Þjóðmál - 01.07.1972, Page 1

Þjóðmál - 01.07.1972, Page 1
2. árgangur Jufi 1972 1. tölubtaS —LASDSGúKASAfN----4-----------------------------------—------ 310 2 8 5 || Frá ritstjórn ÍSLANOS Þessi sumarútgáfa aí Vestmannaeyjablaðinu Þjóðmál er prentuð í 45 þúsund eintökum og verður blaðinu dreift um allt land. — í blaðið skrifa. Bjöm Jónsson, Bragi Jósepsson, Gunnar Thoroddsen, Halldór S. Magnússon, Hannibal Valdimarsson, Haraldur Guðna- gon, Haraldur Henrýsson, Magnús Torfi Ólafsson, Páll Líndal, Steinunn Finnboga dóttir. SAMCININ6ARMÁLIB Á SI6URBRAUT Tímabil þröngra stéttarflokka liðin tíð. Alþýðuflokkurinn hefur kastað teningnum í sameiningarmálinu. Framsóknarflokkurinn getur gegnt þýð- ingarmestu hlutverki i sameiningarmálinu — ef hann vill. ÍSLENDINGAR voru fljótir að átta sig á því, þegar þeim þætti sjálfstæðisbaráttunnar var að ljúka, sem að Dönum sneri, að flokkaskipting á nýjum grundvelli VÆRI NAUÐSYN. Um þær mundir varð til sú flokkaskipting, sem við í aðalatriðum búum við enn í dag. Gamlir flokkar hurfu eða tóku myndbreytingum, eða þeir sameinuðust öðrum flokkum. Forustumenn flokkanna, sem að þessum breytingum stóðu, reyndust raunsæir, og fólkið lét ekki á sér standa. Það hlýddi kalli tímans, skildi til fulls hin gjör- breyttu viðhorf. Líkt er ástandið nú. Við stöndum á tímamótum. Þjóðfélagsmyndin á íslandi nú er í grundvallar- atriðum öll önnur en sú, sem við blasti á árun- um 1916 - 1918. Þar af leiðir, að við þurfum allt aðra flokka- skipan en þá, sem mótuð var við hæfi þess tímabils. íhaldsöflin hafa sameinast í stórum og s-terk- um flokki, sem að ÖLLU ÓBREYTTU hefur yfir- burðasterkasta aðstöðu til að ráða stjórnmála- þróun næstu ára. Þetta stjórnmálaafl varð til við sameiningu tveggja flokka. Á vinstra kanti stjómmálanna eru hins veg- ar þrír verkalýðsflokkar, og auk þess er svo sá flokkurinn, sem fyrst og fremst taldi sig BÆNDA- FLOKK í vaxandi mæli að seilast eftir stuðningi og trausti verkalýðsstéttarinnar í bæjum og kaup- túnum. Það er bein afleiðing breyttrar þjóðfélags- þróunar. Tímabil þröngra stéttaflokka er liðin tíð. Það, sem nú þarf að gerast, er einfaldlega þetta: Þeir, sem ekki eiga samleið með flokki íhalds- og auðhyggjuaflanna, og vilja ekki stuðla að því, að hann fari lengur með völd á íslandi, en a? hyllast kenningar lýðræðislegs sósíalisma og sam- vinnustefnu, eiga að þoka sér saman í einn skipulagðan stjórnmálaflokk, sem á örskömmum tíma gæti þá orðið meginafl íslenzkra stjórnmála. Að öllu óbreyttu um skipan flokka hér á landi, má af fenginni reynslu sjá þá þróun fyrir, að Sjálfstæðisflokkurinn kippi til sín til stjórnar- samstarfs einhverjum hinna fjögurra vinstri flokka, taki hann á hægra brjóstið, veiti honum vel um sinn, en ráði sjálfur meginstefnunni. Þetta hlýtur að vera viðbjóður sérhverjum ó- spilltum vinstri manni. Svona má þróunin ekki verða. En þetta er þróun óbreyttrar flokkaskip- unar. Á þessu er nú að fást fullur skilningur meðal vinstri sinnaðra kjósenda í landinu. Samtök frjálslyndra og vinstri manna telja það sitt meginhlutverk að rjúfa núverandi flokkakerfi. Alþýðuflokkurinn hefur nú kastað teningun- um. Ég er orðinn sannfærður um það, að hann vill heils hugar ganga til sameiningar. Og engum getur dulizt það, að innan Fram- sóknarflokksins vex sameiningarmálstaðnum ört ViihorfAlþýðuflokksmanna til sameiningar Grein sú, sem hér fer 4 eftir birtist sem leiðari í síðasta tbl. Skagans, blaði Alþýðuflokksins í Vestnr- landskjördæmi. — I»að er skoðun blaðsins að grein þessá endurspegli viðhorf hins almenna flokksmanns í Alþýðu- flokknum til sameiningarmálsins. Verður áirið 1972 tímamótaár í sögu flokkaskip- utxar hér á landi? Sameinast Alþýðuflokkurmn og Samítöik frjálslyndra og myndast nýtt affl á vinstri væng íslenzkra stjómmála? Þessar spuimingar brenna sjálfsagt á vörum margra, er velta fyrir sér, hver verði niðurstaðan á sameinángarviðræð- unum, sem fram hafa farið síðustu misseri. Svarið við þessum spuminugm blýtur að fást á næstu mánuðuSn. Þessar vsðræður em augsýni- lega að komast á það stig, að ekki getur dregist lenjg,i að úr þessu verði stocwið. En þegar er ljóst, að hvorki F ramsóknarflokkurinn né Alþýðubanda- lagið hafa neinn áhuga á því að renna saman við aðra flokka, og kemur það fáum á óvatrt. Kjami sameininigarmálsáns, er því, eisns og vita mátti, hugsanlegur samruni Alþýðiuflokksins og Samtaka frjálslyndra og ef til vill filerri aðila í ný stjóm- málasamtök — nýjan íslenzkan fibokk jafnaðar- manna. Engum getur dulist, að ýmsir eríiðleifcar hljóta að vera því samfara, þegar tveir flokkar renna sarnan í einn. Þeir erfiðleihar eru sjálfsagt af skipulagslegum toga spurmir, svo og kunna breyti- leg viðhorf til sumra dægurmála að vaida ein- hverjum vandkvæðum. Sú staðreynd. að annar aðilinn er þátttakandi í núverandi ríkisst'jóm en hinn er utan hennar, getur gert þetta mál eitthvað flóknara. En þegar þetta er borið saman við það, sem þess’ir flokkar eiga sameiginlegt í grundvallar- atriðum stjómmálanna og þá ríku þörf, sem er á því, að tnynda einn stóran og heilsteyptan flokk jafnaðannanna hér á landi bljóta þessir erfiðleik- ar að teljast smávægilegir. Kjami sameiningarmálsins er þvi spurning um vilja. Hvort Alþýðuflokkurinn og Samtök frjáls- lyndra og einstakir félagar í þessum tveim flokk- um vilja halda áfram á braut eilífrar sundrungar vinstri aflanna eða snúa bökum saman og skapa nýtt stjómmálaafl framtíðarinnar. Afl er hefði mikla möguleika á því að ryðja sameignlegutn stefnumálum allra jafnaðarmanna greiðari braut um allt þjóðfélagið, en verið hefur til þessa. Og gegna stærra hlutverfci í íslenzkum stjómmálum, en þessir flokkar geta gert sér nokkra von um sundraðir. — G. Ve. fylgi. Ungu mennirnir hafa leitt þá baráttu, og' nú er svo komið, að þeir njóta þegar stuðnings margra mætustu manna eldri kynslóðarinnar innan flokksins. Málið er því á sigurbraut. Þeir íhaldssamari innan Framsóknarflokksins telja hann eiga að gegna hlutverki MILLI- FLOKKS. En hvert yrði hlutverk hans sem milliflokks? Ég- fæ ekki séð, að það geti að öll- um jafnaði orðið annað, en að seilast eftir sam- stjórn með íhaldinu. — Þ.e. hlutverkið yrði hið sama og Alþýðuflokksins varð um skeið — AÐ VERA HÆKJA ÍHALDSINS. Framhald á 15. síðu

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.