Sumarliljan

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sumarliljan - 01.06.1919, Qupperneq 15

Sumarliljan - 01.06.1919, Qupperneq 15
SUMARLILJAN. 13 .........................................""■■•>.. ... veður og vita um flóð og fjöru. Synda 50 metra í skyrtu, buxum og sokkum. Klifra upp 15 feta stöng. Þekkja flögg flestra þjóða. Öll slík merki eru hvít með rauðum ísaum og borin á upphandleggjunum Það er óhætt að treysta þeiin sem þessi merki bera í hverri grein, því þau eru aðeins gefin fyr fullkomna kunnáttu. Skátarnir hirða sig sjálfir. Þeir fara út í sveit með tjöld sín og lifa þar úti- legulífi. Þetta gera þeir til að njóta frels- isins og hreina loftsins. Þar læra þeir að lifa sjálfir, án þess að vera annara byrði. Þeir fara reglulega á fætur, ganga regiulega til matar og fara reglulega að sofa. Yfir höfuð eru Skátafélögin mjög þörf. Þau vekja dáð og dug í drengj- unum, og gera þá að inönnum. Stofnið því Skátafélög, stjórnið þeim og styðjið, þar til drengirnir geta tekið við þeim sjálfir. Reyktu ekki. —-o— Skáti reykir ekki. — Allir drengir geta reykt; það er svo sem enginn galdur, en Skáti er ajy^ of hygginn til að gefa sig við þvílíku. Hann veit að drengur, sem reykir áðuren hann er fullþroskaður, hefir mestu líkur til að verða, hjartveikur. Hjartað er mikilvægasta líffærið í lík- amanum. Það rekur blóðið út um lík- amann og býr þannig til bein og vöðva. Ef hjartað getur eigi unnið starf sitt sem þarf, getur líkaminn eigi verið hraustur og sterkur. Reykingar eyðileggja auk þess augun, og ef það er nokkuð sem Skáti á að varðveita, þá eru það þau. Það er áreiðanlega enginn drengur, sem hefir byrjað að reykja vegna þess að honum hafi þótt það gott, en dreng- ir halda oft að þeir stækki við að hafa vindling í munninum. Nei, þvert á móti. Þá fyrst sér maður hvílík börn þeir eru. Sértu byrjaður að reykja, þá burt með vindlinginn! Taktu þá föstu ákvörðun, að þú skul- ir aldrei reykja, fyr en þú ert orðinn fulltíða — og haltu hana. Það mun gera þig þess verðan að teljast með mönnum. Þú getur verið viss um, að félagar þínir munu virða það við þig, ef þeir sjá að þú ert óbifanlegur frá á- kvörðun þinni, og þeir munu ef til vill fylgja dæmi þínu. Oerðu þetta og þú munt geta gert mikið gagn í heiminum þó þú sért að- eins drengur. Athugasemdir Skátaforingjans. —0— — Útiferðir Skáta byrja um miðjan Maí og tjaldferðir í byrjun Júní, éf tíðin verður góð. Allir Skátar ættu að taka þátt í þeim, það er mikið skemtilegra en siæpast á götunni, eða sitja inni eins og fjörgamalt fólk. Enginn vandi með tjöld. • • • —v Nú í sutnar og framvegis má búast við miklum straum af útlendingum. Þeir þekkja mætavel Skátaregluna og munu snúa sér að hverjum Skáta sem þeir sjá að hegðar sér eins og Skátum ber, og fá þá sér tii Ieiðbeiningar eða fylgdar og ekki síst ef þeir hafa vegvísara merkið Skátar takið það! Auðvelt í svona smáu þorpi. • • • — Einhver góð kona ætti að stofna hér Skátafélag fyrir ungar stúlkur, þeim er engu síður þörf á heilnæmum útiæf- ingum en drengjum. Þær eru altaf að

x

Sumarliljan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.