Sumarliljan - 01.06.1919, Page 11

Sumarliljan - 01.06.1919, Page 11
SUMARLILJ AN. 9 ................................. og dansleiki, dökkhærður liðsforingi kryddaði þetta umtalsefni með háðs- glósum og fyndni, einn sagði ljóta hryðjusögu o. s. frv. Gamli fána- berinn lét brún síga. En það hugg- aði hann þó, að ofurstinn var all- svipþungur og tók eigi þátt í þess- um samræðum. — Og þetta var i salnum þar sem þeir geymdu fánann, hinn blóðstorkna helgidóm. Fáninn hékk yfir sæti ofurstans. Undirhon- um höfðu þeir fallið O’Raurke, Donlau og O’Honlaus. Hann hafði blaktað I Alexandríu við Tel el Kebir..............— — — — Herbergið var autt og mann- laust þegar hann hrökk upp af minn- ingasvefni sínum. Hann gekk að fánanum. Hann stóð kyr og horfði á hann með tilbeiðslu. Alt í einu fekk ólgandi reiði yfirhönd yfir hon- um. Hann tók fánann ofan. Hann skyldi ekki hanga þar sem enginn sýndi honum virðingu. Hann skyldi taka h*nn og fara með hann. Hann skyldi heiðra hann til síðustu stund- ar; þar til hann mætti aftur hetjun- um, er höfðu elskað hverja felling á honum og látið lífið fyrir hann. Með skjálfandi hendi þrýsti hann fánanum að hjarta sér og læddist með hann út í myrkrið. — Dyravörður sá, er hafði neitað hon- um inngöngu, vísaði ofurstanum á slóð hans — til allrar hamingju fyr- ir herfylkið! - Þeir fundu hann í ^itlum eyðikofa skamt frá bænum. Snaresforth, yngsti foringinn, hafði tekið með sér hlaðna marghleypu, og Elton, aðstoðarforingi, staf með járnhnúð ávendanum. »Eg vona að hann sýni enga mót- spyrnu,« maplti Elton og veifaði stafn- um. »Hann hefði átt að láta þetta bíða til morguns; það er hart að þurfa að elta hann í þreifandi myrkri,« tautaði annar ergilegur. »Pögn!« skipaði ofurstinn. »Ann- ars getur hann sloppið.* Peir um- kringdu nú kofann. Ofurstinn gekk að glugganum og gægðist inn. Hann starði undrandi á það, er honum bar fyrir sjónir. öldungur í hðrmu- legum fataræflum kraup á knám fyr- ir framan garala tötralega fánann, í þögulli tilbeiðslu. Ofurstinn gekk að dyrunum, en undirforinginn í á- kafa sínum varð fljótari. Hann spark- aði opna hurðina og ruddist inn með skammbyssuna á lofti. — »Upp með hendurnar. þjófur!« hrópaði hann. Gamli fánaberinn stóð upp og breiddi ut armana eins og hann ætlaði að verja fánann. »Burt með skammbyssuna!* hróp- aði ofurstinn til Snaresforth. Svo sneri hann sér að gamla manninuin: »Hversvegna stáluð þér fánanum?« Varir O’Callaghans skulfu. »Af því eg elska hann.« Undir- foringinn yfti öxlum og tautaði eitt- hvað háðslega. O’Callaghan leit á hann. Undirforinginn þagnaði, og það var eitthvað í augnaráði gamla fánabérans, sem kom honum til að roðna. O’Callaghan greip um fán-

x

Sumarliljan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.