Nýja Ísland - 01.10.1905, Síða 3

Nýja Ísland - 01.10.1905, Síða 3
iSftíjja fSslattó. Reykjavík, Okfóber. 1905. 7. blað. II. árg. ^arfir menn. ii. Saint Simon. (Framh.). Vér skulum setja sem svo, að Frakkland snögglega misti flmtiu beztu náttúrufræðinga sína, fimtíu beztu efna- fræðingana, flmtíu beztu liffærafræðingana, flmtíu beztu skáldin, flmtíu beztu málar- ana, flmtíubeztu myndasmiðina,fimtíu beztu tónsnillingana, flmtíu beztu bóklistamenn- ina“ o. s. frv. (hann heldur áfram að telja upp vélasmiði, byggingameistara, bakara, bankamenn, bændur, iðnaðarmenn og alls konar verkamenn, þá flmtiu beztu í hv.erri grein, þar til er þeir til samans eru orðnir þrjú þúsund). „Með því að þessir menn fram- leiða það, er mestu varðar fyrir landið og eru leiðtogaf þjóðarinnar í nýtustu verk- um lista og vísinda, sem og iðnaði, þá eru þeir í sannleika kjarninn í hinu franska þjóðfélagi. Það eru þeir, sem gera Frakk- landi mestan sóma og styðja bezt að menn- ingu þess og hamingju. Missir þeirra mundi gera þjóðina að sálarlausum líkama. Það mundi þurfa að minsta kosti líf heils ætt- liðar til að bæta þvílíkt tjón. En hugsum oss aftur á móti, að Frakk- land héldi öllum ágætismönnum sinum í vísindum, listum og iðnaði, en yrði fyrir því slysi einn góðan veðurdag að missa Ilina konunglegu Tign bróður konungsins, Ilinn háæruverðuga Iiertoga af Angouléme, Hinn háæruverðuga Hertoga af Berry, Hinn háæruverðuga Hertoga af Orléans, Hinn há- æruverðuga Hertoga af Bourbon, Hennar Tign Hertogainnuna af Berry, Hennar Tign Hertogainnuna af Bourbon, Hennar Náð Jungfrúna af Condé; hugsum oss ennfremur, að þjóðin samtimis misti stórofficera krón- unnar, alla ráðgjafana, hirðmarskálkana, kammerherrana, veiðijunkarana, kardínál- ana, erkibiskupana, biskupana, aðstoðar- presta og dómherra, alla ráðsmenn og und- irtyllu-ráðsmenn, alla stjórnardeilda-embætt- ismenn, alla dómara, sem og tíu þúsund auð- ugustu stóreignamenn, alls 30,000 manns. Þetta slys mundi áreiðanlega hryggja Frakka, því að þeir eru hjartagóðir rnenn og mundu ekki láta sér standa á sama um að horfa upp á svona mai ga landa sína hverfa snögg- lega. En missir þessara 30,000 manna, sein álitnir eru hinir ágætustu menn í rík- inu, mundi þó að eins valda sorg, af því menn eru tilflnningasamir, en ríkinu mundi hann ekki valda neinu tjóni. Hin auðu sæti mundu auðveldlega verða fylt. Margir eru þeir á meðal Frakka, sem gætu tekist á hendur stöðu bróður konungs- ins, eins og hans sjálfs. Margir eru færir um að vera prinz, einnig Hans Tign Her- toginn af Angouiéme, Ilans Tign ITertoginn

x

Nýja Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja Ísland
https://timarit.is/publication/533

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.