Þjóðmál - 01.07.1972, Side 16

Þjóðmál - 01.07.1972, Side 16
OFRÍKI VALDSINS ER MENNINGUNNIHÁSKI Rá 18. tfl 28. júra' sat á rðkstálum í Helsingfors ráðstefna Evrópu- ráqa, hakfin á vegom UNESCO, Menningar- og frasðátistofmtnar Sameimiðu þjóðanna. Ráðstefnan fjaUaði um stefnu ríkisstjóma í meaoingarmálum og hafði uodirbúnikigur af hálfu UNESCO staðið árufH caman Ráðstefnuna sóttu þeir ráðherrar sem um menningarmál fjalla í flestum Evrópuríkjum, svo sem Eccles lávarður frá Bretlandi, fni Fúrtséva frá Sovétríkjunum og Duhamei frá Frakklandi, svo nokkr- ir séu nefndir. Það sýndi sig á ráðstefnunni, að þótt samstarfsvilji í metmingarmákim sé fyrir hendi, torveldar ágreiningur um grund- vallaratriði sameiginlegar niðurstöður. Fulltrúar Sovétríkjarma og sumra annarra Austur-Evrópuríkja héldu ákaft fram sjónarmiðum sínum um forsjá og forræði ríkis- valdsins í mentringarefnum og báru fram tillögur sem í raun fólu í sér hömlur á tjáningar-og skoðanafrelsi. Meðal þeirra sem eindregn- ast beittu sér gegn þessum málflutningi voru fulltrúar Norðurlanda. Af íslands hálfu sat Magnús T. Ólafsson menntamálaráðherra ráð- stefnuna í þrjá daga, en Knútur Hallsson skrifstofustjóri í mennta- rrtálaráðuneytinu sat hana alla. í Iok almennra umræðna á ráðstefn- untri tók Magnús T. Ólafsson til máls og flutti ræðu þá sem hér birtíst. Þegar fulltrúar allra Evrópu- rflcja koma saman á vegum UN- ESCO, fet vait hjá því að al- menningur værrti þess að árang- ur verði, ekki sízt þar sem UN- ESCO hefur fengið það orð á ag, að starf á vegum stofnunar- innar beri ávöxt, jafnvel þótt þar sé um að rasða hin torveld- ustu og umdeildustu viðfangs- efbi. Vona ber að svo fari eim í þetca skipti, því augljóst má vera, að hér er fjaflað um ýmis veiga- mestu atriðin í menningarþróun Evrópu um þessar mundir. Inntak sjálfs hugtaksins Evrópa er sameiginlegur menn- ingargruodvöllur í lífi Evrópu- þjóða. Stjómfnálaágreiningurinn sem skilur þjóðirnar að er öll- um Ijós, svo ef menn vilja stuðla að því að hugtakið Evrópa gegm sameinandi hlurverki í álfunni, verður að leggja áherzlu á þá þætti menningarlífs í víðasta skflninigi sem öllum eru sameig- inlegir. Áherzla á íjölbreytni Ég tala hér í nafni einnar af minnstu þjóðum Evrópu. Fyrit þá sök hefur verið ánægjulegt að heyra, hvílíka áherzlu ýmsir ræðumenn hafa lagt á þýðingu og gildi fjölbreytai og sérleika í menningarefnum. Þetca et gleðilegt fráhvarf frá tilhneig- ingu sem oft hefur gæct til að kenna margt af bölinu sem álf- una hefur þjakað einmitt þess- um sérleika, viðleitni sérhvers þjóðemis til að krefjast lífssldl- yrða fyrir menningarhefð sína. Ræða Magnúsar T. Ólafssonar, menntamálaráðherra á ráðstefnu í Helsingfors um stefnu Evrópuríkja í menningarmálum pjóímuil 2. árgangur — Júlí 1972 — 1. tölublað Fagna ber, ef nú er á enda sá tími, þegar leitazt var við að undiroka smáar menningarheildit einhverri drottnandi menningar- hefð með meira eða minna vald- boði. Ef grannt er skoðað kemur nefmlega í ljós, að ekki verður um deilt að margir glæsilegustu ávextir evrópskrarmenningareru sprottnir úr jarðvegi þjóðerna sem áttu í höggi við yfirráð og vanþóknun drottinvalds. Af þessu má álykta, að aflar ráðtafanir sem stuðla að því að þurrka út fjölbreytni, að steypa alla í sama mót, eru til ílls og menningarfjandsamlegar í bók- staflegri merkingu. Reynsla íslendinga Reynsla íslendinga, tvö hundr- uð þúsund manna samfélags, er að sjálfsögðu svo sérstæð að lítið verður þangað sótt til að varpa Ijósi á mörg þau málefni sem hér eru til umræðu. Þó tel ég ómaksins vert, að vekja athygli á sérstöku einkenni menningar- þróunat á íslandi, sem varðar mál sem hér hefur borið á góma. Við íslendingar höfum á skömm- um tíma, eiginlega þessum sjö áratugum sem liðnir eru af öld- inni, færzt milli menningarstiga, frá fábrotinni sveitamenningu sem bar svip af miðöldum til nútímalegra þjóðfélagshátta, þar sem framleiðslukerfið er nátengt mörkuðum beggja vegna Atlants- hafs. Það sem við erum hreyknastit af í mótun stefrau í menningar- málum, et að okkur hafa heppn- azt þessi umskipti af einu stigi hagþróunar á annað án þess veru- leg brotalöm kærni í menningar- samhengið. Enn í dag getur hvert og eitt Iæst barn á fslandi lesið sér til gagns fornar sögur ritaðar á tólftu eða þrettándu öld, og tungumál vfkinganna með margbrotnu beygingakerfi sínu hljómar nú af vörum flug- manna og tölvutækna. Félagslegar rannsóknir á fs- landi eru ekki svo umfangsmikl- ar, að unnt sé að Ieiða óyggjandi rök að því sem hér er haldið fram, en við íslendingar erum þess fuflvissir að mcginástæðan til, hversu snurðulítil umskiptin milli menningarstiga hafa orðið, er sú staðreynd, að þjóðmenn- ing íslendinga hefur aldrei verið takmörkuð við sérstaka stétt í þjóðfélagimi. Sá hluti þjóðaritm- ar, sem lætur sig menningarmál varða, var og er engu síðut úr röðum bænda og erfiðismanna en hópi embættis- og mennta- Framhald á bls. 13. I I FAXI skrifar: ! Úskin um að eignast þak yfir höfuðið er orðin að hefð á (slandi Hinn 10. janúar sl. sendi stjórn Húseigendafélags Vest- mannaeyja erindi til alþingis- manna, til sjónvarps, úrvarps og dagblaða, vegna gildistöku nýja fasteignamatsins. — Efni þessa erindis til hirrna 60 þjóð- kjörnu fufltrúa, til stjórnmála- flokkanna og fjölmiðla var á þá Ieið að óska eftir að íbúðar- húsnæði til eigin nota yrði skattfrjálst, sem annað sparifé Iandsmanna. í ofangreindu bréfi stjórnar Húseigendafélags Vestmanna- eyja segir á þessa leið: „Eitt er þó nauðsynlegast, sem stjóm Húseigendafélags Vestmanna- eyja leggur höfuðáherzlu á í umboði íbúðaeigenda í Vest- mannaeyjum og leyfir sér að halda fram, að hún mæli hér einnig fyrir munn aflra hinna mörgu íbúðaeigenda um land allt, að íbúðarhúsnæði til eigin nota verði skattfrjálst sem ann- að sparifé. Öllum er ljóst að höfuðhugsun hvers ábyrgs fjöl- skylduföður á íslandi er að eignast þak yfir höfuðið fyrir sig og sína fjölskyldu. Hinn al- menni borgari sparar oft fjár- magn heiflar ævi í að geta um frjálst höfuð strokið í eigin húsnæði, er ellin fer að og þrek þverr. Sparifé í banka og spariskírteini ríkissjóðs em réttilega skattfrjáls. Svo þarf að Ieiða í lög um fjármagn í íbúð fyrir eigin fjölskyldu. Eins og nú er, munu vel 80% af íbúðarhúsnæði á íslandi vera í sjálfseign, sem er algjör sér- staða íslands miðað við önnut Iönd. Sérstaða, sem er öfunduð af grannþjóðunum og ber að keppa að að halda, en ekki drepa niður. Einkum og sér í lagi er það stórháskaleg stefna í löggjöf, er fram kemur í fmmvarpi til laga um tekju- stofna sveitarfélaga, að afhenda sveitarfélögum sem grundvöll undir skattálögur í æ ríkara mæli íbúðir manna, þetta spari- fé heillar ævi margs alþýðu- manns, og hann búinn að greiða afla skatta af, þegar þess var aflað. Það væri óeðlilegt, óréttlátt og þjóðhagslega skað- Iegt. Hér er um að ræða frek- lega árás á frumkvæði manna til að koma þaki yfir sig og sína. Þær era þó ótaldar auka- vinnustundirnar, sem margur Ieggur á sig utan daglegs vinnutíma við að koma upp eigin húsnæði. Hér er því veg- ið að einhverri dýrmætustu verðmætasköpum í þjóðfélag- inu, sem verður eftir skilin var- anlega fyrir niðjana. Stjórn Húseigendafélags Vestmaima- eyja skorar á yður til liðsinnis þessu réttlætismáli afþýðu manna, að gera íbúðarhúsnæði maima til eigin nota skattfrjálst eins og annað sparifé, og fyrsti liðnrinn í þeirri framkvæmd verði að fella niður úr fram- varpi til laga urn tekjustofna sveitarfélaga a-Iið 3. greinar og taka fram, að íbúðir til eig- in nota séu með öllu tmdan- þegnar fasteignaskatti, enn- fremur komi ákvæði inn í framvarp til Iaga um breytingu á lögum nr. 68, 15. júní 1971 um tekju- og eignaskatt, 11. gr., að íbúðarhúsnæði til eigin nota verði undanþegið eignar- skatti og ekki verði mönnum framar reiknuð til skatts húsa- leiga fyrir að búa í eigin hús- næði.” Hér lýkur tilvitnun úr bréfi Húseigendafélags Vest- mannaeyja. Hér er um mjög athyglis- vert mál að ræða, sem ástæðu- laust er að svæfa enda þótt lögin um tekjustofna sveitar- félaga séu orðin að veruleika, og ekkert tillit hafi verið tekið til þessa erind'is frá stjórn Hús- eigendafélags Vestmannaeyja. Því fer víðsfjarri að hér sé verið að draga úr gildi og þörf traustra tekjustöfna fyrir sveit- arfélögin, en þessi aðferð, sem hér er viðhöfð stingur algerlega í stúf við þá grandvaflarstefnu og frjálshyggju, sem íslenzka þjóðin hefur borið í brjósti frá öndverðu. Ef tilgangurinn með þessari skattlagningu er sá, að ná til skattsvikaranna, er augljóst að hér hefur verið flausturslega að unnið. Vænt- anlega mtrnu þingmenn og stjóm taka þetta mál til endur- skoðunar strax á næsta þingi, og koma að einhverju leyti til móts við þær eðlilegu og rétt- látu kröfur, sem hér hafa verið bornar fram. Ábyrgðarleysí opínberra embættísmanna er orðið að þjóðarmeínsemd Að sjálfsögðu má deila um réttmæti þessa máls, en hitt er ef til vill mun alvarlegra þegar þjóðkjörnir fufltrúar fólksins upp til hópa, afflit stjórnmálaflokkarnir, dagblöðin, útvarp, sjónvarp, hunza alger- lega erindi þessa fjöldasam- taka húseigenda. En hér er ef til vill komið inn á mál, sem ástæða væri til að róta harka- lega við. Á síðasta áratug hefur fjöldi íslenzkra námsmanna erlendis farið ört vaxandi. Þetta er eðli- legt hjá fámennri þjóð, sem ekki hefur tök á að veita þá fjölbreytrri í framhaldsnámi, sem aðrar og stærri þjóðir geta veitt ungu námsfólki. Nám ís- Iendinga erlendis kostar þjóð- ina tugi miljóna árlega og flest af þessu fólki leggur á sig mikla vinnu og erfiði til þess að öðlast hin ýmsu réettindi. Takmarkið með öllu þessu er þó fyrst og fremst það, að búa sig undir lífsstarf í íslenzku athafnalífi, sem stöðugt verður fjölbreyttara með hverju ári, sem líður. Þegar þetta er haft í huga mætt ætla að ýmsir embætetis- mannahópar (sem hafa með málefni menntamanna að gera og tengsl menntunar við at- hafnalífð) sýndu áhuga á mál- efnum þessa fólks. Svo virðist þó ekki, því legigja má fram, ekki tugi, heldur hundruð bréfa og annarra gagna frá náms- mönnum og öðram íslending- utn við störf erlendis, sem benda ótvírætt til þess að ís- Ienzkir embættismenn hafa ekki, hver svo sem ástæðan kann að vera, veitt þessu fólki þá þjónustu, sem eðlileg mastti teljast. Það er orðið móðins að tala um menntun fyrir ungu kyn- slóðina. Þess vegna eiga allir að menntast og peningum til menntunar er ausið ábáðabóga en þar með virðist hinn hug- sjónalegi grandvöllur kerfisins enda. Hinn langskólamenntaði er að verða að villuráfandi sauði, sem þjóðfélagið hefur ekki hugmynd um hvað á að gera við. Embættismenn og stofnanir í þessu steinranna kerfi standa uppi, sem ábyrgð- arlausir og forpokaðir fulltrúar hins liðna. Erlendir vísinda- menn, skólamenn, viðskiptafull- trúar og aðrir áhugamenn um íslenzk málefni verða mjög oft varir við þessa undarlegu fram- komu og ókurteisi íslenzkra. embættismanna. Hinn almenni borgari hefur einnig misjafna sögu að segja af viðskiptum sínum við hið opinbera, þessa þjóna almennings, sem orðnir era að einstrengingslegu valdi, sem ógnar grandvallarinntaki lýðræðisþjóðfélags, sem við höfum kosið okkur til handa. Er unga kynslóðin að verða að forréttindastétt í þjóðfélaginu? Þær raddir verða nú æ há- værari, meðal þess fólks, sem komið er yfir miðjan aldur, að unga kynslóðin sé heimrafrek, ábyrgðarlaus og vanþakklát. Sennilega i/afa kynslóðaskipti aldrei verið jafn áþreifanleg og nú. Kynslóðin, sem óx upp úr bændaþjóðfélagi fyrri hluta ald- arinnar sá hilla undir dagsbrún þess margbrotna nútíma þjóð- félags, setn við eram að skapa í dag. Menntun þjóðarinnar á hverjum tíma hefur bein áhrif á efnahagslífið, valdastéttir og stöðu einstaklingsins í þjóðfé- laginu. Með aukinni menntun og velmegun breytist afstaða fólksins til hinna ýmsu verð- mæta, til réttlætis, til valdsins, til mannréttinda, til frelsis og ábyrgðar. Sú stöðnun, sem hefur átt sér stað í íslenzkum mennta- málum á undanförnum áratug- um er nú verulega farin að segja til sín. Það er einmitt aff þessum sökum, sem okkur er mikill vandi á höndum. Gagnrýni ungu kynslóðarinnat á úreltum kennsluháttum og stöðnun í atvinnuháttum er réttmæt. En vandamálin verða ekki leyst með því að sleppn öllum takmörkunum og að- haldi og láta ungt fólk vaða uppi með frekju og ofstæki Sannleikurinn er einmitt sá, áð ungt fólk vill fesra og stjórn- semi, en þá verður líka að ætlast til þess, að þeir, sem stjórna hafi víðsýni og skiln- ing á þeim tíma, sem við lif- um á og því breytta gildismati mannúðar og friðarstefnu. sem svo mjög hefur sert svip sinn á hugsun og stefnur þess um- brotatíma, sem við nú lifum á I I ! !

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.