Þjóðmál - 01.07.1972, Qupperneq 14
14
Þ J Ó Ð M Á L
JUL ,Qi2
. . . Það verður að teljast meðal furðuverka 20. aldarinnar, að enn skulum við ekki hafa fengið
hentugt og hraðskreytt skip ta að annast daglega farþega-, vöxu- og bílaflutninga milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar. . .
Valdið, tækin
og baráttan
Framhald af 2. síðu.
togara fyrir 6 milljarða króna
næstu 4 árin og þegar samið
um og ráðstafað 39. Það er ekki
eytt að því orði, að erfitt kunni
að verða að manna öll þessi skip.
Það er gott að fá ný og góð
skip, en sumir eru svo gamal-
dags í hugsunarhætti, og ég er
meðal þeirra, að áltka að hægari
og ég vil segja eðlileg árleg
aukning væri betri. En við skul-
um æda, að þessi lítt undirbúna
sókn heppnist vel.
Sitthvað skyldi þó hafa í huga.
í veiðimannaþjóðfélagi okkar
hefur allt kapp verið lagt á
magnið, meiri aflaföng, en Iít-
illar fyrirhyggju gætt um gæðin.
Þetta er þó að breytast, en betur
má ef duga skal. Rányrkja á
landi og hafi verður að hætta.
Vísindalegt eftirlit með fiskstofn-
unum verður að vera virkt.
Mengun á sjó og landi eykst,
þó enn séum við skár settir en
margir aðrir, en hversu lengi?
Hér er fátt eitt talið, en að
mörgu að hyggja.
Mikilvægt
frumkvæði
íslendinga
Framhalcf~áf 5. síðu.
12 mílna fiskveiðilögsögu því
verði að gefa upp einhliða út-
færslurétt sinn og eiga þeir þó
allra þjóða mest í húfi.
En þrátt fyrir það að við
stöndum dyggilega vörð um ein-
hliða útfærslurétt olckar hljót-
um við engu að síður að taka
ríkan þátt í því starfi sem miðar
að því að koma á alþjóðalögum
um hafið og nýtingu auðæfa
þess. Okkur er það mikilvægt að
í þeim Iögum verði tekið fullt
tillit til hagsmuna ríkja eins og
okkar, og því verðum við að
hafa okkur allmjög í frammi
við þá lagasmíð. Nú er verið að
undirbúa ráðstefnu um þessi
mál, sem halda á sumarið 1973
til að reyna að ná samkomulagi
um alþjóðalög. Hafa verið haldn-
ir nokkrir fundir til undirbún-
ings þeirri ráðstefnu og stendur
nú einn slíkur fyrir dyrum í
Genf. Enn ríkir mtkill ágrein-
ingur um þessi mál, ekki sízt
um víðáttu fiskveiðilögsögu og
er mjög óvíst hvort takast muni
að ná samkomulagi á ráðstefn-
unni 1973. Hins vegar er það
greinilegt, að þeirri skoðun vex
ört fylgi, sem viðurkennir ríkan
rétt strandríkja til nýtingar og
verndar fiskistofna út af strönd-
um þeirra. Ég hygg, að framlag
íslendinga í þessum málum eigi
ekki lítinn þátt í þessari skoð-
anamyndun. Ymsir hafa gagn-
rýnt okkur fyrir að lýsa yfir ein-
hliða útfærslu svo skömmu áður
en alþjóðleg ráðstefna er haldin
til að reyna að setja reglur um
þessi mál. Að mínu mati var
þetta hins vegar mjög hyggileg
ráðstöfun. Hún hefur án efa
stuðlað mjög að því, að fjöldi
ríkja, sem . áður voru í óvissu
um hváð gera skyldi, gera sér
nú enn Ijósari grein fyrir því, að
lögbinding 12 mílna reglunnar
nú yrði frá upphafi dauður bók-
stafur, sem útilokað yrði að
framfylgja. Ég held, að það sé
ekki ofmælt að nú sé þessi hug-
mynd um 12 mílur, sem stór-
veldi Vestur- og Austur-Evrópu
bera einkum fyrir brjósti, með
öllu dauðadæmd. Er það áreið-
anlega ekki sízt að þakka á-
kveðnum yfirlýsingum okkar um
enn frekari útfærslu. Það er
heldur ekki fjarstæða að telja,
að allt frá setningu landgrunns-
laganna 1948 hafi íslendingar
átt stóran þátt í mótun alþjóða-
réttar á sviði landhelgismála.
Hagsmunir þeirra krefjast þess,
að þeir verði þar enn í farar-
broddi unz marki landgrunns-
Iaganna er náð að fullu.
Haraldmr Henrysson
Vestmannaeyjar tengist fastalandinu daglegum ferðum
Framhald af bls. 11.
hljótum því að ætlast til að full-
trúar okkar á Alþingi krefjist
þess sjálfsagða réttar af fullri
einurð í stað þess að knékrjúpa
við fótskör valdsins eins og bein-
ingamenn og þiggja bljúgum og
þakklátum huga þær Ieifar, sem
í þá kann að vera fleygt, þegar
aðrir eru staðnir upp frá borði
með mettan kvið. Höfum við
öllu Iengur skap til að sitja uppi
með slíkar rolur, sem fulltrúa
okkar í sölum Alþingis? Það
verður varla sagt, að ástandið í
samgöngumálum Eyjanna beri
vott um, að fulkrúum þeirra sé
ljós þessi skýlausa réttarkrafa,
eða sýni manndóm þeirra og
reisn.
Það verður að teljast meðal
furðuverka 20. aldarinnar, að enn
skulurn við ekki hafa fengið
hentugt og hraðskreytt skip til
að annast daglega farþega-, vöru-
og bílaflutninga milli Vestmanna,
eyja og Þorlákshafnar. Hér er
ekki um að ræða neina góðgerð-
arstarfsemi fyrir okkur Vest-
mannaeyinga. Hér er einimgis
um að ræða almennt réttinda-
mál fyrir íbúa þróttmikils
byggðarlags, þar sem samgöngu-
aðstaða er slík að til verulegs
óhagræðis er í atvinnu-, efna-
hags- og menningarmálum. Þetta
er því ekki einungis hagsmuna-
mál okkar Vestmannaeyinga. Það
er hagsmunamál alþjóðar að
Vescmannaeyingum sé sköpuð
sem bezt aðstaða til þeirrar sjó-
sóknar, sem er þjóðarbúinu svo
mikilvæg, en ekki sett skör lægra
en aðrir þegnar þjóðfélagsins."
Þjóðmál rnunu halda áfram bar-
áttu fyrir þessu réttlætismáli,
sem Eyjamenn eru staðráðnir í
að leiða til sigurs með illu eða
góðu.
Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
SFV
SFV
SFV
SFV
SFV
SFV
SFV
SFV
Ég undirrit........óska eftir að gerast félagi í Samtökum frjáMyndra
og vinstri manna. (Þeir sem eru á aldrinum 16 til 19 ára tilgreini
aldur.)
f
r«>>I*>>7*=*-*>>T-T*7«7*I*i*I*I*I*T*>í-X*r->>>>I*7*T*7*7«7.7*T*T*} r*T*T*T*»T*T*>T-'- • • • • •
(beimilisfang) (bœr, sýsla)
Umsóknin sendist til viðkomandi SFV-félags þar sem þau eru starf-
endi, eða til framkvæmdastjóra SFV, Halldórs S. Magnússonar, Póst-
h<Mf 1141, Reykjavík.
Gerizt félagar í Samtökunum
Árið um kring
halöa sitranderðaskip vor uppd
sigling'um kringum land með
fólik og vaming, og tengja oft
nálaagar og fjarlægar byggð-
ir á þýðingarmikinn hátt.
Lyftibúnaður skipanna er fyr-
ir allt að 20 tonna þunga til
stuðnings tækniþróun og vél-
væðingu.
Skipin hafla frysfirúm til
ffiutnings matvæla fyrir inn-
lendan og erlendan markað
c»g vegnra beitu fyrir sriávar-
útveginn.
Stefnt er að arjikinni védvœð-
inigru til þeiss að gera upp- og
útskipun fljótleigri og ódýr-
ari, en árangur á þvi svdði
byggist, mjöig á samvinnu við
vörusendingar, sem þurfa
siem flestir að afgreiða frá
sér vörueiningar, t.d. á pöll-
um, sam hemta vólvæðing-
unni, og óskiasit góð sam-
vinna um þetita.
Skipaútgerð rikisins.
_______________________________I
Greióasta 1
leióin
er í lofti
Flugfélagið tengir alla landshluta með tíðum-
áætlunarferðum fyrir farþega og vörur.
Það er f Ijótt, þægilegt og ódýrt að ferðast með
hinum vinsælu Fokker Friendship skrúfuþotum
félagsins innanlands.
35 ára reynsla Flugfélagsins og landsmanna
sýnir, að greiðar samgöngur í lofti eru
þióðarnauðsyn.
Tilkynning
um
innheimtu
afnota-
gjalda
til
Ríkis-
útvarpsins
Með tilvísun til laga 49/1951 sbr. 18. gr.
útvarpslaga nr. 19 frá 5. apríl 1971, er hér
með skorað á alla, sem skulda afnotagjöld
til RíkisutVarpsins, að greiða gjöld þessi
þegar í stað.
Þeir sem vanrækja að gera full skil, mega
yænta þess, að viðkomandi sjónvarpstæki
verði seld á nauðungaruppboði til lúkning-
ar greiðslu skuldanna án undangengins lög-
taks og frekarí innheimtuaðgerðum, ef þörf
krefur án frekari aðvörunar.
RÍKISÚTVARPIÐ