Nýja Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 6

Nýja Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 6
2 Magnús Benjamínsson úrsmiður Matthías Matthíasson verzlunarstjóri Ólafur Ólafsson prentari Sigríður Jónsdóttir húsfrú Sigurður Magnússon cand. theol. Stefanía A. Guðmundsdóttir ungfrú Steinunn Runólfsdóttir ungfrú Þóra Sigurðardóttir ungfrú Þorvarður Þorvarðsson prentari. Flestallir þessir stofnendur höfðu við ieiki fengist nieira og minna áður eða unnið við leikina. Á stofníundinum voru samþykt lög fyrir félagið, og hafði þar til.valin nefnd samið „frumvarp til Jaga“ fyrir það, er var sam- þykt að mestu leyti óbreytt, með nokkr- um viðaukum. í stjórn félagsins voru því næst kosnir: Formaður: Borvarður Þorvarðsson Skrifari: Friðfinnur Guðjónsson Gjaldkerí: Borgþór Jósefsson. Seinna um veturinn voru samþyktar „Reglur, sem gilda við æfingar og eins þegar leikið er“. Sömuleiðis voru tekin ákvæði um borgun til leikenda og ýmsra starfs- manna félagsins við Jeikina. Á aðalfundinum í Maí ’97 var stjórn sú endurkosin, er á stofnfundinum var valin, og leikstjóri (aðal-framkvæmdarstjóri við leikina) Kristján Þorgrímsson. Leiðbeinari („Instruktor") fyrsta veturinn var revisor Indriði Einarsson; en Halldór Jónsson banka- gjaldkeri tókst á hendur það starf, að á- kveða leikendum hlutverk („Roller") í leik- ritunum. Eítir nokkur ár var því breytt, þann- ig,aðleiðbeinariréði hlutverkaskipuninni; en oftast nær varð þetta að vera að meira eða minna leyti eftir samkomulagi við leikendurna. Því meðan borgunin við leik- ina var jafn lítil, og hún var fyrstu árin, og menn léku meir sér til gamans en í hagnaðar von, þá var ekki við að búast, að leikendur gengju að því, að taka við hverju því hlutverki, sem þeim var fengið. Það var fyrst haustið 1903, er félagið hafði fengið svo mikinn styrk, að það sá sér fært að horga leikendum hér um bil þrefalt. meira en fyrstu árin, að leikendurnir gengu að því, að taka skilyrðis- Jaust hvaða hlutverk, sem þeim yrði feng- ið í hendur. En þetta var miklu þýðingar- meira atriði, en margur hyggur, ef til vill; því einmitt áósamkomulaginu um hlutverkin strönduðu oft allar framkvæmdir félagsins um skemmri eða Jengri tíma, og hafði oft þvi nær ollað sundrungu þess. Það mun varla ofsagt, að það hafl gert félagsstarfið léttara um helming, þegar hægt varð að boiga leikendum svo, að þeir vildu skuld- binda sig t.il að taka skilyrðislaust þau hlutverk, sem þeim væru fengin í hendur. Frá stofnun félagsins til leikársloka 1904 hafa þessi rit verið leikin í Leikfélagi Reykjavíkur: Fyrsta leiltúr- (’OT-’OS). Leiðbeinari (,,Instruktör“) Indriði revisor Einarsson. 1. Ferða-æfintýrið, eftir A. L. Arncsen. (Lcikið 5 sinnum). 2. Æfintýrið i Rósenborgargarði, cftir J. L. Hci- berg. (Lcikið 5 sinnum). 3. Trina i stofufangelsi,* cftir D. Hansen. (Loik- in 1 sinni). 4. Aprílhlaup, eftir .T. L. Heibcrg. (Leikin 6 sinnum). 5. Sagt upp vistinni, eftir Oarl Mpller. (Lcikið 5 sinnum) 6. Æfintýri á gönguför,* eftir C. Hostrup. (Lcik- ið 4 sinnum). ‘) merkir, að leikurinn haíi verið leikinn í Reykja- vík af íslendingum áður en leikfélagið tók til starí'a.

x

Nýja Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja Ísland
https://timarit.is/publication/533

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.