Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Page 157
1869.
VERZLAN A ÍSLANDI.
145
Af fiski (saltfiski og hörðum fiski) var árið 1869 flutt frá
Islandi alls 16,155 skippund, og er það töluvert minna en árið
1867, en þó ekki svo lítið meira en árið 1868 (smbr. IV. bls. 630
°g 882). Eins og að undanförnu var lángmest af þessari vöru-
tegund flutt frá Suður-umdæminu, nefnilega 10,139 skippund (einkum
lra ^eykjavík og frá Gullbríngu sýslu; frá þeim nefnilega 9087
skippund, eða rúmlega eins mikið og það sem fluttist frá öllum
liiuum öðrum héruðum landsius), og svo frá Vestur-umdæminu 5978
skippund (þaðan einkum frá ísafjarðar sýslu, eða 5025 skippund),
en frá Norður- og Austur-umdæminu ein 38 skippund. Söltuð
hrogn voru á þessu ári eins og að undanförnu (að frá teknu þó
órinu 1867, smbr. IV., bls. 631) eingöngu flutt frá Suður-um-
(iæminu, og þaðan lángmest frá Gullbríngu sýslu, nefnilega 654
tunnur af 977 tunnum, sem alls fluttust á þessu ári af þessari
'orutegund, og sem er töluvert meira en næst undanfarið ár (smbr.
bls. 882). þar á móti hefir útflutníngurinn af saltaðri
Sl^> sem árið næst á undan var svo töluverð (nefnilega 2566
tunnur, smbr. IV., bls, 883), árið 1869 varla verið teljandi, nefni-
leSa einar 14 tunnur frá Reykjavík. En á hinn bóginn er á þessu
ari iðluvert meira flutt út af söltuðum laxi, en næst undanfarið
ar> °g af honum eins og áður mest frá Norður- og Austur-um-
fiæminu, nefnilega 326 lísipund af þeim 532 lísipundum, sem af
þeirri vöru alls fluttust frá íslandi árið 1869.
Af lýsi (og er þar talið allskonar lýsi, bæði þorskalýsi, hval-
'ýsi, hákarlslýsi og selslýsi) hefir á þessu ári verið flutt ekki svo
h'tið minna frá íslandi en næst undanfarið ár, nefnilega alls 7744
tunnur (árið 1868 var útflutníngurinn frá öllu landinu 8757 tunnur,
smbr. IV., bls. 883). Lángmestur hefir útflutníngurinn árið 1869
uf þessari vörutegund verið frá Vestur-umdæminu (einkum frá ísa-
fjarðar sýslu), nefnilega 3807 tunnur, eða nær því eins mikið og
frá báðum hinum umdæmunum að samtöldu; minnstur var útflutn-
■ngurinn frá Suður-umdæminu, nefnilega ekki nema 1552 tunnur,
en frá Norður- og Austur-umdæminu fluttust 2385 tunnur.
Um saltað kjöt er líkt að segja og að undanförnu, að láng-
mest hefir af því á þessu ári verið flutt frá Norður- og Austur-