Sumarliljan - 01.06.1919, Page 18
16 SUMARLÍLJAN.
Skátasöngur.
Lag: Af stað burt l fjarlœgð . . .
Fram Skátaflokkur! Fram á hciðardal.
Sko! fylkingin okkar er broshýrt drengjaval.
Vor œskustund er indæl, björt og hlý,
þá óspilt leikur gleðin sér hjörtum l.
Hve indælt er veðrið! Nú bíikat sólin blið
á bláhnjúkum háum og gyllir fjallahlið.
Húrra, hæ! Nú höldum við á braut,
og hopa skuíum eigi þótt mæti oss þraut.
* •
*
Vor fáni er hafinn nú förum við á stað
i ferðalag lífsins, þá takmark vort sé það:
að glæða alt, sem gott er hjá oss sáð,
og gefast eigi upp fyr en höfn er náð.
Skáti.
Hitt og þetta,
Skrítlur.
Frúin: »Eruð þér viss um að engar
bakteríur séu í mjólkinni?«
Mjólkurdrengurinn: »Já það er
áreiðanlegt þvi við sjóðum altaf vatnið
áðurenvið látum það saman við hana.«
Undirforinginn (við nýliða): »Þeg-
ar eg segi: „stans" þá Jyftið þið þeim
fæti sem þið standið á, upp til þess sem
á lofti er og standið þannig grafkyrrir.
Skiljið þið?«
Herlæknirinn: »Stamið þér altaf
svona, herra liðsforingi?*
Liðsforinginn: »N—n—nei, h —
herra doktor, a—a—aðeins þegar eg t—
ta—Ia.*
Spakmæli.
Byrjirðu á engu geturðu aldrei neitt.
1 mínúta á dag eru 6 stundir á ári.
Vinur ætti að bera hönd fyrir höfuð
vinar síns.
Það mótdræga verður léttbært við
hluttekningu.
Treystu mest á guð og sjálfan þig.
Það eru margir, sem hrópa hátt á
drottinn. Þeir gæta þess eigi, að hann
er altaf við hlið þeirra.
Dagurinn í dag er vor, en hver getur
sagt, að dagurinn á morgun tiiheyri oss.