Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Page 325
1870.
FÓLKSTALA Á ÍSLANDl.
313
svo litið í landinu síðan árið 1.860, þá hefir samt tala heimila
farið mínkandi á sama tíinabili. þetta síðastnefnda ár var tala
heimila á öllu landinu nefnilega 9607, en þegar fólkstalan var tekin
árið 1870 eru þau samkvæmt skýrslunni A. hér á eptir ekki talin
nema 9306, og hafa þau þvf á þessu tímabili fækkað um 301 tals
eða 3.1 af hundraði, og er ekki hægt að skilja i hvernig á þessu
stendur. Taki maður nú árið 1870 fyrir, þá verða, eptir því sem
nú liefir verið sagt, rúmir 7 (7.5) rnanns að meðaltali á hverju
heimili á öllu íslandi, og er það lítið eitt meira en það hefir verið
áður. Mismunur sá, sem í þessu efni er milli Islands og annara
landa i Norðurálfu, á að líkindum helztu rót sína í því, að atvinuu-
vegum á íslaudi er svo háttað, að búandi menn, einkum til sveita,
verða að halda mörg vinnuhjú, og eru þau ekki allsjaldan gipt.
Hlutfall þetla breytist þó nokkuð, þegar hvert umdæmi er skoðað
sér, því þá lelst svo til, að 1. október 1870 verða í Suður-um-
dæminu 7.0, í Vestur-umdæininu 7.9 og í Norður- og Austur-um-
dæminu 7.7 manns á hverju heimili. En þar töluverður muuur er
á þessu i hiuuin sérstöku héruðum landsins, höfum vér í skýrsl-
unni 15. hér á eptir skýrt frá tölu heimila í hverri sókn, og þar
bjá skipt þeim niður í 5 ílokka; eru þá í 1. flokki talin þau heim-
ili, sem eru fleiri á en 2 menn, i 2. flokki heimili með 3—6, í 3.
flokki með 7—10, í 4. flokki með 11—20 og í 5- flokki með yfir
20 manns; við hverja sókn er þarhjá sett hversu margir menn sé
að meðaltali á heimili. Skoði maður þessa skýrslu, þá sýnir það
sig, að í fiskiverum og kaupstaðarplázum eru miklu færri menn að
tiltölu á heimili en til sveila, og kemur þetta heim við það, sem
sagt er hér á undan. þaunig eru t. a. m. í Suður-umdæminu 228
heimili með ekki fleiri en 2 mönnum á hverju, og af þeim eru 157
eða miklu meira en hehníngurinn í Gullbríngu- og Kjósar sýslu;
i Vestur-umdæminu eru þau 146, og þaraf einúngis í Snæfellsness
sýslu 55. Taki maður hverja sýslu sér, þá eru flestir menn að
meðaltali á heimili í ísafjarðar sýslu (9.4 manns) og fæstir í Snæ-
fellsness sýslu (ekki nema 5.9 manns); en sé hver sókn skoðuð
sér, þá eru flestir meun á heimili í Álptamýrar sókn í Isafjarðar
sýslu (14. o manns að ineðaltali) og fæstir í Helgafells sókn í