Sumarliljan - 01.06.1919, Page 17

Sumarliljan - 01.06.1919, Page 17
SUMARLÍLJAN. 15 llllkkliiilliiikllkliiiíélÉllíiiiiiiiiiiiimimiiuiimiiimiiiiuiiiiiliitiniiiiniiiiiiiiiiiimiiiilttitiiiliiliiihliiiiilHiiiiiiiiiiMiiiiiiiiilk okkar hafi eigi af því aö segja, þá verð- ur hann merki þjóðarinnar í framtíðinni og það er helg skylda allra þeirra, sem elska og virða ættjörð sína að skila fán- anum hreinum og blettlausum á fram- farabraut til komandi kynslóða. Það er blátt áfram svívirðilegt að sjá drengi og jafnvel fullorðna, kasta grjóti, snjó og allskonar óþverra í fánann, og ekkert er eins til að vekja fyrirlitningu hjá út- lendingum fyrir okkur sem slíkt athæfi. Það ber ekki heldur vott um virðingu þar sem fáninn er dreginn upp stag- bættur, óhreinn eða rifinn. Ef við viljum að aðrar þjóðir beri virðingu fyrir þjóðarmerkinu okkar þá verðum við fyrst að læra það sjálfir. * * * Eina skemtun hélt Skátafélagið hér í vetur til ágóða fyrir berklahælið, en af þeim sökurn að tvær aðrar skemtanir voru haldnar svo að segja samtímis, var skemtun þessi eigi sótt eins vel og ella ogágóðinn þar af leiðandi eigi eins mik- ill og æskilegt hefði verið þar eð hann var til styrktar jafnnauðsynlegu fyrirtæki. * * * »SumarIiljan« kemur út aðeins þetta eina blað, en í ráði er að Skátafélagið gefi út mánaðarlegt málgagn, er byrji að koma út i haust, óðar og myndamót koma frá Englandi, og vonandi sýna menn þeirri »Vetrarlilju« íslenska gest- risni. Myndir þær, sem eru í riti þessu, eru gjörðar af Vigfúsi L, Friðrikssyni aðstoðarforingja og ritara Skátafélagsins hér. * • * 1 19 Skáiar í Akureyrarsveitinni hafa tek- ið meira Skátaprófið, eftir alþjóða Skáta- reglum, að undanteknum þeim íslensku, sem samdar eru af A. V. Tuliníus, og sem eru helmingi þyngri, og eftir þeim er það aðeins minna próf. í reglum sín- um gerir Tuliníus ekki ráð fyrir neln- um auka merkjum, og ætlast að líkind- um til að þau innifelist í meira prófinu. Þetta er auðvitað einlægara en mikið erfiðara. B. Powell telur réttara að drengirnir fái smásaman viðurkenningu fyrir því sem þeir kunna og leggi sig sér- staklega eftir hverju atriði fyrir sig. Það er því ákveðið, að Skátar þeir, er tekið- hafa fyrnefnt próf og sem eru í félaginu fái alt liljumerkið, séu þeir syntir. Merkið kemur bráðum. Hæstu einkunn við prófið, hafði Vigfús L. Friðriksson, 71 stig (hæsta einkunn 72). Prófdómendur voru N. W. Hansen fyrv. foringi félagsins og konsúll O. Tulinius. Sönn hetja. Enskur Skáti Jack Cornwell að nafni fallbyssudrengur á herskipinu »Chester«. í orustunni við Jótland særðist hann til ólífis þegar í byrjun orustunnar, en vék þó eigi af verði fyr en orustunni lauk. Þessi frammistaða hans vakti almenna aðdá- un. Sir David Betty flotaforingi skriíár um hann til flotastjórnarinnar í athuga- semdum um orustuna: »Drengur að nafni John Travers Cornwell særðist lil ólífis í byrjun orustunnar, stóð þó eigi að síður í hinni ábyrgðarmiklu stöðu sinni, aleinn, því allir fallbyssuliðarnir voru fallnir umhverfis hann. Þögull og rólegur beið liann eftir skipunum yfir- manna sinna, þar til orustunni lauk. Ald- ur 15 ára. Eg harma dauða hans, en veit að nafn lians verður skráð í sögu enska flotans senr eins af trúföstustu og hugrökkustu hetjuni hans.« Einnigskrifaði kapteinninn á »Chester« til móður hans um hina fáheyrðu hreysti hans og trúmensku, og endar hann bréfið á þessa leið: »Hann stóð í hinni ógur- legu skothríð með hugdjarft hjarta og trú og traust á guð.« Fagurt eftirdæmi um trúlyndi og hug- rekki fyrir aðra Skáta.

x

Sumarliljan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.