir þjóSina, heldur en fyrir kennarastéttina. Hún er yfirleitt ekki meS hálfan hugann viS kensluna hvort sem er, og getur ekki veriS þaS. Og af henni má ekki vænta mikilla afreka til umbóta. Henni eru aS landslögum allar bjargir bannaSar. $. okt. 1917. Helgi Hjörvar.

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/518

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.