Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Síða 344
332
FÓLKSTALA Á ÍSLANDI.
1870.
Vér höfum nú á ýmsa vegu skoðað fólk á íslandi árið 1870
eptir hjúskaparstétt, en það er þó eptir eitt atriði í þessu efni,
sem er mjög svo eptirtektavert, og er það aldursmunur hjóna,
og skal því nú skýra frá hvernig á þessu iiefir staðið á íslandi
nýnefnt ár.
Skipti maður nú í þessu skyni hjónum eptir aldri þeirra í 4
aldursflokka og 'teli maður í 1. ílokki hjón allt að 30 ára, í 2. flokki
frá 31—45 ára, í 3. ílokki frá 46—60 ára og í 4. flokki ytir 60
ára, þá fáum vér um aldur hjóna 16 ýmisleg tilfelli, eins og sýnt
er í skýrslunni F. hér að framun, og er þar sagt frá hversu mörg
hjón voru í hverju þessara í hverri sýslu á íslandi 1. október 1870.
Við skýrslu þessa ber þess þó að getu, að eptir henni verður tala
hjóna á íslandi árið 1870 ekki hin sama og talið er í skýrslunni
E., því þar eru taldir 8882 giptir karlar og 8881 giptar konur, eða
samtals 8882 hjón, en í skýrslu þeirri, sem hér ræðir urn, er tala
hjóna sögð að vera 8465. Mismunur sá, sem þannig lætur sig í
ljósi, kemur af því, að í fólkstalskýrslum hreppstjóra frá íslandi
verður ekki allstaðar séð, hvort karl eða kona, sem þó er talinn
giptur eða gipt, liíi í hjúskap saman; en þar mismunur þessi er
bæði lítill í sjálfu sér, og þarhjá gætir lítils í skoðunum þeim, sem
vér hér ætlum að hafa um hönd, höfum vér ekki hikað við að taka
þetta atriði eptir föngum þeim, sem til voru,
Eptir skiplíngu þeirri, sem að ofan er getið, er það ljóst, að
aldursmunur hjóna, þegar hvortlveggja þeirra er í sarna aldursflokki,
verður frá 0 til 15 ára (þegar annað þeirra er t.. a. m. 15 ára en
hitt 30 ára), eða 7V2 ár að meðaltali; sé þar á móti annað hjónanna
í fyrsta flokki en hitt í öðrum, í öðrum ogþriðja, eða í þriðja og fjórða
flokki, þá getur aldursmunurinn orðið full 30 ár (þegar t. a. m.
annað þeirra er 15 og hitt 45 ára), en munurinn getur líka orðið
einúngis 1 ár (þegar annað þeirra er 30 ára ep hitt 31 árs), og
hann verður því í þessu falli 15 ár aö meðaltali; liggi aptur tveir
aldursílokkar milli hjónanna, það er að skilja ef annað þeirra er í
fyrsta en hitt í þriðja flokki, eða þá í öðrum og fjórða flokki, þá
getur aldursmunurinn orðið full 45 ár (t. a. m. þegar annað
þeirra er 15 og hitt 60 ára), en líka einúngis 15 ár (þegar annað