Nýja Ísland - 01.10.1904, Síða 7
37
ugri stúlku ofan úr sveit, verð ég því að
biðja yður að fyrirgefa dirfskuna og vona
ég þér gerið það, þegar þér hafið kynt
yður efni bréfsins. . Ég er vinnukona hérna
á Hóli, hálf þrítug að aldri, er uppalin hér
í sveitinni og hef aldrei stígið fæti mín-
um út fyrir hreppinn; er ég því alókunn-
ug öllum háttum annarsstaðar, en einkum
þó kaupstaðarlífinu, sem mest nauðsýn er
þó fyrir sveitastúlkur að kynna sér. Nú
er svo komið hag mínum, að ég er trú-
lofuð ungum og efnuðum pilti, sem vill
láta mig fara suður og læra þar nauðsýn-
leg búverk í vetur. Hér í sveitinni er
það skoðun manna og ég held jafnvel, að
einhver samþykt eða iög séu fyrir þvi, að
engin stúlka megi giftast eða taka að sér
heimilisstjórn, sem ekki hefir lært klæða-
saum ; og á hún trú’ ég að geta sýnt vottorð
frá útlærðum skraddara í Reykjavík, að hún
hafi verið á vinnustofu hjá honum að
minsta kosti þrjá mánuði og síðan jafn-
iangan tíma á hússtjórnarskóla þar. Við
hefðum að líkindum fengið okkur jörð og
farið að búa síðastliðið vor, ef fáfræði min
í þessum námsgreinum hefði ekki verið
þar þrándur í götu. Að vísu stunda kon-
ur hór ekki klæðasaum, því nálega allir
eru farnir að fá föt sín tilbúin hjá skrödd-
urum í kaupstöðum, eða þá hjá kaupmönn-
um sjálfum, sem eins og alkunnugt er flytja
hingað miklu ódýrari föt og vandaðri að
efni og verki, en tilbúin verða hér í land-
inu sjálfu, þá þykir þó vera nauðsýn á,
að konan, sem er auga heimilisins, geti
dæmt um hvort fötin fari vel eða iila á
heimilisfúlkinu. Sama er að segja um
matartilbúning. Hér þykir það skortur á
gestrisni, að hafa ekki kryddaðan mat á
reiðum höndum, ef prestinn sjálfan, eða
aðra heidri menn ber að garði; og að hafa
matinn kryddaðan í sveit er meiri nauðsýn
en í kaupstöðum. í sveitinni fáum vér t.
d. mjög sjaldan nýjan fisk og aldrei glæ-
nýjan, heldur sajtfisk, sem oft er úrgang-
uv og svo grásleppu annaðhvort herta eða
saltaða og oft misjafnt verkaða svo ekki
veitir af að krydda hana til þess hún yrði
góður, boðlegur matur handa hverjum
sem kemur. Úr henni mætti náttúrlega
búa til góða fiskasnúða og súpur ef rétt
væri farið að, en þar þarf meiri kunnáttu
til, en alment gerist hjá óbreyltum og
ólærðum aimúga-stúlkum í sveit.
Með því nú að ég er öllum ókunnug
í Reykjavík, en veit að þér eruð þar út-
smoginn um allar trízur og áreiðanlegur
og ráðhollur maður, og eftir ritum yðar
að dæma, hafið vist fádæma og frábæra
þekkingu á öilum hlutum, þá er það bón
mín til yðar, að þér vilduð útvega mér
verustað hjá einhverjum góðum skraddara
í Reykjavik og vera mór til leiðbeiningar
þar næsta vetur og senda mér nokkurn-
vegin áætlun um, hvað kosta muni vera
mín þar svo sem 8 eða 9 mánuði. Ég
hef hugsað mór að vera þar hinn lögboðna
tíma við skraddaranám, þrjá mánuði, og
aðra þrjá á hússtjórnarskóla, en auk þess
er vist nauðsýnlegt fyrir mig að læra dans
og komast niðui í söng ofurlítið, og þyrfti
ég því líklega að komast strax í eitthvert
gott dansfélag, en þau eru sögð mörg í
Reykjavík. Þá er leikfimi, hún er sögð al-
veg ómissandi fyrir sveitastúlkur meðan
þær dvelja í Reykjavík og hafa þar kyrset-