Sumarliljan - 01.06.1919, Page 10

Sumarliljan - 01.06.1919, Page 10
8 SUMARLILJAN. Fánaberinn. Sólin var að koma upp. Hann rendi augunum með eftirvæntingu eftir veg- inum. Svo settist hann við veginn. Gömlum minningum skaut upp í huga hans. »Herfylkið er stolt af þér O’Callaghan.* — En nú brosti hann biturt er honum varð litið á óhreinu fatatötrana, sem hann var í og gat- slitnu skóræflana. — Pannig til fara hefði hann eina tíð eigi getað mætt við herdeild sína. — »Herfylkið er stolt af þér O’Callaghan,® Ressi orð höfðu sí og æ hljómað fyrir eyrum hans, síðan þau voru mælt. Þau höfðu fært honum yl marga kalda nótt, látið hann gleyma kulda, þreytu og örbyrgð. Pau höfðu verið eins og litið blaktandi Ijós í tilveru hans á síðari árum. Á daginn, þegar hann gekk eftir þjóðveginum, var hann niðurlútur og göngulagið þyngslalegt, en kæmi hann í námunda við eitthvert þorp, rétti hann úr sér eins og af göml- um vana og gekk alveg teinréttur, röskum skrefum eftir götum bæjarins. En óðar og hann var kominn út úr bænum seig sama mókið á hann aft- ur. Oft hafði hann orðið að leita sér hvíldar og skjóls á fátækrahælinu en aldrei til lengdar, því fyrverandi fánaberi O’Callaghan við 24. her- fylki var á nokkurskonar pílagríms- ferð. Hann vildi enn þá einu sinni fá að sjá gamla fánann sinn, er hann hafði borið í svo mörgum orustum. En hann vissi ekkert hvar hið fyrver- andi herfylki hans hafði bækistöð sína. Sólin var komin hátt á loft. O’ Callaghan stóð upp og bjóst til að halda af stað. í því barst honum til eyrna Iúðrahljómur úr fjarlægð. Var það ímyndun eins og svo oft áður? Pað færðist nær og nær. Nú gat það ekki verið misheyrn. Gamalkunnugt hergöngulag hljómaði hátt og snjalt, og stór fylking djarflegra hermanna komu í áttina ti) hans. Gamli fána- berinn heilsaði á hermannavísu um leið og þeir gengu fram hjá. — Þetta var herfylkið hans! Cg ofurstinn var »drengurinn«, hann Tennen, eins og þeir höfðu kallað unga laut- inantinn. Síðustu hermennirnir fóru fram hjá honum, og hann fylgdi á eftir þeim. Nú var hann aftur O’ Callaghan fánaberi. Og hann gekk föstum skrefum og bar höfuðið hátt. O’Callaghan gamli faldi sig ábak við gluggatjöldin f foringjasalnum. Hann hafði orðið að laumast inn eins og þjófur til að fá að sjá gamla fánann sinn einu sinni enn, því heiðurs- merkin og viðurkenningarnar, er hann hafði hlotið í Indlandi, Afríku ogvíðar veittu honum eigi frjálsan aðgang hjá dyraverðinum og þjónunum. Hann sá nú ofurstann og foringja hans ganga hlægjandi að borðum og setjast. Hjarta hans sló ört. Nú fengi hann að heyra þá tala utn hreystiverk og stórar framkvæmdir. Hann lagði við hlustirnar. Ungur undirforingi fór að tala um teikhús

x

Sumarliljan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.