Ný þjóðmál - 14.06.1974, Qupperneq 2
2
NY ÞJOÐMAL
ÞETTA VILJUM VIÐ GERA
Sköpum hér á landi þjóðfélag
jafnaðar og búsetudreifingar
til þess þarf nýja og stórhuga hyggðastefnu, sem F-listinn berst fyrir
Eitt af stærstu stjórnmála-
verkefnum vorra tfma hér á
landi er að snúa við þeirri geig-
vænlegu byggðaröskun, sem
orðið hefur i landinu á undan-
förnum áratugum, og skapa hér
þjóðfélag jafnaðar og búsetu-
dreifingar.
Til þess að leysa þetta verk-
efni, þarf mun róttækari og um-
fangsmeiri aðgerðir i byggða-
málum en hingað til hafa tiðk-
ast. Þessar aðgerðir verða að
byggjast á skipulegri byggða-
stefnu, sem hefur það markmið
að viðhalda og efla blómlega
byggð um landið allt, og koma á
efnalegu menningarlegu og
stjórnarfarslegu jafnrétti þegn-
anna hvar á landinu sem þeir
búa.
Stefna F-listans
M^lefnagrundvöllur F-listans
er það sameiginlega kosninga-
ávarp, sem SFV, Möðruvalla-
hreyfingin og Samtök jafnaðar-
manna hafa samþykkt. Þar
er m.a. rakin sú byggðastefna,
sem F-listinn berst fyrir i þess-
um þingkosningum, og sem þeir
þingmenn, sem af F-lista verða
’kjornir, munu leggja allt kapp á
að koma i framkvæmd að kosn-
ingum loknum.
Þar kemur fram, aö i barátt-
unni fyrir málefnum lands-
byggðarinnar verður af hálfu F-
listans lögð höfuðáhersla á eft-
irfarandi atriði:
A. Lagt verði fram fjármagn,
sem raunhæfar úrlausnir i
byggðamálum krefjast. Ár-
lega verði lagðurákveðinn
hundraðshiuti af þjóðartekj-
um i Byggðasjóð, sem skipt
verði niður i deildir eftir
landshlutum. Hlutverk
Byggðasjóðs verði að veita
fjármagnitil þeirra verkefna,
sem brýnust cru talin hverju
sinni til þess að stuðla að við-
haldi og eflingu byggða i hin-
um einstöku landshlutum.
Landshlutasamtök eigi aðild
að ráðstöfun fjármagnsins.
B. Landinu verði skipt i þróun-
arsvæði eftir þvi hver
byggðavandinn er, en þessi
svæðaskipting verði siðan
lögð til grundvallar aðgerðum
i fjárfestingarmáium, skatta-
málum, húsnæðism álum,
samgöngumálum, mennta-
málum, heilbrigðismálum og
öðrum málaflokkum, sem
hafa áhrif til lausnar byggða-
vandans. Á þeim svæöum,
sem lögð verður mest áhersla
á, verði fyrirtækjum veitt
meiri fyrirgreiðsla, lán til
húsbygginga verði hagkvæm-
ari, framkvæmdum við bygg-
ingar skóla og sjúkrahúsa
hraðað og önnur opinber
þjónusta sniðin að skipting-
unni i þróunarsvæði, en sú
skipting verði endurskoðuð á
fjögurra ára fresti.
C. Gerð verði heildaráætlun um
æskilega þróun byggðar á Is-
landi fram til ársins 1990.
Þessi áætlun nái jafnt til
byggðaþróunar i hinum cin-
stöku landshlutum, sem nýt-
ingar landsins og gæða þess i
heild.
I). Félagslegt framtak njóti
forgangs i atvinnuuppbygg-
ingu landsby ggðarinnar.
Iteynslan sýnir, að fyrirtæki
fólksins sjálfs hafa rcynst
hinuin dreifðu byggðum
heilladrýgst.
. Valdakerfi rikisins verði
endurskipulagt með flutningi
opinberra stofnana til hinna
cinstöku landshluta til að
skapa lýðræðislegt jafnvægi i
stjórn landsins og styrkja
Skagaströnd.
framfaraþrótt landsbyggðar-
innar.
F. Meginforsenda öflugrar
byggðastefnu er sú, að undir-
stöðuatvinnuvegum þjóðfé-
lagsins sé jafnan tryggð við-
unandi rekstrarskilyrði. —
ibúai strjálbýlisins eiga mest
undir þvi komið, að jafnvægi
riki i þjóðarbúskapnum.
Nýtt skipulag
byggðamála
i þessari byggðastefnu, sem i
öllum meginatriöum er i sam-
ræmi við þá stefnu i byggðamál-
um, scm ungir framsóknar-
menn hafa barist fyrir á undan-
förnum árum en forysta Fram-
sóknarflokksins hafnað, er i
fyrsta lagi lagt til, að komið
verði á nýju skipulagi byggða-
málanna.
Þettaskipulager i meginatrið-
um á þann veg, að landinu verði
skipt niður i þróunarsvæði eftir
þvi hver byggðavandinn er á
hverjum stað, og verði þessi
svæðaskipting endurskoðuð á
fjögurra ára fresti. Með þessum
hætti er tryggt, að á hverjum
tima sé mest áhersla lögð á að
leysa byggðavandann þar sem
hann er mestur, þvi þessa
svæðaskiptingu á að leggja til
grundvallar aðgerðum i fjár-
festingarmálum, skattamálum,
húsnæðismálum, samgöngu-
málum, menntamálum, heil-
brigðismálum, og öðrum mála-
flokkum, sem hafa áhrif til
lausnar byggðavandans. Sömu-
leiðis er til þess ætlast, að á
þeim svæðum, sem hverju sinni
verður lögð mest áhersla á,
verði fyrirtækjum veitt meiri
fyrirgreiðsla, lán til húsbygg-
inga verði hagkvæmari, fram-
kvæmdum við byggingar skóla
og sjúkrahús hraðað og önnur
opinber þjónusta sniðin að
skiptingunni i þróunarsvæði.
Jafnframt er lögð á það á-
hersla, að þegar verði hafist
handa við gerð heildaráætlunar
um æskilega þróun byggðar á
tslandi fram til ársins 1990, og
falli skipting landsins i þróunar-
svæði að þeirri heildaráætlun á
hverjum tima.
Með slikri skipulegri byggða-
stefnu er hægt að sigrast á
byggðavandanum
Nýtt fjármagn
og aukin áhrif
landshlutanna
Ljóst er, að til þess að fram-
kvæma þessa byggðastefnu þarf
mikið fjármagn. Bæði þarf að
einbeita þvi fjármagni, sem
þegar er fyrir hendi, enn frekar
en hingað til að þeim verkefn-
um, sem brýnust eru, og einnig
þarf að afla viðbótarfjármagns
til byggðaframkvæmdanna. F-
listinn leggur til i þvi efni, að ár-
lega verði ákveðinn hundraðs-
hluti af þjóðartekjum lagður i
Byggðasjóð, sem skipt vcrði
niður I deildir eftir landshlutum.
Hlutverk sjóðsins vcrði að veita
fjármagni til þeirra verkefna
sem brýnust eru talin hverju
sinni til þess að stuðla að við-
haldi og eflingu byggða i hinum
einstöku landshlutum.
Jafnframt þvi, sem þannig
verður lagt fram það fjármagn,
sem raunhæfar úrlausnir I
byggðamálum krefjast, verður
landshlutasamtökunum veitt
aðild að ráðstöfun fjármagns-
ins, ef tillögur F-listans i
byggðamálum ná fram að
ganga. Það verður þvi aðeins,
að kjósendur viðs vegar um
land veiti F-listanum það braut-
argengi, sem þarf til þess að
tryggja nýrri félagshyggju-
stjórn þingmeirihluta á Alþingi.
—E.J.
sta bingó ársins
að Hótel Sögu á fimmtudaginn
F-listinn heldur stórbingó í súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 20. júní n.k., og hefst það kl. 20.30.
FIMM SÓLARFERÐIR
A þessu glæsilegasta bingó ársins verða margir
vinningar, samtals að verðmæti um 200 þúsund kr!
Meðal vinninga eru tvær sólarferðir til Mallorca
og tvær ferðir til Costa del Sol
Ferð til Rómar verður vinningurinn í happdrætti,
sem dregið verður í á staðnum!
'íesii
SSlKK
ass
£S8
■ ■ '•
Stjórnandi verður Baldur Óskarsson
Fjölmennið á
bingó ársirtsl
HBBHBBBHnBnnnHBBnHHHiBHHHnBBHHHHHBBBnnHn