Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 16

Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 16
14 SUMAíaiLJAN. skora á foringja Skátafélagsins að gang- ast fyrir að félag verði stofnað fyrir þær, En eins og menn geta séð á það ekki við fyrir karlmann. En allar upplýsing- ar myndu verða gefnar um fyrirkomutag- ið með mestu ánægju. En best væri að setja sig i samband við greifafrú Brochen- husshack, leiðtega fyrir skátafélag ungra stúlkna í DanmöVku. Greifafrúin hefir starfað mikið fyrir þetta málefni og hefir mikinn áhuga á því og mun með gleði láta í té allar nauðsynlegar skýr- ingar. Hver vill byrja hér? * • • — Skátastakkar úr ullardúkum eru nú feiknadýrir, en það er heldur engin þörf á þeim. Flestir Skátar í öðrum löndum nota dökkleitt skyrtuefni, (ódýrt) og svo sína góðu og gömlu treyju ef kalt er. Búningurinn má ekki vera til fyrirstöðu og á ekki heldur að vera neinn skraut- búningur. Það er ekki hægt að þekkja ensku eða dönsku prinsana frá fátækari félögum þeirra, í Skátasveitunum, af bún- ingnum. Hattarnir eru ekki dýrari en þeir voru. Inngangur í félagið kostar ekkert, • * • — Maður nokkur í London hefir gef- ið stórfé til byggingar skóla handa út- lendingurn, sem læra vilja forstöðu og stjórn á Skátafélögum. Góður grunnur er fenginn undur bygginguna skrifarBad- en Powell. Skólinn tekur til slarfa næsta vetur. Hverjir fara héðan? • • • — N. W. Hanssen, sem verið hefir foringi Skáta að undanförnu, fer alfarinn heim til Danmerkur. Allir góðir Skát- ar munu óska honum góðrar ferðar og ánægjulegrar heiinkomu, með vinsamleg- um þökkum fyrir samvinnuna. • * * — Léleg samvinna hefir alt að þessu átt sér stað meðal Skáta og ungmenna- félagsins. Til dæmis að Skátar þurftu að borga svo tugum skifti fyrir leikvöll- inn en höfðu aftur á móti yfirdrifið og ágætt húspláss í allan vetur, en ung- mennafélagið keypti húspláss, dýrum dómum. Þetta ætti ekki eiga sér stað oftar, því Skátar og ungmennafélagar hafa nákvæmlega sömu stefnuskrá. En Skátareglunni er ekki ætlað að ná lengra en til 17 ára aldurs, og þeir unglingar, sem ekki ætía að vera Ieiðtogar Skáta, verða því að leita að víðtækara sviði fyrir starfsþrá sína og þar verða ung- mennafélögin, vafalaust það besta, því þau renna inn í hin verulegu störf þjóð- lífsins. Það er því rangt af ungmennafélög- um að líta smáum augum á Skátahreyf- .inguna, því þaðan geta þeir vafalaust fengið góða félaga. * * * — Góðar bækur fyrir þá sem lesa énsku, eru: »Scouting for boys.* »How to make the most of live.« »Mind the step.« »Things all Scouts should know.« • Letters to a Patroll Leader. Alt eru þetta ágætis bækur og ættu fult eins mikið erindi að þeim væri snúið á ís- lensku eins og það safn af útlendum lyga- og glæpasögum, sem alt af er ver- ið að gefa út en sem skömm er að eyða tíma til að lesa, bæði málsins og efnis- ins vegna. • » • Einn af eldri borgurum þessa bæjar hefir sent Skátafélaginu 20 kr». Við þökk- um þessum sæmdarmanni innilega fyrir peningana en meira þó hin vinsamlegu orð hans, er gjöfinni fylgdu og sem báru vott um skilning hans á starfinu. * * » Það, sem allir góðir Skátar ættu að gangast fyrir, er það, að koma inn virð- ingu, hjáungumog gömlum,fyrir íslenska fánanum. Fáninn er merki ættjarðarinn- ar, allar þjóðir bera virðingu fyrir fána sínum, hann hefir blaktað yfir þeim sem létu líf og blóð fyrir ættjörðina, en þó

x

Sumarliljan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.