Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Side 158
146
VERZLAN Á ÍSLANDI.
1869.
umdæminu. Af þeim 2758 tunnum af þessari vörutegund, sem
árið 1869 voru íluttar alls frá íslandi (árið 1868 fluttust ekki nema
2003 tunnur alls), koma nefnilega 2409 tunnur á Norður- og
Austur-umdæmið, 234 tunnur á Vestur-umdæmið, og ekki nema
115 tunnur á Suður-umdæmið.
Hvað útflutníng af tólg snertir árið 1869, þá skarar Norður
og Austur-umdæmið eins og hin fyrri árin lángt fram úr hinum
umdæmunum að þessu. Frá öllu landinu fluttust nefnilega á þessu
ári alls 410,596 pund, og er það töluvert minna en næst undan-
farið ár (þá voru það nefnilega 482,544 pund, smbr. IV., bls. 883),
en af þvi var ílutt frá Norður- 'og Austur-umdæminu einu 316,150
pund, eða rúmlega þrefalt meira en frá báðum hinum umdæmunum
að samtöldu; því frá Suður-umdæminu fluttust 62,208 pund, en
frá Vestur-umdæminu einúngis 32,238 pund. Einkum er það
Norður-Múla sýsla, sem í Norður- og Austur-umdæminu tekur
hinum sýslunum fram livað útflutníng á þessari vörutegund snertir,
því frá henni einni fluttust 131,997 pund, eða töluvert meira en
frá öllu Suður-umdæminu og frá öllu Vestur-umdæminu að sam-
töldu. Að öðru leyti er það merkilegt, að frá ísafjarðar sýslu er
ekki neitt talið að út hafi verið flutt af tólg, og frá Barðastrandar
sýslu einúngis það lítilræði 354 pund, og er þetta líkt og áður
hefir átt sér stað.
Af ullu (og er hér talin bæði hvít ull, svört ull og mislit),
íluttust árið 1869 alls 1,203,300 pund frá öllu landinu, og er
það töluvert minna en næst undanfarið ár (þá var það nefnilega
1,412,389 pund, smbr. IV., bls. 886). Hvað hlutfallið milli urn-
dæmanna snertir, þá kemur liið sama fram sem áður hefir átt sér
stað, að lángmest hefir á þessu ári verið llutt af þessari vöru-
tegund frá Norður- og Austur-umdæminu, því frá þessu umdæmi
einu íluttust nefnilega 608,641 pund ullar, eða rúmlega helmíngur
þess, sem út hefir verið í'lutt frá öllu landinu; frá Suður-umdæminu
voru flutt 382,817 pund, og þar af frá Iteykjavíkur kaupstað einum
179,341 pund, eða nærri því eins mikið og frá öllu Vestur-um-
dæininu, því þaðan voru ekki ílutt nema 212,342 pund.
Tóvara hefir á þessu ári, eins og að undanförnu, mest og